Fréttablaðið - 24.10.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 24.10.2012, Blaðsíða 4
24. október 2012 MIÐVIKUDAGUR4 GENGIÐ 23.10.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 224,2188 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,02 125,62 199,88 200,86 162,51 163,41 21,783 21,911 21,918 22,048 18,87 18,98 1,5639 1,5731 192,29 193,43 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Ómissandi á pizzuna, í ofn- og pastaréttina, á tortillurnar og salatið. Heimilis RIFINN OSTUR NÝJUNG ÍSLENSKUR OSTUR 100% ATVINNUMÁL Reykjavíkurborg vill að ríkið bæti sveitarfélögum upp þá útgjaldaaukningu til fjár- hagsaðstoðar sem þau hafa tekið á sig frá 2008 vegna fólks sem misst hefur atvinnuna og rétt til atvinnuleysisbóta. Fulltrúar Reykjavíkur fund- uðu með fjárlaganefnd Alþingis 15. október síðastliðinn um fjár- mál, fjárhagsstöðu og verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga. Efst á minnisblaði fjármálaskrif- stofu borgarinnar vegna fundar- ins voru atvinnuleysisbótarétt- indi og fjárhagsaðstoð. Segir í minnisblaðinu að tæplega tvö þúsund manns í Reykjavík muni hafa misst rétt til atvinnuleysis- bóta fyrir lok næsta árs. Borgin vill meðal annars að bráðabirgða- ákvæði um fjögurra ára bótarétt verði framlengt allt næsta ár eða að minnsta kosti um þrjá til sex mánuði. Grípa þurfi til sér- stakra vinnumarkaðsaðgerða vegna þeirra sem missa réttinn til atvinnuleysisbóta. Fjármálaskrifstofan segir að þegar atvinnuleysi hafi aukist eftir hrunið hafi Alþingi hækkað trygg- ingargjald sem rennur í Atvinnu- leysistryggingasjóð. Á sama tíma hafi skuldbindingar sveitarfélaga, einkum Reykjavíkur borgar, aukist vegna einstaklinga sem áttu rétt á fjárhagsaðstoð. „Alþingi samþykkti engar breyt- ingar á tekjustofnum sveitarfélaga til að mæta þessum auknu útgjöld- um en lagði á sveitarfélög að taka fullan þátt í fjármögnun Atvinnu- leysistryggingasjóðs,“ segir fjár- málaskrifstofan. Bent er á að þótt tryggingagjaldið hafi verið lækkað að hluta vegna fækkunar í hópi atvinnulausra hafi ekkert verið gert til að sveitarfélögin geti mætt þeim sem munu missa rétt til atvinnuleysisbóta og bætast í „sífellt stækkandi“ hóp þeirra sem eiga rétt á fjárhagsaðstoð sveitar- félaga. „Lækkun tryggingargjalds er þó mun minni en nemur áætlaðri lækkun útgjalda Atvinnuleysis- tryggingasjóðs. Má líkja þessu við að ríkissjóður sé að skattleggja sveitarfélögin til að brúa gat sitt í fjármálum ríkisins,“ segir fjár- málaskrifstofan sem kveður ríkið og sveitarfélögin verða að meta „nauðsynlega tilfærslu“ tekna til sveitarfélaga. „Eðlilegra hefði verið að færa tekjur af tryggingar- gjaldi til þeirra sveitarfélaga sem bera þyngstar byrðar í útgjöldum til fjárhagsaðstoðar vegna afleið- inga hrunsins,“ segir fjármála- skrifstofan. gar@frettabladid.is Alda atvinnulausra á leið á fjárhagsaðstoð Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar segir nær tvö þúsund atvinnulausa í Reykjavík verða búna að missa atvinnuleysisbótarétt í Reykjavík fyrir lok 2013. Borgin vill að bráðabirgðaákvæði um bótarétt verði framlengt út næsta ár. RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Sveitarfélögin, ríkið og aðilar vinnumarkaðarins tóku höndum saman í desember í fyrra í átaki til að tryggja atvinnuleitendum störf. Dregið hefur úr atvinnuleysi en sumir sem enn eru án vinnu eru að missa atvinnuleysisbætur. Borgin áætlar að útgjöld sín vegna fjárhagstoðar til framfærslu aukist þess vegna um þrjá milljarða króna á sex árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 2007 2011 Breyting Allt landið 177.200 167.300 -5,6% Reykjavík 71.000 62.600 -11,8% Höfuðborgarsvæðið 116.900 108.600 -7,1% HBS án RVK 45.900 46.000 0,2% Heimild: Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Starfandi í fullu starfi og hlutastarfi DÓMSMÁL Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Ragnari Þórissyni, sjóðsstjóra og stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, fyrir skattsvik. Í ákærunni er Ragnari gefið að sök að hafa ekki talið fram 120 milljóna króna fjármagnstekjur árið 2007, sem hafi verið til komnar vegna uppgjörs tveggja framvirkra skiptasamninga við MP banka. Þannig hafi hann komist undan tólf milljóna króna skattgreiðslu. Ákæran verður þingfest á fimmtudag. Boreas Capital var með útibú víða um Evrópu og var nátengdur fjárfestingabankanum Straumi, sem var í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, vinar Ragnars. - sh Ragnar Þórisson fyrir dóm: Stjóri Boreas ákærður fyrir 12 milljóna svik Mörður sækist eftir 3. sæti Mörður Árnason alþingismaður sækist eftir þriðja sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjör- dæmunum tveimur. Hann vill því skipa annað sæti í öðru hvoru kjör- dæminu. Mörður var þingmaður frá 2003 til 2007 og svo aftur frá árinu 2010. PRÓFKJÖR Margrét Gauja fer fram Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði, sækist eftir þriðja til fjórða sæti á lista Samfylkingar- innar í Suðvesturkjördæmi. Margrét Gauja starfar sem kennari auk þess að vera bæjarfulltrúi og forseti bæjar- stjórnar í Hafnarfirði. Niðurrif í Fossvogi Eigandi einbýlishúss í Grundarlandi í Fossvogi hefur fengið leyfi til að rífa húsið og byggja nýtt í staðinn. Núverandi hús er 189 fermetrar en nýja húsið verður 356 fermetrar. SKIPULAGSMÁL VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 23° 18° 10° 11° 16° 17° 10° 10° 27° 15° 24° 17° 29° 5° 16° 18° 5° Á MORGUN 5-10 m/s. FÖSTUDAGUR Víða úrkoma seinni partinn. 0 0 0 -2 2 4 4 6 4 3 3 5 4 3 2 3 1 2 2 5 4 1 -3 2 2 0 -4 3 0 -3 2 2 FÍNT Í BILI Það hefur verið fremur meinhægt veður ríkjandi á landinu en það lítur út fyrir breytingar og umhleypingasamt veður um helgina. Svalt í veðri næstu daga en fer hægt hlýnandi á föstu- dag. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður SAFNAMÁL Forsvarsmenn Náttúru- fræðistofnunar Íslands (NÍ) og Náttúruminjasafns Íslands (NMÍ) undirrituðu samkomulag um víð- tækt samstarf á mánudag. Í því felst að NÍ muni veita NMÍ greiðan aðgang að safnkosti sínum vegna sýninga og annarrar starfsemi og að samvinna verði um söfnun, skráningu, rannsóknir og fræðslu. Samkvæmt samkomulaginu mun NÍ afhenda NMÍ til lengri tíma muni sem verða hluti af grunnsýn- ingu þess. Auk þess munu starfs- menn safnsins fá tímabundna starfsaðstöðu hjá Náttúrufræði- stofnun á meðan starfsemi safnsins er í mótun. Eins og komið hefur fram í fréttum er NMÍ húsnæðislaust frá og með áramótum, en á sama tíma hefur samstarfsnefnd á vegum ríkis og borgar skilað skýrslu um möguleika á að setja upp sýningu í Perlunni. Fjárhagslegur grundvöll- ur slíkrar sýningar verður skoðað- ur í framhaldinu, eins og kom fram í ræðu mennta- og menningarmála- ráðherra á Alþingi nýlega. Jón Gunnar Ottósson, forstjóri NÍ, og Margrét Hallgrímsdóttir, settur forstöðumaður NMÍ, undir- rituðu samkomulagið. Í tilkynn- ingu segir að með því hafi verið tekið mikilvægt skref í því að efla samvinnu þessara náttúruvísinda- stofnana. - shá Náttúrufræðistofnun og Náttúruminjasafnið sammælast um víðtækt samstarf: Samstarf á sviði náttúruvísinda SAFNKOSTUR Engin sýning náttúrugripa hefur staðið uppi um margra ára skeið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur óspart hæðst að og gert lítið úr stjórnar andstæðingum, sem eiga ekki sæti á þingi en hafa hvað eftir annað efnt til fjölmennra mótmælafunda gegn honum í Moskvu og víðar um land. Hann segir þá vera sundur- lausa hjörð netbúa, sem hafi hvorki skipulag né stefnu og geti ekkert gert. Mótmælendurnir hafa nú brugðist við með því að efna til eins konar prófkjörs á netinu, þar sem valin var for- ystusveit sem vonast er til að verði upphafið að betra skipu- lagi hreyfingarinnar. Alls tóku 82 þúsund manns þátt í kjör- inu. Í fyrsta sæti varð Alexei Navalní, þekktur bloggari sem orðið hefur eitt helsta andlit mótmælahreyfingarinnar út á við. - gb Prófkjör stjórnarandstæðinga: Navalní hreppti fyrsta sætið HEILBRIGÐISMÁL Um 200 manns bíða þess að komast í afeitrun á Vogi og í meðferðarúrræði að því loknu. Þetta kemur fram í pistli sem Gunnar Smári Egils- son, formaður SÁÁ, skrifar á heimasíðu félagsins. Hann vill láta stytta biðlistana. „10 dagar á Vogi og 28 daga meðferð að því loknu kostar ríkissjóð aðeins rúmar 400 þús- und krónur; eða um 11 þúsund krónur á dag,“ skrifar Gunnar Smári. Sé miðað við bandarískar rann sóknir er kostnaðurinn við að sinna þessum sjúklingahópi ekki um 15,4 milljónir á dag. Sá kostnaður er tilkominn meðal annars vegna óvirkni fólksins, heilbrigðis hjálpar, afbrota og slysa. - þeb Meðferð kostar 400 þúsund: 200 bíða eftir afeitrun á Vogi SAMGÖNGUR Alls vill 71 prósent félagsmanna Samtaka ferða- þjónustunnar (SAF) fremur hafa innanlandsflugvöll í Reykjavík en í Keflavík. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir samtökin. Í tilkynningu SAF er því beint til ráðamanna að tryggja umgjörð innanlandsflugs á Reykjavíkurflugvelli. „Stöðugar deilur um framtíð flugvallarins eru ekki bjóðandi heldur þarf að vinna að sátt um starfsemina,“ segir í tilkynningu SAF. - óká SAF kannaði vilja félaga sinna: Vilja hafa flug- völl í Reykjavík

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.