Fréttablaðið - 05.11.2012, Side 13

Fréttablaðið - 05.11.2012, Side 13
MÁNUDAGUR 5. nóvember 2012 13 Ég heyrði byrjunina á upp-gjöri vikunnar í útvarps- þætti nú fyrir helgi. Einn var spurður að því hvað honum hefði nú fundist eftirtektar- verðast í nýliðinni viku og svar- aði eitthvað á þessa leið: „Það var verið að taka upp tvo nýja kafla í aðildarviðræðum Íslend- inga og Evrópusambandsins …“ Smá þögn og maður sá fyrir sér furðu lostin andlit viðmælenda þar til hann losaði um spennuna á hárréttu augnabliki: „Djók!“ Fór svo að tala um hluti sem skipta máli: landsleikinn og veðrið. Allir hlógu – líka ég. Það var svo fyndið hvernig hann sagði það. Og ekkert gat verið jafn innilega óáhugavert og fréttir af þessum viðræðum við bandalag sem færustu lesendur þjóðarsálarinnar segja að við munum aldrei nokkurn tímann ganga í. Manni skilst að nú fari aðal- samningamaður Íslendinga um landið og kynni fólki stöðuna í þessum viðræðum. Ætli það séu ekki hálfgerð svipugöng? Um leið og hann byrjar að tala fara allir að halda fyrir eyrun og æpa. Það má enginn heyra það sem hann kann að hafa að segja. Það má ekki byggja Evrópu- umræðuna á staðreyndum. Það má alls ekki komast að því hvað aðild að ESB gæti þýtt fyrir lífskjör á Íslandi. Hætta skal leik … Andstæðingar aðildar Íslands að Evrópusambandinu vilja ekki ljúka viðræðum heldur hætta þeim. Þeir vilja koma í veg fyrir að niðurstaða fáist úr viðræðunum og kosið verði um aðild í kjölfar þess. Ein skýring er langsamlega nærtækust á þessari afstöðu: Andstæð ingar aðildar óttast að aðild verði frekar samþykkt í kosningum um niðurstöður aðildarvið- ræðna en kosningum þar sem enginn veit neitt um neitt – þeir vilja ekki að neinn viti neitt um neitt. Þeir vilja að við rífumst á grundvelli þess sem við höldum, okkur minnir, okkur finnst, við óttumst, einhver sagði að ein- hver hefði sagt. Þeir vilja að við rífumst um grundvöllinn. Þeir vilja að við rífumst. Þeir deila og drottna. Við deilum og brotnum. Þeir telja líklegra að mál- staður sinn sigri viti þjóðin ekki hvaða kostir bjóðast með aðild að Evrópusambandinu. Þeir telja að eftir því sem fólk viti meira um það hvað aðild að ESB táknar, þeim mun líklegra sé það til að kjósa þá aðild. Væru þeir vissir um að þjóðin myndi hafna aðild að undan- gengnum samningum – á grund- velli þekkingar – myndu þeir vilja þann kost frekar og þar með fá málið endanlega út úr heiminum, slíkt rothögg sem það væri fyrir stuðningsmenn aðildar að ESB. Og þar með geta Íslendingar haldið áfram að segja Evrópu- sambandinu að það geti sjálft átt sinn helvítis tjakk. Á færibandi laganna Árum saman hefur Evrópuum- ræðan hér á landi snúist um það hvort hún eigi að fara fram – hvort hún sé „á dagskrá“, jafn einkennilega og það nú hljómar hjá þjóð sem hefur lönd í Evr- ópu sem helsta markað fyrir varning sinn, dregur dám af evrópsku stjórnarfari og stjórn- sýsluvenjum, tengist Evrópu djúprættum menningarlegum böndum – er í Evrópu – og fær stóran lagapakka á hverju ári frá Brussel til samþykktar eða samþykktar. Margir vilja frekar að Íslendingar standi álengdar bölvandi og þiggjandi en að taka þátt í því að móta þær reglur og viðmiðanir sem okkur er gert að starfa eftir með þeim lögum sem hingað berast þjóðþinginu og það staðfestir eins og annars hugar verkafólk við færiband. Gagnvart ESB eru Íslendingar á köflum eins og einstaklingur sem haldinn er félagsfælni og finnur margar mislangsóttar ástæður fyrir því að mæta ekki í boð sem hann þó langar svo- lítið til að sækja. Hann minnist þess þegar hann fór síðast – í kjölfar EES-samningsins – og hann drakk yfir sig og sló alla um pening og keypti fyrir hann öll þau fyrirtæki sem á vegi hans urðu … Vera má að mörgum hér þyki það þjóðleg dyggð að greiða sturlaða vexti, líti á krónuna sem ámóta þjóðargersemi og lundann, vilji að Osta- og smjör- salan sjái bara um ostana og Holtakjúklingur um kjötið, Mjólkursamsalan um mjólkur- vörurnar og Baugur um verð- lagið. Og íslenski kvótafurstinn sem á allt og má allt og vill fá allt með afskriftum eigi bara að stjórna hér efnahagsmálum eins hann hefur fengið að gera síðan gengisfellingin var fundin upp handa honum. Vera má að margir séu andvígir betri lífs- kjörum því þau geri þjóðina deiga – það séu aðrir hlutir sem skipti máli – en er það virkilega jafn útbreitt viðhorf og ætla mætti af umræðum? Furðu lítið er talað um lífskjör almennings þegar þetta banda- lag ber á góma, hvort aðild að því sé til þess fallin að bæta þau, sem ætti þó að vera meginat- riði umræðunnar. Þeir hlutir sem skipta máli. Við fáum þeim mun meira að heyra lýsingar á sambandinu sem eins konar nasistafélagsskap og makríls- morðingjum; að ógleymdum tár- votum bollaleggingum um full- veldisframsal sem fyrir löngu átti sér stað með aðildinni að EES. En á meðan við erum svona áhugalaus um lífs kjörin – sjálf- stætt fólk – og viljum frekar sá í akur óvinar okkar, þá er hættan sú að unga fólkið okkar, hæfileikafólkið, barnafólkið, uppbyggingar fólkið, taki sig upp með búslóð sína og hreinlega gangi sjálft í Evrópusambandið eftir landganginum út úr flug- vélunum. M AT VÆL ALANDIÐ ÍSLAND FJÁRSJÓÐUR FRAMTÍÐAR M AT VÆL ALANDIÐ ÍSL A N D FJÁRSJÓ ÐUR FR AMTÍÐAR HÓTEL SÖGU ÞRIÐJUDAGINN 6. NÓVEMBER KL. 12:30-16:00 Aðgangur er ókeypis Skráning á vefnum si.is. Staðsetning: Hótel Saga, 2. hæð, salurinn Katla. RÁÐSTEFNA UM MATVÆLA- FRAMLEIÐSLU Á ÍSLANDI Kl. 12:30 Skráning og hádegishressing Hvernig framleiðum við meiri og betri mat? Daði Már Kristófersson, auðlindahagfræðingur Nýsköpun og aukin verðmæti Aukin verðmætasköpun í sjávarútvegi – Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis Íslensk jarðrækt – nýir möguleikar – Finnbogi Magnússon, landbúnaðartæknifræðingur Markaðssetning og vörumerkjastjórnun í landbúnaði - Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri SFG Gróska í smáframleiðslu matvæla - Sigrún Elsa Smáradóttir, fagstjóri hjá Matís Íslenskur matur, ferðaþjónusta og útflutningur Ísland sem vörumerki – skyr.is – Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS Matarmenning og ferðaþjónusta – Jón Baldur Þorbjörnsson, Ísafold travel Að metta milljón ferðamenn – Friðgeir Ingi Eiríksson, Hótel Holt/Viðey Íslensk matarmenning á alþjóðavettvangi - Guðný Káradóttir, markaðsstjóri hjá Íslandsstofu Eftir erindin verða pallborðsumræður þar sem m.a. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðherra, tekur þátt. Dagskrá: Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Hlutir sem skipta máli Andstæðingar aðildar óttast að aðild verði frekar samþykkt í kosningum um niðurstöður aðildarviðræðna en kosningum þar sem enginn veit neitt um neitt – þeir vilja ekki að neinn viti neitt um neitt. Þeir vilja að við rífumst á grundvelli þess sem við höldum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.