Fréttablaðið - 09.01.2013, Page 13

Fréttablaðið - 09.01.2013, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 9. janúar 2013 | SKOÐUN | 13 Ágæti innanríkisráð- herra. Á Stígamótum finnst okkur við hæfi á áramótunum að hnippa í þig og benda á að kjör- tímabilið er að renna út. Enginn veit hver mun fara með húsbónda valdið í þínu ráðuneyti frá og með sumrinu. Það er enn tími til þess að kippa í lag ýmsu því sem betur mætti fara og okkur langar að minna þig á nokkrar uppá stungur sem við höfum áður stungið að þér. Vændiskaup og klámbúllur Það var á vakt þessarar ríkis- stjórnar árið 2009 sem sá metn- aðarfulli árangur náðist að banna kaup á vændi og í mars árið 2010 voru sett lög sem tryggja áttu lokun klámbúlla í landinu. Fyrir- myndarlög sem endurspegla skilning á tengslum vændis, kláms og ofbeldis og sem vakið hafa aðdáun og eftirtekt kvenna- hreyfingarinnar um allan heim. Það sem er erfiðara að útskýra fyrir umheiminum er að fyrir- myndarlögunum er ekki beitt. Hér eru enn starfræktar klámbúllur og á Stígamótum hafa of margar konur leitað sér hjálpar vegna grófs kynferðisofbeldis sem átt hefur sér stað í tengslum við slíka staði. Stígamót koma ekki auga á nokkrar þær afsakanir sem hindra ættu lokun staðanna. Þrátt fyrir þann anda laganna að vændi sé í raun ofbeldi og þrátt fyrir að forsvarsmenn lögreglu viðurkenni að vændi og mansal þrífist á Íslandi virðist ríkja þegj- andi samkomulag um að hreyfa ekki við umfangsmikilli vændis- starfsemi hér á landi. Dómar í vændiskaupamálum eru teljandi á fingrunum og féllu flestir árið 2010 í einu máli, málinu gegn Catalinu. Fjölmiðlar hafa ítrekað birt augljósar vændisauglýsingar og komist upp með það. Netsíðan Einkamál.is þar sem umfangs- mikil vændisstarfsemi þrífst er látin óáreitt. Forsvarsmenn lögreglumanna á Íslandi hafa kvartað undan því í fjöl miðlum að það sé svo erfitt að fram- fylgja lögunum að það sé bara ekki gerandi. Undarlegt viðhorf þegar það er borið saman við 334 kærur fyrir vændiskaup í Noregi árið 2011 þar sem lögin eru nokk- urn veginn samhljóða. Þar í landi er talið að tölurnar séu fyrst og fremst mælikvarði á störf lögregl- unnar. Undarlegt líka þegar rifjað er upp að aðgerðahópurinn Stóra systir fann á örskömmum tíma nöfn á 56 vændiskaupendum, 117 óskráða síma og 26 netföng og til- kynnti til lögreglu árið 2010. Það þarf lögreglumenn sem hafa það skilgreinda hlutverk að rannsaka vændi og mansal til þess að árangur náist. Til þess að svo megi verða þarf pólitísk for- ysta og lögreglan að forgangsraða þannig að fjármagn og mannafli nýtist. Á Stígamótum ætlum við ekki að taka þátt í samsæri þagn- arinnar. Við skorum á innanríkis- ráðherra að nota tímann vel fram að kosningum og sýna þann dug að sporna við umfangsmiklu vændi á Íslandi. Það er létt verk og þarft og í anda þeirra laga sem þessi ríkisstjórn setti. Sérstakur saksóknari og dómstóll? Innanríkisráðherra er þekktur fyrir aðdáunarverða baráttu sína fyrir mannréttindum. Þegar Nav- anetham Pillay, mannréttinda- fulltrúi SÞ, heimsótti Ísland fyrir örfáum árum sagði hún að helsta brotalömin í mannréttindamálum á Íslandi væri meðferð kynferðis- brotamála. Brotaflokkurinn er auðvitað erfiður, þar sem sjaldnast liggja fyrir játningar og vitnum er ekki til að dreifa. Fáir einstak- lingar treysta sér til þess að kæra og það er mikið brottfall mála hjá lögreglu, saksóknara og hjá dóm- stólum. Æpandi fá mál enda með dómi og við það er ekki hægt að una í landinu sem þykir best í heimi í jafnréttismálum. Við verðum að vera viss um að eins vel sé að verki staðið og hugsast getur. Þegar efnahagshrunið varð á Íslandi var augljóst að gera yrði sérstakt átak í rannsókn og með- ferð efnahagsbrotamála. Sett var á laggirnar embætti sérstaks sak- sóknara með sérþekkingu á mála- flokknum. Samkvæmt ársskýrslu ríkis- saksóknaraembættisins 2008 eru kynferðisbrot um 40-50% þeirra brota sem embættinu berast. Það væri verulega áhugavert að skoða það hvort koma ætti á laggirnar embætti sérstaks saksóknara og jafnvel sérstökum dómstól til þess að sinna kynferðisbrotamálunum sem við náum svo illa utan um. Þá þyrfti að þjálfa og sérmennta fólk til þess að sinna þessum málum. Hugmyndin er ekki úr lausu lofti gripin. Þegar vinstri stjórn tók við völdum á Spáni fyrir nokkrum árum tilkynnti þáverandi forsætis- ráðherra að kynbundið ofbeldi yrði forgangsmál stjórnarinnar og stóð við það. Sett var á laggirnar vara- ráðherraembætti sem eingöngu sinnti kynferðisbrotamálum og annað vararáðherraembætti sem sinnti jafnréttismálum. Embættin heyrðu undir velferðarráðherra. Þar var jafnframt sett á lagg- irnar embætti sérstaks saksókn- ara og sérstakur dómstóll dæmir í kynferðisbrotamálum, sem þar- lendir segja að hafi bætt ástandið til muna. Það má sækja hugmyndir til fleiri staða, til dæmis til Banda- ríkjanna og Írlands. Ágæti innanríkisráðherra. Á Stígamótum deilum við áhyggjum mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna. Við þykjumst vita að þú sættir þig ekki við að gróf mann- réttindabrot þrífist á Íslandi. Þú hefur völdin og aðstöðuna til þess að taka til hendi, við skorum á þig að gera það. Áskorun til innan- ríkisráðherra um aðgerðir gegn ofbeldi ➜ Fjölmiðlar hafa ítrekað birt augljósar vændisauglýsingar og komist upp með það. Netsíðan Einkamál. is þar sem umfangs- mikil vændisstarfsemi þrífst er látin óáreitt. Forsvarsmenn lög- reglu manna á Íslandi hafa kvartað undan því í fjöl- miðlum að það sé svo erfi tt að framfylgja lögunum að það sé bara ekki gerandi. Save the Children á Íslandi SAMFÉLAG Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar geta fasteignaeigendur: www.reykjavik.is Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í heimabönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum eða boðgreiðslur af greiðslukortum. Rafræn Reykjavík fyrir þig 5. febrúar Verð: 399.000.- Almennt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.