Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 18

Fréttablaðið - 05.11.2012, Síða 18
FÓLK|HEIMILI Þetta er afrakstur sam-vinnuverkefnis verslun-arinnar Húss handanna á Egilsstöðum og átaksverkefnisins Þorpsins, en Þorpið gengur út á að styðja við vöruhönnun og listhand- verk á Austurlandi og nýtingu á staðbundnum hráefnum. Ömmu- kollurinn var fyrsta grasrótarverkefni Þorpsins,“ útskýrir Lára Vilbergsdóttir, verkefnisstjóri Þorpsins, en á föstudaginn var opnuð sýning á Skörinni, Aðalstræti 10, á nytjahlutum sem unnir eru af list- handverksmönnum fyrir austan. Hlutirnir eiga það sameiginlegt að vera endurgerðir af gamalli vöru sem á sér ein- hverjar rætur á Austurlandi. Ömmukoll- urinn er smíðaður eftir fyrirmynd í eigu Sveinbjargar Hrólfsdóttur frá Reynihaga í Skriðdal, en Egilsstaðakollurinn var fram- leiddur frá árinu 1954 á trésmíðaverk- stæði Kaupfélags Héraðsbúa og var einnig skyldustykki í trésmíðum í Alþýðuskól- anum á Eiðum. Sigurður Ólafsson á Aðal- bóli í Hrafnkelsdal endurgerir nú Egils- staðakollinn úr Hallorms- staðarlerki í sam- vinnu við Epal. Gamla góða spýtujólatréð sem margir þekkja hefur Eik á Miðhúsum nú framleitt undanfarið hálft ár og er það til sölu á sýningunni. Eik á Miðhúsum fram- leiðir einnig endurgerð af silfurhring frá víkingaöld sem fannst við Þórarinsstaði við Seyðisfjörð árið 1999. „Þessar vörur eru allar komnar í framleiðslu. Við opnum vefverslun síðar í nóvember þar sem þær munu allar fást auk fleiri vara,“ segir Lára. Slóðin á vefverslunina er www.hus- handanna.is. Sýningin stendur til og með 20. nóvem- ber. AUSTFIRSK SAMVINNA ÍSLENSKT LISTHANDVERK Egilsstaðakollur, Ömmukollur og gamla góða spýtujólatréð eiga uppruna sinn að rekja til Austfjarða. Endurgerðir á þessum munum eru nú til sýnis á Skörinni. EGILSSTAÐAKOLLURINN var skyldustykki í trésmíðum í Alþýðu- skólanum á Eiðum á árum áður. Sigurður Ólafsson á Aðalbóli í Hrafnkelsdal endurgerir nú kollinn úr Hallormsstaðarlerki í samvinnu við Epal. GAMLA GÓÐA JÓLA- TRÉÐ Eik á Miðhúsum framleiðir tréð og er það til sölu á sýningunni. ÖMMUKOLLURINN Endurgerð af þessum kolli er nú í framleiðslu til að skapa minn- ingar hjá ömmum nútímans. Ömmukollurinn fæst í Kraumi. FRÁ VÍKINGAÖLD Endurgerð af hring sem fannst við Þórarinsstaði við Seyð- isfjörð árið 1999. Eik á Miðhúsum fram- leiðir hringinn. ■ Sigurlaug M. Jónasdóttir er þekktur matgæðingur. Hún er með vinsæla þætti á RÚV um matargerð. Hvað ert þú helst að fást við þessa dagana? Fyrir utan mína sérlega skemmtilegu vinnu hjá Ríkisútvarpinu þar sem ég vakna snemma á morgnana og sé um morgunþátt Rásar eitt og bragðgóðan matarþátt á laugardögum er ég að bíða eftir fyrsta barnabarninu okkar, svo það er mikill spenningur á heimilinu og lítið gert annað en að tala um tilvonandi fjölgun hjá syni okkar. Stendur þú í einhverjum framkvæmd- um á heimilinu eða hefur nýlokið við? Flokkast skúringar undir framkvæmdir? Ertu dugleg að breyta og bæta heima við? Ég er nú frekar íhaldssöm og er sátt við heimili okkar eins og það er en ég er dugleg að skreyta það með ferskum blóm- um, set kerti í nýpússaða koparstjaka og kveiki á reykelsi og þá er ég nú bara sátt. Er einhver hlutur sem þig langar sér- staklega mikið í þessa dagana? Nei, svo sem ekki, þurfti að dvelja lengi við þessa spurningu og hugsa mjög mikið svo það er eflaust ekki neitt sem mig langar í. Jú annars, ef ég á að segja alveg eins og er þá dauðlangar mig í Bestlight-lampa. Hver er uppáhaldshluturinn þinn í eldhúsinu? Sítrónupressan mín frá Philippe Starck, dásamleg hönnun. Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn á heimilinu? Fyrir utan eldhúsið mitt er gott að setjast í ruggustólinn hans Sveins Kjarval og horfa út um gluggann yfir til uppáhaldsnágranna okkar. MATGÆÐINGUR Silla er mikill matgæðingur og hefur ástríðu fyrir matargerð. handhægi D-vítamín úðinn, hámarksnýting Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Eru ekki allir örugglega að fá sér D vítamín núna? 3 mánaða skammtur www.gengurvel.is hlustið trúið hlýðið HARMA GEDDON FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir HEIMA VIÐ | SIGURLAUG M. JÓNASDÓTTIR VERÐUR BRÁÐUM AMMA JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS KEMUR ÚT 27. NÓVEMBER Meðal efnis í blaðinu: Jólaljósin, kökur, sætindi, skraut, föndur, matur, borðhald, jólasiðir og venjur. Atli Bergmann atlib@365.is 512 5457 Benedikt Freyr Jónsson benni@365.is 512 5411 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is 512 5427 Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is 512 5432 Bókið auglýsingar tímanlega:

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.