Fréttablaðið - 09.11.2012, Síða 23
Taílenskur kjúklingaréttur með
rauðu karríi og kókossósu
Hráefni
4 kjúklingabringur, skornar í strimla
Olía til steikingar
100 ml kjúklingasoð
400 ml kókosmjólk
4 tsk. rautt karrí
Smá salt
2 stk. rauður chili-pipar, grófsaxaður
1 búnt kóríander, fínsaxað
1 laukur, skorinn í sneiðar
3 gulrætur, saxaðar í sneiðar
Hitið wokpönnu, hellið olíu á hana og
steikið kjúklingabringurnar í 4 mín.
Kryddið með karríi og salti og steikið í
2 mín. Bætið grænmetinu á pönnuna
og brúnið. Hellið kókosmjólkinni og
soðinu út í og sjóðið niður í 5 mín. Að
lokum er kóríander bætt út í. Gott að
bera fram með hrísgrjónum.
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarpsþátt-inn Eldað með Holta á ÍNN. Þar
heimsækir hann marga af færustu kokkum
landsins og fær þá til að elda ljúffenga rétti
úr Holta-kjúklingi. Í dag er það matreiðslu-
maðurinn Sturla Birgisson sem Úlfar heim-
sækir. Sturla rekur veislu- og fyrirtækja-
þjónustuna Heitt og kalt og er meðlimur
Bocuse d‘Or-akademíunnar. Hér færir
hann okkur uppskriftir að tveimur réttum;
annars vegar er það taílenskur kjúklinga-
réttur með rauðu karríi og kókossósu og
hins vegar steiktar kjúklingabringur með
sveppafylltu ravíólíi og skessujurtarpestói.
Hægt er að fylgjast með Sturlu elda þessa
girnilegu rétti í kvöld klukkan 20.30 á sjón-
varpsstöðinni ÍNN. Þættirnir verða svo
endursýndir yfir helgina. Einnig er hægt að
horfa á þá á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með
Holta á ÍNN. Á næstunni mun hann heimsækja færustu kokka landsins og fá
þá til að elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
Steiktar kjúklingabringur
með sveppafylltu ravíólíi og
skessujurtar pestói
4 kjúklingabringur, heilar eða skornar
í strimla
400 g sveppafyllt ravíólí,fæst ferskt
í Hagkaup
Olía til steikingar
1 askja sveppir, saxaðir
250 ml rjómi
1 askja konfekttómatar, skornir í
tvennt
Salt og svartur pipar
Ferskur parmesanostur (magn fer
eftir smekk) til að setja ofan á
25 g parmesanostur rifinn
Skessujurtapestó
50 g skessujurt (beint úr garðinum)
Salt
100 ml ólífuolía
3 hvítlauksrif
Allt maukað saman.
Ravíólí soðið í saltvatni í 5 mínútur.
Hitið pönnu, bætið olíu á, kryddið kjúk-
linginn með salti og pipar og smyrjið
smá pestói yfir. Steikið í 4 mín. á hvorri
hlið. Bætið sveppunum á pönnuna og
steikið. Hellið rjóma yfir og sjóðið í 4
mínútur. Að lokum er ravíólíinu bætt
út í og soðið í 1 mínútu. Kryddað með
salti og pipar eftir smekk. Setjið á disk
og bætið meira pestói á kjúklinginn og
parmesan yfir það.
KEISARAKONSERT Í HÖRPU
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari flytur Keisarakonsertinn
eftir Beethoven í Eldborgarsal Hörpu í kvöld kl. 19.30. Þetta er
síðasti píanókonsertinn sem Beethoven samdi. Þessi tignar-
legi konsert gerir miklar kröfur til einleikarans. Keisara-
konsertinn var saminn árið 1809.
HEIMILISTÆKI