Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 56
DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Ferðaskrifstofa
HEFST Á MÁNUDAG 5. NÓVEMBER KL. 12:00
ALLAR BROTTFARIR FRÁ JÓLUM FRAM AÐ PÁSKUM!
NÝ
KILJA
Voru ekki rekin
Borist hafa fallegar kveðjur til þeirra
Felix Bergssonar og Margrétar
Blöndal eftir að þau upplýstu í
þætti sínum Bergsson og Blöndal í
Útvarpinu um helgina að hann myndi
hætta göngu sinni um áramót. Um
leið og Felix þakkaði góðar kveðjur á
Facebook áréttaði hann að þau hefðu
ekki verið rekin og ekki orðið þreytt á
samstarfi hvort við annað. Sagði hann
þau „hætta á toppnum“ en bæði
væru þó orðin þreytt á því að vera
bundin yfir þættinum allar helgar. „Við
Magga ætlum ekki að hætta að
vinna saman og Gestir út um
allt verða til dæmis í Hofi að
minnsta kosti fram á vorið,“
skrifar Felix á síðu
sína.
1 Allt á kafi í snjó fyrir norðan
2 Grafa fólk út úr heimilum
sínum
3 Pústrar, ölvun og fjársvik
4 Fóstra ákærð fyrir morð
tveimur börnum
5 Alvarlega slasaður eftir bílveltu
Mættu hóflega seint
Iceland Airwaves-hátíðinni lauk í
gær með hátíðartónleikum Sigur
Rósar í Laugardalshöll. Enginn
sem er maður með mönnum lét
sig vanta á tónleikana og slíkur
viðburður er að sjálfsögðu ekki
fullkomnaður nema Ólafur Ragnar
Grímsson og Dorrit Moussaieff
láti sjá sig. Fólk var farið að undrast
um þau í gærkvöldi þegar þau
komu loksins á svæðið, með þeim
allra síðustu í húsið. Í Höllinni mátti
einnig sjá tónlistarmenn á borð við
Hilmar Örn Hilmarsson, Samúel
Jón Samúelsson, kenndan við
Jagúar, og Unn-
stein Manúel
Stefánsson
sem sló
ítrekað í
gegn um
Airwaves-
helgina
með
sveitinni
Retro
Stefson.
- óká, sh