Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 17
Ljósmál er ljósskúlptúr sem er verk eftir Ninný, Jónínu Magnúsdóttur, myndlistarkonu. „Orðið Ljósmál
hefur skírskotun í bæði ljósið og mál-
verkið. Í verkum mínum hef ég notað
blandaða tækni og hef verið að vinna
Ljósmálin á svipaðan hátt og þau,“ segir
Ninný.
Inni í Ljósmálunum er plexígler sem
er yfirleitt sett í sívalninga en það er líka
til í fleiri formum. Ninný notar ýmis efni
í Ljósmálin; pappír, býflugnavax, olíu,
trefjar og ýmislegt sem hún finnur í nátt-
úrunni. „Hægt er að snúa sumum ljós-
skúlptúrunum á tvo vegu og þá eru þeir
í raun sitt hvort verkið. Það er fígúratíft
öðru megin og abstrakt hinum megin
og saman eru þau tengd í eina heild. Ég
hef gaman af fjölbreytni og tilbreytingu
og get sagt frá því að ljósskúlptúrinn sé
fjölbreyttur. Þetta er í raun nýtt verk frá
hverju sjónarhorni og hvert og eitt Ljós-
mál er einstakt.“
Hún segir Ljósmálin hafa vakið mikla
athygli á samsýningum sem listamenn
sem eru með vinnustofur á Korpúlfs-
stöðum hafa haldið. Hugmyndin að Ljós-
málinu kom þegar ein slík sýning var í
uppsiglingu og ákveðið hafði verið að
gera eitthvað sem listamennirnir voru
ekki vanir að gera. „Okkur langaði að gera
eitthvað öðruvísi, að ögra sjálfum okkur
og fara út fyrir þægindarammann. Þá
fór ég að þreifa fyrir mér og þannig urðu
þessir ljósskúlptúrar til. Ég er alltaf að
leita sjálf í myndlistinni að nýjungum, er
alltaf að læra eitthvað nýtt þrátt fyrir að
hafa verið í þessu nánast alla ævi.“
Þrátt fyrir athyglina sem Ljósmálin
hafa vakið hefur Ninný ekki fjöldafram-
leitt þau. „Það liggur mikil vinna að baki
hverju Ljósmáli. Ég hef gert fáa skúlptúra
og þeir eru einungis seldir á vinnustof-
unni og á vefsíðunni HowDoYouLike-
Iceland.com sem stílar inn á erlendan
markað.“ ■ lilja.bjork@365.is
EINSTÖK LJÓSMÁL
LJÓS Í MYRKRI Listakonan Ninný hefur undanfarið unnið að ljósskúlptúrum
sem hún kallar Ljósmál. Verkið hefur vakið meiri athygli en hún bjóst við.
JÓLAFÖNDRIÐ
Nú er sá tími hafinn þegar myndarlegir föndrarar fara
að huga að jólakortagerð. Gott er að vera tímanlega
að velta fyrir sér gerð og lögun jólakortanna 2012 og
safna að sér efnivið. Fjölskyldan getur síðan sameinast
einhverja helgina og föndrað saman.
OPIÐ HÚS
Næsta samsýn-
ing og opna hús á
Korpúlfsstöðum
verður þann 29.
nóvember næst-
komandi á milli
klukkan 17 og 21.
„Þar verða alls
kyns tónlistar-
atriði og uppá-
komur. Yfirskriftin
verður „Ljós í
myrkri“ þannig að
Ljósmálið á eftir að
njóta sín vel þar en
það kemur vel út í
skammdeginu.“
Ljósmál og fleiri
verk eftir Ninný má
sjá á heimasíðu
hennar Ninny.is.
LÝSANDI LJÓSMÁL
Ninný hannar ljós-
skúlptúrana Ljósmál,
sem njóta sín einkar
vel nú í skammdeginu,
og er birtan frá þeim
rómantísk og þægileg.
MYND/GVA
Gerðu gæða- og verðsamanburð
FINNDU MUNINN
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 · Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150 · Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 · laugardaga 12.00 - 16.00
*3,5% lántökugjald
ÝMIR rúm 153x203 aðeins kr. 124.900
ÝMIR, SAGA, FREYJA,
ÞÓR OG ÓÐINN
Hágæða svæðisskiptar heilsudýnur
Valhöll heilsudýna
5 svæðaskipt gormakerfi
153x203 aðeins kr. 89.900
Tilboðsverð
12 mánaða vaxtalausar greiðslur*