Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 6
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR6
20
11
2010
JÁKVÆÐ MERKI
ÚR ATVINNULÍFINU
Það eru jákvæð teikn á lofti í íslensku
atvinnulífi. Fjölmörg fyrirtæki eru að
ná eftirtektarverðum árangri þrátt fyrir
krefjandi aðstæður.
Arion banki fagnar þessum góða árangri.
Kynntu þér málið á arionbanki.is
60 NÝIR
SÉRFRÆÐINGAR
MANNVIT
NEYTENDUR Lögmaður á lögfræðistofu á höfuðborg-
arsvæðinu rukkaði viðskiptavin um fjórðung úr
tímakaupi þegar hann hringdi til að spyrja hvort
lögmaðurinn gæti tekið mál hans að sér. Skráð lengd
símtals í farsíma lögmannsins er ein mínúta sam-
kvæmt yfirliti sem maðurinn fékk frá Vodafone.
Lögmaðurinn rukkaði einnig í tvígang um fjórð-
ung úr tímakaupi vegna örstuttra tölvupósta. Þetta
er meðal þess kemur fram í kvörtun til úrskurðar-
nefndar lögmanna vegna gjaldtöku lögmannsins.
Viðskiptavinurinn segir í kvörtun sinni, sem
Fréttablaðið hefur undir höndum, að lögmaðurinn
hafi greint frá því að hann ynni á tímagjaldi sem
væri 18.500 krónur.
Í kvörtuninni getur viðskiptavinurinn þess að sér
hafi ekki á neinum tímapunkti verið gerð grein fyrir
reglum eða gjaldskrá sem gilda um lágmarkstíma-
einingar. Verðskrá hafi heldur ekki verið sjáanleg á
staðnum.
Lögmaðurinn er sagður hafa svarað að hann væri
tilbúinn að lækka reikninginn, sem var að fjárhæð
116.088 kr. fyrir 5 tíma, um 0,75 tíma vegna tölvu-
póstssamskipta.
Viðskiptavinurinn leitaði til lögmannsins til
að biðja hann að fara yfir samningsdrög vegna
greiðslna til barnsmóður og umgengni við barn. Að
sögn viðskiptavinarins var samningurinn orðinn að
sambúðarslitasamningi um framfærslu og forsjá
sem aldrei hefði komið til umræðu. Þykir honum
ljóst að samningur lögmannsins hafi ekki verið
frumsaminn heldur hafi verið notuð önnur fyrir-
mynd. - ibs
Viðskiptavinur kvartar til úrskurðarnefndar lögmanna vegna verðlagningar lögmanns sem hann leitaði til:
Rukkaði 4.625 krónur fyrir mínútusímtal
VIÐ HÉRAÐSDÓM Manni blöskraði svo
verðlagning lögmanns að hann kvartaði yfir
henni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
OFBELDI Mjög grófu kynferðisof-
beldi séra Georgs, fyrrverandi
skólastjóra Landakotsskóla, og
kennarans Margrétar Müller gegn
nemendum sínum er lýst í skýrslu
rannsóknarnefndar kaþólsku
kirkjunnar um starfsemi skólans
á meðan kirkjan starfrækti hann.
Átta af þeim þrjátíu fyrrverandi
nemendum sem nefndin ræddi við,
sex karlar og tvær konur, báru
um kynferðisofbeldi innan veggja
skólans og í sumardvöl hans. Tekið
er fram í skýrslunni að langt sé
liðið frá atburðunum, frásagnirnar
kunni að vera ónákvæmar og ekki
sé lagt mat á trúverðugleika þeirra.
Frásagnirnar um háttsemi séra
Georgs snúast um allt frá þukli
til mjög grófra kynferðislegra
athafna. Þannig voru frásagnir um
að hann hefði látið bæði drengi og
stúlkur girða niður um sig og leggj-
ast yfir hné hans og síðan stungið
fingri í endaþarm drengs og kyn-
færi stúlkna. Þá eru frásagnir um
að drengur hafi verið látinn fróa
honum og hafa við hann munnmök.
Séra Georg er sagður hafa
beitt ýmsum brögðum til að ná
sínu fram. Hann hafi logið því að
börnum að foreldrar hafi gefið
honum leyfi til að refsa þeim fyrir
misgjörðir heima fyrir og verð-
launað sum börn með gosi og sæl-
gæti eftir að hafa brotið gegn þeim.
Þá hafi hann hótað börnum að
illa færi fyrir þeim og fjölskyldum
þeirra ef þau segðu frá og ein frá-
sögn er um að hann hafi sagt dreng
að ef hann kjaftaði frá mundi Guð
hafna honum og hann brenna í víti
í stað þess að fara til himnaríkis.
Sögurnar af Margréti Müller eru
á svipaða leið. Hún hafi þuklað á
Hótaði börnum vítis-
vist ef þau segðu frá
Séra Georg í Landakotsskóla og kennarinn Margrét Müller beittu nemendur
mjög grófu kynferðisofbeldi um árabil. Um það vitnuðu átta manns fyrir rann-
sóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar. Margrét sögð hafa svæft stúlku og misnotað.
SKÓLASTJÓRINN Séra Georg var skólastjóri Landakotsskóla frá 1961 til 1998.
Hann lést fyrir fjórum árum.
Ef marka má frásagnirnar pukruðust séra Georg og Mar-
grét ekki með ofbeldið hvort í sínu horni. Ein sagan er á
þá leið að skólastjórinn og kennarinn hafi í sameiningu
látið tvo drengi afklæðast, nudda kynfærum sínum hvor
við rass annars og hafa munnmök hvor við annan á
meðan þau horfðu bæði á.
Tóku höndum saman
um ofbeldið
MARGRÉT MÜLLER
kynfærum drengja, haft munnmök
við einn þeirra og látið dreng þukla
á kynfærum sínum og brjóstum. Þá
hafi hún látið drengi hafa munn-
mök við sig, nudda kynfærum
sínum við kynfæri hennar og notað
aðskotahluti á borð við kerti í kyn-
ferðislegum tilgangi.
Í einu tilviki var sagt frá grun-
semdum um að Margrét hefði
svæft stúlku með lyfjagjöf og mis-
notað hana. Stúlkan hafi þegið
drykk af Margréti, liðið út af og
rankað við sér nokkru síðar, liggj-
andi á bekk, mjög aum í endaþarmi
þannig að úr blæddi dögum saman.
Margrét hafi gefið þá skýringu
að stúlkan hafi verið andsetin og
dottið niður stiga.
Flestir sem báru um kynferðis-
ofbeldi sögðu að það hefði staðið í
mörg ár. Meðal niðurstaðna skýrsl-
unnar er að kirkjan hafi þaggað
málið niður og starfsfólk hennar
með því vanrækt skyldur sínar.
stigur@frettabladid.is
TÍBET, AP Tíbetskur listamaður lést
eftir að hafa kveikt í sér í bænum
Tongren í vesturhluta Kína í gær-
morgun. Maðurinn, sem hét Dorje
Lungdup og var málari, vildi með
þessu þrýsta á um endurkomu
Dalaí Lama til Tíbets og að kín-
versk stjórnvöld létu af yfirráðum
þar.
Á vefsíðu AP er haft eftir for-
svarsmanni útlagastjórnar Tíbets,
sem hefur aðsetur í Dharamsala á
Indlandi, að íbúar í Tongren hætti
sér vart út úr húsum sínum af ótta
við öryggissveitir kínverska hers-
ins sem eru fjölmennar í bænum.
Fjölmargir Tíbetar hafa kveikt
í sjálfum sér á síðustu mánuðum
til að mótmæla harðræði kín-
verskra stjórnvalda. - fsb
Mótmæla kínverskri stjórn:
Enn einn kveik-
ir í sér í Tíbet
MINNINGARATHÖFN Tíbetskir munkar
minnast eins af mótmælendunum sem
kveikti í sér í síðustu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús-
son, atvinnuvegaráðherra og for-
maður Vinstri grænna, gefur kost
á sér í 1. sæti í forvali flokksins í
Norðausturkjördæmi. Steingrímur
segist vilja viðhalda þeirri sterku
stöðu sem flokkurinn hafi byggt
upp, bæði í kjördæminu og á lands-
vísu, og leggja árangur ríkis-
stjórnarinnar í dóm kjósenda.
Ögmundur Jónasson, innan-
ríkisráðherra, gefur kost á sér í
fyrsta sæti lista VG í Suðvestur-
kjördæmi. Hann segist í ráðherra-
tíð sinni hafa beitt sér fyrir skýrri
forgangsröðun hvað varðar það að
standa vörð um innviði samfélags-
ins og auðlindir. - fsb
Setja verk sín í dóm kjósenda:
Ráðherrar í
framboð á ný
Í FORVAL Steingrímur J. Sigfússon og
Ögmundur Jónasson gefa báðir kost á
sér í forvali Vinstri grænna.
SVÍÞJÓÐ Svíar eru svo duglegir
við endurvinnslu að þeir hafa of
lítið af brennanlegum úrgangi til
að hita upp íbúðarhúsnæði. Þetta
kemur fram í frétt á norska við-
skiptavefnum e24.no. Svíar þurfa
að flytja inn úrgang frá Noregi.
Svíar fá greitt fyrir að brenna
norska sorpið. Síðan senda þeir
öskuna til baka þar sem Norð-
menn sjá um förgun þungmálma í
henni. Fimmta hvert heimili í Sví-
þjóð er hitað upp með varma frá
fjarvarmakerfum tengdum endur-
vinnslustöðvum. -ibs
Endurvinnsla í Svíþjóð:
Svíar græða á
norsku sorpi
DANMÖRK Lögreglan í Kaup-
mannahöfn hefur frá áramótum
skráð að minnsta kosti 11 tilfelli
þar sem eigendum veitingastaða
hefur verið hótað borgi þeir ekki
verndarfé. Lögreglan segir fjölda
raunverulegra tilfella óljósan þar
sem ekki sé víst að þau séu öll
skráð hjá lögreglunni.
Fyrr á þessu ári greindi eig-
andi Café Viking á Norðurbrú,
Jane Pedersen, frá hótunum aðila
sem vildu að hún greiddi þeim
verndar fé. -ibs
Danskir veitingastaðir:
Krefja eigendur
um verndarfé
VEISTU SVARIÐ?
1. Hver er höfundur bókarinnar
Sagan af klaustrinu á Skriðu?
2. Hvað heitir fyrsta plata
sveitarinnar Alt-J?
3. Hvað heitir bassaleikari Sigur
Rósar?
SVÖR
1. Steinunn Kristjánsdóttir. 2. An Awesome
Wave. 3. Georg Hólm.