Fréttablaðið - 09.01.2013, Síða 16
9. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Kær móðir okkar,
GUÐFINNA KARLSDÓTTIR
á Knútsstöðum,
verður jarðsungin frá Neskirkju í Aðaldal
laugardaginn 12. janúar klukkan 14.00.
Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent
á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík.
Jónas og fjölskylda
Karlotta og fjölskylda
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
EBBA LOUISE ANDERSEN
Dalbraut 20, Reykjavík,
lést sunnudaginn 6. janúar. Jarðarförin fer
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þórir Albert Kristinsson
Unnur Kristinsdóttir Valdemar St. Jónasson
Franz Einar Kristinsson Martina Pötzsch
barnabörn og barnabarnabörn.
JÓN EINARSSON
vélstjóri,
Suðurlandsbraut 60, 108 Reykjavík,
áður Álfhólsvegi 35, Kópavogi,
lést fimmtudaginn 27. desember síðastliðinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HAUKUR GUÐBJARTSSON
Nesvegi 66, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund föstudaginn
4. janúar. Útförin fer fram frá Neskirkju við
Hagatorg mánudaginn 14. janúar kl. 13.00.
Stefanía Eiríka Kristjánsdóttir
Ásdís Hauksdóttir Emil Haraldsson
Karítas Hrönn Hauksdóttir
Kristján Hauksson
Sunneva Ósk Ayari Óskar Páll Hilmarsson
Benedikt Emilsson Ingunn Hrund Einarsdóttir
Haraldur Freyr Emilsson Ewerlöf Nina Ewerlöf
Eyrún Anna Emilsdóttir Nils Magnusson
Haukur Már Böðvarsson
Magnús Valur Böðvarsson
Benjamín Hrafn Böðvarsson
Samúel Örn Böðvarsson
Stefanía Eiríka Kristjánsdóttir Hlynur Gíslason
Eva Lind Kristjánsdóttir
og langafabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA GÍSLADÓTTIR
Skúlagötu 40b, Reykjavík,
sem lést á Droplaugarstöðum 1. janúar
2013 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 10. janúar, klukkan 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins, símar 543-3022 og 543-3025.
Ólafur Guðjónsson
Gísli Ólafsson Elísabet Solveig Pétursdóttir
Viðar Ólafsson Birna Björnsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir
Sveinn Ingi Ólafsson Gyða Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Föðursystir mín,
INA BILDSÖE-HANSEN
fædd Imsland,
lést 15. desember. Útför hennar hefur farið
fram í kyrrþey að hennar ósk. Starfsfólki á
Skjóli eru færðar sérstakar þakkir fyrir góða
umönnun síðastliðin ár.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Edda Rakel Imsland.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
SIGURBERGS HELGA
ELENTÍNUSSONAR
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra
umönnun.
Sara Jóhannsdóttir
Guðbrandur Sigurbergsson Þórdís Geirsdóttir
Jóhann Sigurbergsson Aldís Drífa Þórðardóttir
Kristín Sigurbergsdóttir Bóas Jónsson
Björgvin Sigurbergsson Heiðrún Jóhannsdóttir
Anna Jódís Sigurbergsdóttir Bjarki Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR
frá Hrísum í Fróðárhreppi,
síðast til heimilis á Höfða, Akranesi,
andaðist sunnudaginn 6. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Eygló Tómasdóttir Þorgils Sigurþórsson
Tómas Rúnar Andrésson
og ömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar,
HULDU ÞÓRISDÓTTUR
frá Blikalóni á Melrakkasléttu.
Sérstakar þakkir eru færðar Ásgerðarsystrum
í Oddfellow fyrir aðstoð og stuðning og
starfsfólki Kumbaravogs fyrir einstakt viðmót
og aðhlynningu.
Fyrir hönd aðstandenda,
börn hinnar látnu.
Elskulegur sonur minn, bróðir minn, faðir
og frændi,
SMÁRI ÖRN ÁRNASON
Grundargötu 20, Grundarfirði,
sem lést 20. desember, verður jarðsunginn
frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn
12. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hanna Guðný Ingibjörg Björgvinsdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BALDUR S. ÞORLEIFSSON
Hátúni 10b, Reykjavík,
lést á heimili sínu þann 29. desember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju 15. janúar
kl. 13.00.
Erla Baldursdóttir Ragnar Gunnlaugsson
Hrönn Baldursdóttir Sveinn Ernstsson
Berglind Baldursdóttir
Bjarni Baldursson Silja Björk Baldursdóttir
Hjördís Baldursdóttir Jóhann Viðar Margrímsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Yndisleg móðir okkar, dóttir, stjúpdóttir,
systir og barnabarn,
EVA LIND JÓNSDÓTTIR
lést að kvöldi 7. janúar sl. á Ríkisspítalanum
í Kaupmannahöfn. Útförin auglýst síðar.
Ísak Máni Jörgensen
Elisabeth Mai Jörgensen
Jón Þórarinsson Birna María Antonsdóttir
Jóhanna Magnúsdóttir
Jón Friðrik Snorrason
Jóhanna Vala Jónsdóttir
Þórarinn Ágúst Jónsson
Anton Örn Jónsson
Þorbjörg Jónsdóttir
Valgerður Kristjánsdóttir
Elskuleg móðir okkar,
KOLBRÚN NAKSZYNSKI
frá Akureyri,
lést eftir erfið veikindi á heimili dóttur sinnar
í Kolding í Danmörku fimmtudaginn 3. janúar.
Jarðsett verður í Kolding 10. janúar.
Díana Heiðarsdóttir
Hafþór Heiðarsson
Víkurfréttir á Suðurnesjum fagna 30 ára
afmæli um þessar mundir. Víkurfréttir
voru reyndar stofnaðar tveimur og hálfu
áru fyrr og voru í eigu prent smiðjunnar
Grágásar en hinn 7. janúar 1983 tók
félag í eigu Páls Ketilssonar og Emils
Páls Jónssonar við rekstri blaðsins.
Emil hvarf úr rekstrinum árið 1993 en
síðan þá hefur blaðið verið í eigu Páls,
sem jafnframt ritstýrir því, og Ásdísar
Bjarkar Pálmadóttur konu hans.
Páll rifjar upp þegar hann tók við
blaðinu ásamt Emil, þá aðeins liðlega
tvítugur að aldri.
„Ég var nýbúinn með stúdentinn og
hafði unnið í banka í eitt ár. Fjölmiðla-
veiran var hins vegar komin í blóðið,
ég hafði verið lausapenni á blaðinu frá
stofnun, og þegar tækifærið gafst til að
taka við því gat ég ekki annað en stokkið
á það. Og hér er ég enn og félagið á sömu
kennitölu, sem þykir ákveðið afrek á
Íslandi í dag,“ segir hann og hlær.
Í dag starfa um tíu manns hjá fyrir-
tækinu en auk Víkurfrétta heldur
félagið út golfsíðunni Kylfingur.is og
vinnur ýmis verkefni fyrir golfhreyf-
inguna. Víkurfréttir hafa getið sér orð
sem einn helsti bæjarmiðill landsins og
átt ófá skúbbin í gegnum tíðina.
„Við höfum alla tíð verið fréttaþyrst
og haft mikinn metnað fyrir því að veita
góða fréttaþjónustu,“ segir Páll. „Ég
held að lykillinn sé líka sá að við höfum
náð góðri tengingu við bæjarbúa og þeir
láta okkur oft vita þegar eitthvað er að
gerast. Þetta er líka sterkt fréttasvæði,
fimm sveitarfélög þar sem margt er um
að vera og svo er það auðvitað nálægðin
við Keflavíkurflugvöll og flugstöðina;
það er mikið fjör í kringum það, sérstak-
lega í seinni tíð.“
Undanfarin þrjátíu ár hafa verið
miklir umbrotatímar í fjölmiðlum og Páll
man tímanna tvenna. Hann segir netið
hafa verið mikla viðbót og settu Víkur-
fréttir vefsíðu á laggirnar þegar árið
1995. „Við leggjum sífellt meiri áherslu
á vefinn og reynum að vera í takt við þró-
unina á honum. Yngra fólkið er meira á
netinu, en þeir sem eldri eru kjósa enn
pappírinn. Fyrir vikið erum við eiginlega
að reka tvo miðla í einu, vef og blað, og
það þarf að sjóða góða súpu úr því. Við
reynum að vera með nýtt efni í hverju
blaði samhliða því að við skrifum nýjar
fréttir á vefinn á hverjum degi.“
En hvernig sér Páll næstu þrjátíu ár
fyrir sér?
„Það er afskaplega skemmtilegt að
vinna á fjölmiðlum enda er um hverfið í
sífelldri þróun. Við stefnum að minnsta
kosti á að halda ótrauð áfram á sömu
braut og og vera í framlínunni í fjöl-
miðlum hér á Suðurnesjum og jafnvel
þótt víðar væri leitað.“
bergsteinn@frettabladid.is
30 ár á sömu kennitölu
Fréttamiðillinn Víkurfréttir fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. Páll Ketilsson ritstjóri
segir blaðið búa að því að vera í góðum tengslum við íbúa og vera á góðu fréttasvæði.
ÁSDÍS OG PÁLL Á þriðjudag var starfsmönnum boðið upp á köku en á fimmtudag verður
slegið upp hófi með fyrrverandi og núverandi starfsfólki blaðsins. MYND/ HILMAR BRAGI BÁRÐARSON