Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 09.01.2013, Blaðsíða 26
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjaráðgjöf MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 20134 Hagvangur er fyrsta ráðn-ingarþjónustan sem tók til starfa á Íslandi og starfar á þremur meginsviðum; við ráðning- ar, ráðgjöf, greiningar og próf. Ráð- gjafar Hagvangs búa yfir mikilli reynslu og faglegri þekkingu hvað varðar ráðningar og önnur mann- auðsmál. Meirihluti ráðgjafanna hefur háskólamenntun á sviði sál- fræði, mannauðsstjórnunar og við- skiptafræði. Sverrir Briem er nýr ráðgjafi hjá Hagvangi. Hann er sálfræðingur að mennt og hefur starfað sem slíkur í Noregi undanfarin tvö ár. Spurð- ur um stöðuna á vinnumarkaðin- um í Noregi og hvernig hann sé frá- brugðinn þeim íslenska segir hann að í fyrsta lagi megi nefna að það er blússandi góðæri í Noregi um þess- ar mundir. Atvinnuleysi er lítið sem ekkert og í raun vöntun á vinnuafli. „Ég man eftir frétt í blöðunum í Noregi áður en ég flutti heim um að það vantaði að minnsta kosti sext- án þúsund verkfræðinga til starfa í landinu. Þetta segir mikið um stöð- una hjá þeim. Undanfarin ár hefur olíugeirinn sogað til sín mikið af starfsfólki, svipað og bankageirinn gerði hér á Íslandi á árunum fyrir hrun.“ Sverrir hefur sjálfur áhuga- verða reynslu af norskum vinnu- markaði. „Ég og fjölskylda mín bjuggum í Ósló og ég fékk fljótlega vinnu sem sálfræðingur. Málum er svolítið öðruvísi háttað í Noregi en hér heima. Þar eru meiri skil á milli vinnu og einkalífs. Ég kynnt- ist í raun aldrei samstarfsfólki mínu mjög náið og hitti það aldrei utan hefðbundins vinnutíma. Hins vegar er mun nánara samband við nágranna og foreldra skólabarna.“ Sverrir segir vinnuna vissu- lega spila stórt hlutverk í lífi fólks í Noregi en telur það þó stærra hér á landi. „Sjálfsmynd okkar Íslend- inga byggist nánast að öllu leyti upp á þeirri vinnu sem við stund- um og ég held að við séum svo- lítið sér á báti hvað þetta varðar. Atvinnuleysis vandamálið á Íslandi er þess vegna að einhverju leyti frá- brugðið því sem verið er að glíma við annars staðar. Ástæðuna veit ég ekki en hluti af skýringunni liggur örugglega að einhverju leyti í því að alltaf hefur verið lítið atvinnu- leysi á Íslandi, sem við höfum reyndar borgað fyrir með mikilli verðbólgu.“ Sverri líkar eiginlega betur við viðhorf Íslendinga til vinnu. „Þeir eru sveigjanlegri og tilbúnari til að leggja meira á sig. Þessi sveigjan- leiki gerir það líka að verkum að við erum fljótari en aðrar þjóðir að koma okkur út úr kreppunni. Þess vegna er ég, og við öll hjá Hagvangi, handviss um að það séu bjartir tímar fram undan á Íslandi. Bjartir tímar fram undan Sjálfsmynd Íslendinga byggist að miklu leyti upp á þeirri vinnu sem þeir stunda að mati Sverris Briem, ráðgjafa hjá ráðningarþjónustunni Hagvangi. Þeir hafa jákvæðara viðhorf til vinnu en aðrar þjóðir, eru duglegri og sveigjanlegri. Það gerir það að verkum að Íslendingar eru fljótari að ná sér út úr kreppunni en aðrar þjóðir og telur Sverrir bjarta tíma fram undan. Sverrir segir atvinnuleysisvandamálið á Íslandi frábrugðið því sem verið er að glíma við annars staðar, enda Íslendingar viljugir til vinnu. MYND/GVA Fundarhald er fylgifiskur fyrirtækjareksturs og sjálfsögð gestrisni að bjóða fundargestum upp á huggulega hressingu. Þá er gagnlegt að vera með puttana á púlsi nýjustu matartískunnar og bjóða upp á veitingar í takt við tíðarandann. Vínarbrauð og rúnstykki er vitaskuld sígilt kaffimeðlæti en andrúms loft nýja ársins kallar á léttara og heilsusamlegra fundar- meðlæti. Á því herrans ári 2013 er tilvalið að leggja fersk ber og ávexti á fundarborðið eða þá orkuskot í safaformi og gott að hafa hugfast að grænmeti verður aðalréttur en ekki bara meðlæti á nýja árinu. Smáréttir og veislufæði úr kjöti, sjávarfangi og landbúnaðar- afurðum mega enn vera með heimsborgaralegum blæ en þó án þess að hafa ferðast og úrelt að sækja til Frakklands það sem fá má brak- andi ferskt og lífrænt beint frá býli og úr íslenskri náttúru. Bragðupplifun ársins fer úr söltu og sætu yfir í súrt og beiskt og taílenskt, víetnamskt og kóreskt sælkerabragð á upp á pallborðið. Tískusnakkið 2013 er poppkorn í allri sinni dýrð; hefðbundið, sætt eða bragðsterkt og á alls staðar við, jafnvel ofan á ís og eftirrétti. Kryddað popp á fundinn Poppkorn er tískusnakkið í ár; alltaf smart og á alltaf við. Þó að tækninni fleygi fram er þó ekki enn hægt að salta það í sýndarveruleika og þarf að bera fram ilmandi á fundum. Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.