Fréttablaðið - 04.10.2012, Qupperneq 40
4. október 2012 FIMMTUDAGUR28
BAKÞANKAR
Friðriku
Benónýs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. ryk, 6. málmur, 8. sjór, 9. blessun,
11. ullarflóki, 12. högni, 14. stinga, 16.
í röð, 17. kopar, 18. mælieining, 20.
bókstafur, 21. pottréttur.
LÓÐRÉTT
1. helminguð, 3. kringum, 4. flutn-
ingaskip, 5. hyggja, 7. avókadó, 10.
andmæli, 13. atvikast, 15. einsöngur,
16. skyggni, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. duft, 6. ál, 8. mar, 9. lán,
11. rú, 12. fress, 14. pikka, 16. de, 17.
eir, 18. erg, 20. pí, 21. ragú.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. um, 4. farskip,
5. trú, 7. lárpera, 10. nei, 13. ske, 15.
aría, 16. der, 19. gg.
Hann fattaði aldrei
hvað skeði! Ég sá
hræðsluna í aug-
unum á honum! Hann
var hræddur! Mjög
hræddur!
Svo kom sársaukinn!
Han kveinkaði sér og
rétti út höndina …
mmmmammmah
mammaaaaaaaah
viltu blásaaa …
Og ég held
hann hafi ælt
á leið inn í
sjúkrabílinn!
Líklega!
Sumir læra
aldrei!
Hrikalegt! En
það breytir
ekki þeirri
staðreynd að
ég var fyrstur í
boltann!
Held að þú hafir
tæklað hann svipað
á 2007 tímabilinu! Þá
varð hann meistari í
beinbrotum!
Jón læknir
hér.
Hæ pabbi,
geturðu sótt
mig? Já, auðvitað.
Hvenær á ég
að koma?
Ertu ekki
lagður af
stað??
Jósúa, geturðu
unnið klukkutíma
í yfirvinnu?
Hannes... Þú hefðir átt
að sjá þetta,
mamma!
Þetta var
stærsta tyggjó-
kúla í heimi!
Hausinn á mér
fór næstum
af þegar hún
sprakk!
Það kemur
tyggjókúla
eftir þessa
tyggjókúlu...
Hei!
Einelti er skelfilegt. Um það erum við öll sammála. En þrátt fyrir mikla umræðu
og markvissar aðgerðir virðist ganga illa
að ráða niðurlögum þess. Hver einstak-
lingurinn á fætur öðrum kemur fram í
fjölmiðlum og lýsir sárri reynslu af ein-
elti skólafélaga, vinnufélaga eða annarra.
Og við jesúsum okkur og hryllum í kór
yfir þessum sögum; skiljum ekki hvaðan
þessi grimmd og mannfyrirlitning kemur.
Kannski við ættum að líta okkur nær.
TIL þess að uppræta einelti þarf nefni-
lega grundvallarhugarfarsbreytingu. Það
þarf að hætta að hafa það fyrir börnum
að það sé eðlilegt að skíta út stjórnmála-
menn og aðra sem sjást á sjónvarpsskján-
um og alla sem hafa andstæða skoðun í
kommentakerfum netmiðla. Koma þeim
skilaboðum rækilega á framfæri að
það sé aldrei í lagi að ráðast á annað
fólk vegna framferðis þess, skoð-
ana, útlits eða óvana. Aldrei. Það
lærir ekkert barn að einelti sé ófor-
svaranlegt ef það hlustar á sífelldar
yfirlýsingar um það hvað þessi eða hinn
sé mikill hálfviti, hvað þessi kelling-
arbikkja sé klikkuð, eða þessi kall
feitur heima hjá sér á hverju kvöldi.
Hvernig ættu þau að skilja það að
foreldrunum leyfist að tala svona
um aðrar manneskjur en þau sjálf
megi ekki segja styggðaryrði við
félaga sína?
SUMIR eru jafnvel lagðir í einelti í nafni
rétthugsunar. Þar eru efstir á blaði blessað-
ir reykingamennirnir. Reykingar eru óholl-
ar og sóðalegar og þar af leiðandi eru þeir
sem þær stunda réttmætt skotmark barna
og fullorðinna hvar sem til þeirra næst.
„Það er ógeðslegt að reykja, þú getur dáið,“
segja börnin sem ganga fram hjá þegar
maður situr í sakleysi á eigin tröppum og
nýtur nikótínsins. Og foreldrarnir brosa
drjúgir og klappa þeim á kollinn. Aldeil-
is vel heppnuð innræting. En hvað með
annað sem er óhollt og ógeðslegt? Hugsum
okkur að sama barn sæi feita manneskju
sitja og úða í sig hamborgara og frönskum,
löðrandi í kokteilsósu, og tilkynnti henni á
sama hátt að það væri ógeðslegt að borða
svona jukk og líklegt til að draga hana til
dauða. Haldiði að foreldrarnir myndu brosa
jafn drýgindalega við þeirri staðhæfingu?
Og hvað ef ég, sem valið hef þann lífsstíl
að eiga ekki bíl, steytti hnefa, fussandi og
sveiandi í hvert sinn sem ég sæi bíl? Hlýt
ég ekki að eiga rétt á því að þurfa ekki
að anda að mér eiturgufunum í útblæstri
bílanna ykkar í hvert sinn sem ég fer út úr
húsi? Þetta er ógeðslegt!
EINELTI er skelfilegt. Alltaf, alls staðar.
Eina leiðin til að vinna bug á því er að leyfa
fólki bara að vera eins og það er með sína
lesti og vankanta. Hætta að kássast upp á
annarra jússur og reyna í staðinn að lappa
upp á sínar eigin.
Kássast upp á jússur
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða!
Miðasala í
fullum gangi!
fös. 28/9 kl. 20 UPPSELT
lau. 29/9 kl. 20 örfá sæti
lau. 6/10 kl. 19 örfá sæti
lau. 6/10 kl. 22 örfá sæti
sun. 7/10 kl. 20 örfá sæti
fös. 12/10 kl. 19 UPPSELT
lau. 13/10 kl. 19 örfá sæti
lau. 20/10 kl. 19 UPPSELT
Sýningar í Hofi á Akureyri
fös. 01/11 kl. 20 | lau. 02/11 kl. 20
Miðasala í síma 450 1000 og á
menningarhus.is