Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.11.2012, Blaðsíða 4
5. nóvember 2012 MÁNUDAGUR4 VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 21° 17° 10° 6° 10° 10° 7° 7° 27° 7° 22° 8° 27° 4° 11° 25° 5° Á MORGUN 5-13 m/s, hvassara syðst. MIÐVIKUDAGUR 3-8 m/s. 5 5 6 7 7 4 8 9 8 8 2 13 10 11 9 12 10 9 3 8 7 8 0 -1 -2 3 5 -1 -2 -2 1 2 BREYTINGAR Veðrið tekur nú snöggum breyt- ingum en í dag verðum við í nokkuð mildri suðvestanátt með vætu en snýst í norðanátt með kólnandi veðri og éljum norðan til í kvöld. Austanátt með slyddukenndri úrkoma og sums staðar snjókoma syðra á morgun. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður BANDARÍKIN Frambjóðendurnir tveir í bandarísku forsetakosningunum á morgun, Barack Obama Bandaríkja- forseti og Mitt Romney, frambjóð- andi repúblikana, mælast með nær hnífjafnt fylgi í tveimur skoðana- könnunum sem birtar voru í gær. Obama nýtur stuðnings 48 prósenta líklegra kjósenda í könnun frétta- stofu NBC-sjónvarpsstöðvarinnar og Wall Street Journal en 47 pró- sent styðja Romney. Í könnun ABC- sjónvarpstöðvarinnar og Washing- ton Post, sem einnig var birt í gær, nýtur hvor frambjóðandi fylgis 48 prósenta aðspurðra. Í hvorri könnun voru 1.475 lík- legir kjósendur spurðir hvorn fram- bjóðandann þeir styddu. Skekkju- mörk eru plús eða mínus 2,55 prósent. Frambjóðendurnir ljúka kosn- ingabaráttu sinni með látum í dag. Obama fær rokkarann Bruce Springsteen í lið með sér á fundum í Madison í Wisconsin, Columbus í Ohio, þar sem rapparinn Jay-Z slæst í hópinn, og í Des Moines í Iowa. Forsetinn og forsetafrúin halda síðan til Chicago þar sem þau verða á kjördag. Romney verður enn önnum kafnari í dag því hann heldur fundi í Sanford í Flórída, Lynch burg og Fairfax í Virginíu, Columbus í Ohio og Manchester í New Hampshire. Á kjördag verður hann svo í Boston. - fsb Spennan í hámarki fyrir bandarísku forsetakosningarnar á morgun: Hnífjafnir í nýjustu könnunum MITT ROMNEY BARACK OBAMA SVÍÞJÓÐ Í Söderhamn í Svíþjóð hefur sveitarfélagið og vinnumála- stofnunin gripið til óvenjulegra ráða til þess að draga úr atvinnu- leysi ungmenna. Þau fá styrk til þess að flytja til Noregs. Eftir mánaðar undirbúnings- tíma fá ungmennin greidda ferð til Óslóar og frítt húsnæði í einn mánuð, að því er segir í frétt sænska ríkisútvarpsins. Þegar ungmennin eru komin til Noregs fá þau aðstoð frá starfsmanni sam- takanna Nordjobb. Um 100 ung- menni frá Söderhamn hafa þegar farið til Noregs og fengu flest strax vinnu. -ibs Nýtt úrræði í Svíþjóð: Atvinnulaus ungmenni send til Noregs NOREGUR Þegar tæp mínúta var í lendingu farþegavélar Widerøe- flugfélagsins í Mosjøen í Noregi í síðustu viku fékk flugstjórinn skipun frá flugfélaginu um að snúa við til Værnes í Þrándheimi. Kynningarfulltrúi félagsins segir að þremur mínútum fyrir lendingu hafi uppgötvast að vinnu- tíma áhafnarinnar hafi verið að ljúka. Vélin hefði því orðið að vera um kyrrt í Mosjøen þar sem engin varaáhöfn var til að taka við. Þar með hefði orðið að aflýsa öðrum ferðum vélarinnar. -ibs Skipun til flugstjóra í Noregi: Sneru við vél í lok vinnudags VEÐUR Björgunarsveit var kölluð út í Vestmannaeyjum í fyrrinótt vegna veðurs. Þar fauk klæðning utan af húsi og var hún negld föst að nýju. Vonskuveður hefur verið um mestallt land um helgina og voru björgunarsveitir að störfum á fjórum stöðum á landinu á laugar- dag; á Egilsstöðum, Akureyri, Sauðárkróki og Akranesi. Aðstoða þurfti fólk í ófærð, koma mat til eldri borgara og fleira. Mjög mikil ofankoma var austan- lands um helgina og flestir fjall- vegir ófærir. - sh Björgunarsveitir kallaðar út: Veðurhamur olli vandræðum KLÆÐNING AF Í Eyjum þurfti að festa á klæðningu aftur. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON GENGIÐ 03.11.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 225,2689 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,24 126,84 203,27 204,25 162,54 163,44 21,785 21,913 22,126 22,256 18,886 18,996 1,5712 1,5804 193,56 194,72 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR STJÓRNSÝSLA Sorpa segist ekki sætta sig við boðaða ákvörðun Umhverfisstofnunar um að aðeins verði veitt nýtt starfsleyfi til næstu tveggja ára fyrir urðunar- stöð fyrirtækisins á Álfsnesi. Sorpa vill að leyfið gildi í tólf ár. Umhverfisstofnun segir urð- unarstaðinn ekki í samræmi við skipulagsáætlanir á Álfsnesi. Áður en stofnunin tekur ákvörðun sína er Sorpu gefið ráðrúm til andmæla. Athugasemdir Sorpu eru í meginatriðum þríþættar: „Í fyrsta lagi að Umhverfis- stofnun hafi ekki heimild að lögum til að byggja íþyngjandi ákvörðun um verulega stuttan gildistíma starfs leyfis á skipu- lagslegum forsendum enda feli það í sér brot gegn lög- mætis- og réttmætisreglu stjórnsýslu réttarins, í öðru lagi að ekki rúmist innan vald- sviðs Umhverfis stofnunar að framfylgja skipulags legum ákvörð unum og í þriðja lagi að stofnunin misskilji eðli og efni þeirra skipulagsáætlana sem í gildi eru fyrir urðunarstaðinn á Álfsnesi,“ segir Ingi B. Poul- sen, lögmaður Sorpu, í svari til Umhverfisstofnunar. Að sögn lögmannsins felur boðuð ákvörðun í sér brot á megin reglum stjórnsýsluréttar. Þótt stofnunin geti ákveðið lengd starfsleyfa hafi myndast stjórn- sýsluvenja um að þau séu gefin út til tólf ára. Þá hafi Umhverfis- stofnun fram til þessa veitt starfsleyfi á lóðum sem ekki hafa verið deiliskipulagðar og nefnir dæmi þar um. „Það hefur því ekki truflað útgáfu starfsleyfa hingað til að meðferð skipulagsáætlana hafi ekki verið í samræmi við lög. Gefur því augaleið að ætli stofnun in nú að setja efnislegt inntak í skilyrði fyrir starfsleyfi þá brýtur hún gegn jafnræðis- reglu,“ segir í andmælum Sorpu. Þá segir lögmaðurinn að komi einhvern tíma til þess að land- notkun á Álfsnesi verði í and- stöðu við deiliskipulag sé ljóst að réttbært stjórnvald til að takast á við þá stöðu sé skipu- lags- og byggingar nefnd Reykja- víkurborgar, og eftir atvikum Skipulagsstofnun, en ekki Umhverfisstofnun. „Verði niðurstaða Umhverfis- stofnunar sú að binda gildis- tíma starfsleyfis Sorpu fyrir urðunar staðinn á Álfsnesi við tvö ár í samræmi við óljósar yfirlýs ingar í skipulagsáætlun- unum mun Sorpa láta reyna á þá ákvörðun fyrir æðra stjórnsýslu- stigi og dóm stólum ef þurfa þykir og mun eftir atvikum gera kröfu um skaðabætur vegna þess tjóns sem ákvörðunin fyrirsjáanlega hefur í för með sér.“ segir lög- maður Sorpu. gar@frettabladid.is Sorpa boðar dómsmál verði starfsleyfið á Álfsnesi stytt Umhverfisstofnun vill takmarka nýtt starfsleyfi urðunarstöðvar Sorpu á Álfsnesi við tvö ár þannig að það renni út í árslok 2014. Sorpa segir slíka ákvörðun ekki byggja á lögum og boðar dómsmál með bótakröfum. Það hefur því ekki truflað útgáfu starfs- leyfa hingað til að meðferð skipulagsáætlana hafi ekki verið í samræmi við lög. INGI B. POULSEN LÖGMAÐUR SORPU URÐUNARSTÖÐIN Á ÁLFSNESI Umhverfisstofnun vill ekki gefa út nýtt starfsleyfi fyrir urðunarstöðina lengur en til ársloka 2014. Sorpa segir hins vegar gríðarlega hagsmuni felast í því að starfsleyfið sé til langs tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.