Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 12
12 5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS HALLDÓR Í þjóðaratkvæðagreiðslunni voru sam-þykktar grundvallarbreytingar á núver- andi kvótakerfi í sjávarútvegi. Rúmir tveir þriðju þeirra sem afstöðu tóku samþykktu tillögu stjórnlagaráðs sem grundvöll að nýrri stjórnarskrá. Kvótalöggjöfin hefur verið eitt allra stærsta deilumálið í íslenskum stjórn- málum undanfarin 20 ár. Ítrekað hafa lands- menn látið í ljós mikla óánægju með ákveðna þætti löggjafarinnar í skoðanakönnunum og alþingiskosningum. Það fer ekki á milli mála að hver sá sem samþykkti tillögu Stjórnlaga- ráðs hefur kynnt sér breytingarnar og verið þeim samþykkur. Það fer líka ekki á milli mála að hver sá sem vildi áfram núverandi kvótakerfi að mestu óbreytt hefur greitt atkvæði gegn tillögunni. Alls greiddu ríflega 73.000 manns breytingunum atkvæði sitt. Það eru 67% þeirra sem afstöðu tóku. Þetta er nánast sami stuðningur og kom fram í skoðanakönnun MMR í maí 2011. Þá vildu 65% innkalla kvótann og úthluta honum að nýju með breyttum reglum. Breytingarnar í 34. grein í tillögu stjórn- lagaráðs fjalla um náttúruauðlindir og rétt- indi tengd þeim. Róttæku breytingarnar eru þær að auðlindirnar sem ekki eru í einkaeigu eru lýstar þjóðareign. Réttindin til þess að hagnýta þær, svo sem fiskveiðikvóta, mun ríkið veita á jafnræðisgrundvelli, gegn fullu gjaldi til hóflegs tíma, og þau má aldrei veð- setja. Þarna er skýrt hvernig öll umdeildustu atriðin í kvótakerfinu eiga að vera til lykta leidd. Í dag er það svo að handhafar kvótans hafa komist upp með að veðsetja kvótann og þannig draga óhemjumikið fé út úr grein- inni í eigin vasa. Tvöföld verðlagning á kvóta hefur verið látin viðgangast. Ríkið hefur innheimt lágt gjald árlega fyrir afnotin en síðan hafa samtök útvegsmanna, LÍÚ, rekið á skrifstofu sinni sérstakan kvótaeftirmarkað og þar hefur verðið á kvótanum verið marg- falt hærra. Í könnun MMR frá maí 2011 vildi 71% svarenda að ríkið fengi markaðsverðið, sem eðlilegt er. Núverandi kvótaúthlutun brýtur allar reglur um jafnræði og sam- keppni sem gilda um atvinnurekstur í þjóð- félaginu. Enn á ný hefur almenningur í landinu sagt stjórnmálamönnunum skýrt hver vilji hans er. Munu þeir loksins fylgja þeim vilja? Grundvallarbreytingar samþykktar á kvótakerfinu Sjávar- útvegsmál Kristinn H. Gunnarsson fv. alþingismaður www.forlagid.is Ánægðir utanríkisráðherrar Utanríkisráðherrar Norðurlandanna héldu blaðamannafund á Norður- landaráðsþinginu í Helsinki í síðustu viku. Þar kom nýtt samkomulag um loftrýmisgæslu Finna og Svía hér á landi meðal annars til tals og var ekki annað að heyra á ráðherrunum en að þeir væru hæstánægðir með þetta nýja fyrirkomulag, sem sér frændþjóðum okkar fyrir kærkomnu æfingasvæði til hernaðarbrölts. Rangur maður Reyndar var einn sem var ekki ánægður. Í fjarveru Össurar Skarphéðins- sonar kom það nefnilega í hlut Steingríms J. Sigfús- sonar atvinnuvegaráðherra að taka þátt í fundinum. Og hann svaraði spurningunni um loftrýmisgæsluna hreinskilnislega: „Ég er kannski ekki rétti maðurinn til að svara þessu. Ég og minn flokkur erum á móti aðild Íslands að NATO. Það er engin brýn þörf fyrir þessa loftrýmis- gæslu sem okkur býðst núna.“ Evu að kenna Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson skrifar í pistil á Pressuna um samkeppni í flugi. Sigurður, sem var lögmaður Iceland Express, telur að róðurinn hafi verið þungur fyrir félagið undanfarin ár af því að Pálma Haraldssyni hafi verið stefnt fyrir dóm í New York af slitastjórn Glitnis (sem hafi auðvitað verið runnið undan rifjum Evu Joly). Var það sem sagt Evu Joly og Steinunni Guð- bjartsdóttur að kenna að Iceland Express hóf Ameríkuflug sem félagið réð ekki við og leiddi til þess að vélarnar voru meira og minna seinar í tvö ár? Mikil er ábyrgð þeirra. stigur@frettabladid.isS kýrsla óháðrar rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar á Íslandi um viðbrögð hennar við ásökunum um kynferðis- brot og annað ofbeldi innan kirkjunnar er á köflum skelfi- leg lesning. Þótt nefndin taki fram að hlutverk hennar sé ekki að sannprófa frásagnir af brotunum, leikur tæplega vafi á að kaþólskur prestur og skólastjóri Landakotsskóla og kennari við skólann hafi sitt í hvoru lagi og í sameiningu beitt börn í skólanum og í sumar- búðum kirkjunnar grófu kyn- ferðislegu, líkamlegu og andlegu ofbeldi um áratugaskeið. Stjórnendur og aðrir starfs- menn kirkjunnar brugðust þolend- um ofbeldisins. Þótt nefndin segi ekki hægt að álykta að reynt hafi verið að þagga kynferðis brotin niður, liggur fyrir að margir starfsmenn kirkjunnar, þar með taldir allir biskupar hennar undan- farna áratugi, hafi gerzt sekir um vanrækslu með því að hafa ekki brugðizt við og látið rannsaka ásakanir um ofbeldið. Sá ljóti veruleiki sem nú kemur upp á yfirborðið í kaþólsku kirkj- unni á sér margar hliðstæður. Viðlíka afhjúpanir hafa varpað rýrð á orðspor kaþólsku kirkjunnar víða um heim undanfarin ár. Hér á Íslandi er skemmst að minnast niðurstaðna sambærilegrar rann- sóknarnefndar, sem tók út viðbrögð þjóðkirkjunnar við ásökunum um kynferðisbrot á hendur fyrrverandi biskupi Íslands og taldi þeim stórlega ábótavant. Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar kemur fram að kynferðisbrot séu ekki algengari innan trúfélaga en annars staðar í samfélaginu. Hins vegar geti trúarsannfæring aukið og viðhaldið hættu á ofbeldi og afleiðingar ofbeldis sem beitt er í skjóli trúarbragða geti haft alvarlegri áhrif á þolandann en ella. Samfélagið geri ríkar kröfur til þess að starfshættir trúarsamfélags einkennist af kærleik, virðingu og skilningi og öll viðbrögð við ofbeldi byggist á fagmennsku, rétt- læti og sanngirni. Óhætt er að segja að skýrslan sýni fram á að á allt þetta hafi verulega skort í kaþólsku kirkjunni á Íslandi. Þá dregur nefndin það skýrt fram að kirkjan brást of seint við umræðu um kynferðisbrot kirkjunnar manna. „Telja verður að kaþólska kirkjan á Íslandi hafi, um og eftir síðustu aldamót, haft fullt tilefni til að ræða mál um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum og að setja sér skýrar reglur um forvarnir, fræðslu og viðbrögð við hugsanlegum ásökunum,“ segja nefndarmenn. Skipan nefndarinnar, sem var falið að fá fram frásagnir af kyn- ferðisbrotum innan kirkjunnar og meta viðbrögð við þeim og jafn- framt gera tillögur til úrbóta, er að sjálfsögðu jákvætt skref. Pétur Bürcher, biskup kaþólskra, hefur enn fremur beðizt afsökunar fyrir hönd kirkjunnar og boðað að gripið verði til ráðstafana til að fyrir- byggja kynferðislega misnotkun innan kirkjunnar í framtíðinni. Þetta eru rétt viðbrögð, en koma heldur seint. Erfitt er að verjast þeirri hugsun að koma hefði mátt í veg fyrir andstyggileg brot gegn börnum ef kirkjan hefði vaknað til vitundar fyrr. Skýrsla um kynferðisbrot og annað ofbeldi í kaþólsku kirkjunni: Vöknuð, en heldur seint Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.