Fréttablaðið - 24.01.2013, Side 8
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
NOTAÐIR BÍLAR Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík · Sími 590 2160 · www.notadir.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
1
9
8
Kia cee’d EX 1,6
Árg. 2008, ekinn 113 þús. km,
bensín, 125 hö., sjálfsk.
Verð 2.090.000 kr.
Tilboðsverð 1.890.000 kr.
Kia Rio EX 1,4
Árg. 2012, ekinn 14 þús. km,
dísil, 90 hö., 6 gírar, eyðsla:
3,8 l/100 km*.
Verð 2.890.000 kr.
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2012, ekinn 28 þús. km,
dísil, 136 hö., sjálfsk., eyðsla
5,7 l/100km*.
Verð 5.690.000 kr.
Kia Sorento EX classic 2,2
Árg. 2012, ekinn 2 þús. km,
dísil, 198 hö., sjálfsk., eyðsla:
6,7 l/100km*.
Verð 7.490.000 kr.
Kia cee’d ex 1,6
Árg. 2012, ekinn 2 þús. km,
dísel, 116 hö., sjálfsk., eyðsla:
5,6 l/100km*.
Verð 3.790.000 kr.
Opið virka daga kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kia Sportage EX 4wd
Árg. 2011, ekinn 36 þús. km,
136 hö dísil, 6 gírar, eyðsla
5,7 l/100km*.
Verð 4.990.000 kr.
Kia Sorento EX 4wd 3,5
Árg. 2006, ekinn 77 þús. km,
bensín, 195 hö., sjálfsk.
Verð 2.390.000 kr.
Tilboðsverð 1.790.000 kr.
Frábær fjármögnun í boði
* Skv. uppgefnum meðaleyðslutölum frá framleiðanda.
KIA GÆÐABÍLAR Á
GÓÐU VERÐI
5 ár
eftir af
ábyrgð
2 ár
eftir af
ábyrgð
6 ár
eftir af
ábyrgð 6 áreftir afábyrgð 6 ár
eftir af
ábyrgð
Greiðsla á mánuði
17.777 kr.
M.v. 50% innborgun og 6 ára óverðtryggt
lán á 9,4% vöxtum. Árleg hlutfallstala
kostnaðar: 10,85%.
6 ár
eftir af
ábyrgð
TROMSØ, FRÉTTABLAÐIÐ Espen
Barth Eide, utanríkisráðherra Nor-
egs, er jákvæður gagnvart því að
Kínverjar fái áheyrnaraðild að
Norðurskautsráðinu. Carl Bildt,
sænskur kollegi hans, tekur undir
það sjónarmið.
„Það er mikilvægt að þjóðir fái
aðild að okkar klúbbi. Þeir stofna
ekki sinn eigin klúbb á meðan,“
sagði Espen Barth Eide til að leggja
áherslu á þá skoðun sína að fjölga
ætti áheyrnarþjóðum að Norður-
skautsráðinu. Við undirritun samn-
ings um nýja fastaskrifstofu Norð-
urskautsráðsins í Tromsö kom þetta
skýrt fram í máli ráðherrans. Stofn-
un skrifstofunnar er mikilvægur
liður í að styrkja vægi ráðsins í
alþjóðlegri umræðu og ákvarðana-
töku í málefnum norðurslóða, sem
er forgangsmál í norðurslóðastefnu
Íslands. „Það eru góðar fréttir að
margir hafa lýst áhuga á að sitja
við okkar borð. Eitt af stóru verk-
efnunum er að ákveða hverjir fá
inni, samkvæmt þeim skilyrðum
sem við höfum sett. Þetta kemur í
ljós í maí,“ sagði Eide og vísaði til
ráðherrafundar sem haldinn verður
í Kiruna í Svíþjóð.
Við undirskriftina var Eide spurð-
ur hvort þessi afstaða Noregs væri
útrétt sáttahönd vegna deilu þjóð-
anna í kjölfar veitingar friðarverð-
launa Nóbels árið 2010. Eide blés á
að samhengi væri þarna á milli.
Áhugi Kínverja á norðurslóðum
er öllum ljós. Ekki er langt síðan
Snædrekinn, gríðarstór ísbrjótur, lá
við bryggju á Íslandi eftir að hafa
siglt norðausturleiðina um Norður-
Íshaf. Um var að ræða fimmta leið-
angur skipsins sem var hér í boði
íslenskra stjórnvalda nokkra daga
í ágúst.
Hafa ber í huga að áheyrnaraðild
er háð samþykki stofnríkjanna átta.
Menn velta fyrir sér hvort áhugi á
rannsóknum og samvinnu, sem eru
ástæðurnar sem Kínverjar halda
á lofti, eru raunveruleg ástæða
áhuga þeirra, en samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins eru sennilega
Kanadamenn og Rússar líklegastir
til að leggjast gegn aðild Kínverja.
Tólf þjóðir og ýmis samtök hafa
sótt um áheyrnaraðild að Norður-
skautsráðinu. Auk Kína eru það
Ítalía, Japan, Suður-Kórea, Indland
og síðast en ekki síst Evrópusam-
bandið auk samtaka eins og Green-
peace – en þegar eiga hátt á annan
tug samtaka áheyrnaraðild að Norð-
urskautsráðinu.
María Damanaki, sjávarútvegs-
stjóri ESB, hélt ræðu á ráðstefnunni
Arctic Frontiers 2013 þar sem áhugi
ESB var öllum ljós. Hún kallaði eftir
ákvörðunartöku varðandi loftslags-
mál og kallaði hún eftir aðgerðum.
Má hnykkja á því sem Carl Bildt
sagði í sinni ræðu á ráðstefnunni
að þrjár til fjórar stórar kolakynt-
ar verksmiðjur eru opnaðar í Kína
og á Indlandi í hverri viku, en allir
stjórnmála- og vísindamenn eru
sammála um að Norðurskautsráð-
ið sé mikilvægasti vettvangurinn
varðandi þennan málaflokk, og því
þurfi mjög að líta til ráðsins í fram-
tíðinni. svavar@frettabladid.is
Jákvæðir gagnvart aðild Kínverja
Mikilvægi norðurslóða endurspeglast í áhuga fjöl-
margra þjóða á áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu.
Utanríkisráðherrar Svíþjóðar og Noregs eru jávæðir
gagnvart beiðni Kínverja.
FUNDUR Í TROMSØ Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Leona Aglukkaq, kanad-
ískur þingmaður, og Magnús Jóhannesson sátu fyrir svörum. Í stiganum má sjá Steingrím J. Sigfússon.
ARCTIC COUNCIL/LINNEA NORDSTRÖM
Kínverska rannsóknaskipið og ísbrjóturinn Snædrekinn
kom til hafnar í Reykjavík í ágúst síðastliðnum eftir
ótrúlegt ferðalag frá Kína. Skipið lagði úr höfn þann
2. júlí frá Qingdao í Kína í fimmta vísinda- og rann-
sóknaleiðangur Kínverja á norðurslóðir; CHINARE 5. Í
leiðangrinum fór Snædrekinn svonefnda norðausturleið
meðfram Rússlandi og Noregi og til Íslands. Hann fór
svo sömu leið til baka og kom til Sjanghaí í Kína í lok
september.
Leiðin um Norður-Íshafið er um 40% styttri en hefð-
bundin siglingaleið frá Kína til Evrópu ef farið er um
Indlandshaf, Súez-skurðinn og Miðjarðarhaf.
Snædrekinn er stærsti ísbrjótur heims sem ekki er
kjarnorkuknúinn.
Hann er 167 metrar á lengd og 23 á breidd. Aðstaða
fyrir vísindamenn er mjög góð með gagnamiðstöð og
sjö rannsóknastofum. Alls eru 117 manns um borð og
þar af um sextíu vísindamenn. Um borð eru þrír rann-
sóknabátar og þyrla. Þess má geta að íslensku fræði-
mennirnir Egill Þór Níelsson og Ingibjörg Jónsdóttir,
sigldu um Norður-Íshafið með Snædrekanum en þau
voru við rannsóknir um borð.
Snædrekinn sigldi um Norður-Íshafið