Fréttablaðið - 05.11.2012, Qupperneq 13
MÁNUDAGUR 5. nóvember 2012 13
Ég heyrði byrjunina á upp-gjöri vikunnar í útvarps-
þætti nú fyrir helgi. Einn var
spurður að því hvað honum
hefði nú fundist eftirtektar-
verðast í nýliðinni viku og svar-
aði eitthvað á þessa leið: „Það
var verið að taka upp tvo nýja
kafla í aðildarviðræðum Íslend-
inga og Evrópusambandsins …“
Smá þögn og maður sá fyrir sér
furðu lostin andlit viðmælenda
þar til hann losaði um spennuna
á hárréttu augnabliki: „Djók!“
Fór svo að tala um hluti sem
skipta máli: landsleikinn og
veðrið.
Allir hlógu – líka ég. Það
var svo fyndið hvernig hann
sagði það. Og ekkert gat verið
jafn innilega óáhugavert og
fréttir af þessum viðræðum við
bandalag sem færustu lesendur
þjóðarsálarinnar segja að við
munum aldrei nokkurn tímann
ganga í.
Manni skilst að nú fari aðal-
samningamaður Íslendinga um
landið og kynni fólki stöðuna í
þessum viðræðum. Ætli það séu
ekki hálfgerð svipugöng? Um
leið og hann byrjar að tala fara
allir að halda fyrir eyrun og
æpa. Það má enginn heyra það
sem hann kann að hafa að segja.
Það má ekki byggja Evrópu-
umræðuna á staðreyndum. Það
má alls ekki komast að því hvað
aðild að ESB gæti þýtt fyrir
lífskjör á Íslandi.
Hætta skal leik …
Andstæðingar aðildar Íslands
að Evrópusambandinu vilja
ekki ljúka viðræðum heldur
hætta þeim. Þeir vilja koma í
veg fyrir að niðurstaða fáist úr
viðræðunum og kosið verði um
aðild í kjölfar þess. Ein skýring
er langsamlega nærtækust á
þessari afstöðu: Andstæð ingar
aðildar óttast að aðild verði
frekar samþykkt í kosningum
um niðurstöður aðildarvið-
ræðna en kosningum þar sem
enginn veit neitt um neitt – þeir
vilja ekki að neinn viti neitt um
neitt. Þeir vilja að við rífumst á
grundvelli þess sem við höldum,
okkur minnir, okkur finnst, við
óttumst, einhver sagði að ein-
hver hefði sagt. Þeir vilja að
við rífumst um grundvöllinn.
Þeir vilja að við rífumst. Þeir
deila og drottna. Við deilum og
brotnum.
Þeir telja líklegra að mál-
staður sinn sigri viti þjóðin ekki
hvaða kostir bjóðast með aðild
að Evrópusambandinu. Þeir
telja að eftir því sem fólk viti
meira um það hvað aðild að ESB
táknar, þeim mun líklegra sé
það til að kjósa þá aðild.
Væru þeir vissir um að þjóðin
myndi hafna aðild að undan-
gengnum samningum – á grund-
velli þekkingar – myndu þeir
vilja þann kost frekar og þar
með fá málið endanlega út úr
heiminum, slíkt rothögg sem
það væri fyrir stuðningsmenn
aðildar að ESB.
Og þar með geta Íslendingar
haldið áfram að segja Evrópu-
sambandinu að það geti sjálft
átt sinn helvítis tjakk.
Á færibandi laganna
Árum saman hefur Evrópuum-
ræðan hér á landi snúist um það
hvort hún eigi að fara fram –
hvort hún sé „á dagskrá“, jafn
einkennilega og það nú hljómar
hjá þjóð sem hefur lönd í Evr-
ópu sem helsta markað fyrir
varning sinn, dregur dám af
evrópsku stjórnarfari og stjórn-
sýsluvenjum, tengist Evrópu
djúprættum menningarlegum
böndum – er í Evrópu – og fær
stóran lagapakka á hverju ári
frá Brussel til samþykktar eða
samþykktar. Margir vilja frekar
að Íslendingar standi álengdar
bölvandi og þiggjandi en að taka
þátt í því að móta þær reglur og
viðmiðanir sem okkur er gert
að starfa eftir með þeim lögum
sem hingað berast þjóðþinginu
og það staðfestir eins og annars
hugar verkafólk við færiband.
Gagnvart ESB eru Íslendingar
á köflum eins og einstaklingur
sem haldinn er félagsfælni og
finnur margar mislangsóttar
ástæður fyrir því að mæta ekki
í boð sem hann þó langar svo-
lítið til að sækja. Hann minnist
þess þegar hann fór síðast – í
kjölfar EES-samningsins – og
hann drakk yfir sig og sló alla
um pening og keypti fyrir hann
öll þau fyrirtæki sem á vegi
hans urðu …
Vera má að mörgum hér þyki
það þjóðleg dyggð að greiða
sturlaða vexti, líti á krónuna
sem ámóta þjóðargersemi og
lundann, vilji að Osta- og smjör-
salan sjái bara um ostana og
Holtakjúklingur um kjötið,
Mjólkursamsalan um mjólkur-
vörurnar og Baugur um verð-
lagið. Og íslenski kvótafurstinn
sem á allt og má allt og vill fá
allt með afskriftum eigi bara
að stjórna hér efnahagsmálum
eins hann hefur fengið að gera
síðan gengisfellingin var fundin
upp handa honum. Vera má að
margir séu andvígir betri lífs-
kjörum því þau geri þjóðina
deiga – það séu aðrir hlutir sem
skipti máli – en er það virkilega
jafn útbreitt viðhorf og ætla
mætti af umræðum?
Furðu lítið er talað um lífskjör
almennings þegar þetta banda-
lag ber á góma, hvort aðild að
því sé til þess fallin að bæta þau,
sem ætti þó að vera meginat-
riði umræðunnar. Þeir hlutir
sem skipta máli. Við fáum þeim
mun meira að heyra lýsingar
á sambandinu sem eins konar
nasistafélagsskap og makríls-
morðingjum; að ógleymdum tár-
votum bollaleggingum um full-
veldisframsal sem fyrir löngu
átti sér stað með aðildinni að
EES. En á meðan við erum svona
áhugalaus um lífs kjörin – sjálf-
stætt fólk – og viljum frekar
sá í akur óvinar okkar, þá er
hættan sú að unga fólkið okkar,
hæfileikafólkið, barnafólkið,
uppbyggingar fólkið, taki sig upp
með búslóð sína og hreinlega
gangi sjálft í Evrópusambandið
eftir landganginum út úr flug-
vélunum.
M
AT
VÆL
ALANDIÐ
ÍSLAND
FJÁRSJÓÐUR
FRAMTÍÐAR
M
AT
VÆL
ALANDIÐ
ÍSL A N D
FJÁRSJÓ ÐUR
FR AMTÍÐAR
HÓTEL SÖGU
ÞRIÐJUDAGINN 6. NÓVEMBER
KL. 12:30-16:00
Aðgangur er ókeypis
Skráning á vefnum si.is.
Staðsetning: Hótel Saga, 2. hæð,
salurinn Katla.
RÁÐSTEFNA UM
MATVÆLA-
FRAMLEIÐSLU
Á ÍSLANDI
Kl. 12:30 Skráning og hádegishressing
Hvernig framleiðum við meiri og betri mat?
Daði Már Kristófersson, auðlindahagfræðingur
Nýsköpun og aukin verðmæti
Aukin verðmætasköpun í sjávarútvegi
– Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis
Íslensk jarðrækt – nýir möguleikar
– Finnbogi Magnússon, landbúnaðartæknifræðingur
Markaðssetning og vörumerkjastjórnun í landbúnaði
- Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri SFG
Gróska í smáframleiðslu matvæla
- Sigrún Elsa Smáradóttir, fagstjóri hjá Matís
Íslenskur matur, ferðaþjónusta og útflutningur
Ísland sem vörumerki – skyr.is
– Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri MS
Matarmenning og ferðaþjónusta
– Jón Baldur Þorbjörnsson, Ísafold travel
Að metta milljón ferðamenn
– Friðgeir Ingi Eiríksson, Hótel Holt/Viðey
Íslensk matarmenning á alþjóðavettvangi
- Guðný Káradóttir, markaðsstjóri hjá Íslandsstofu
Eftir erindin verða pallborðsumræður þar sem m.a.
Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðherra, tekur þátt.
Dagskrá:
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Í DAG
Hlutir sem
skipta máli
Andstæðingar aðildar óttast að aðild
verði frekar samþykkt í kosningum
um niðurstöður aðildarviðræðna en
kosningum þar sem enginn veit neitt um neitt – þeir
vilja ekki að neinn viti neitt um neitt. Þeir vilja að við
rífumst á grundvelli þess sem við höldum.