Fréttablaðið - 24.01.2013, Side 10
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
17
2
*
M
ið
a
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
tu
r
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
tu
r
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala
Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílasala Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
SHIFT_
Í
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
17
2
*
M
ið
a
ð
SUBARU XV – 4x4
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr.
Eyðsla:
4,2 l/100 km*
Eyðsla:
6,6 l/100 km*
RENAULT MEGANE II SPORT TOURER
1.5 dísil, sjálfskiptur. Verð 3.890 þús. kr.
DACIA DUSTER – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla:
5,1 l/100 km*
SKYNSAMLEG
KAUP
Hrikalega gott ver
ð
NISSAN QASHQAI – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla:
4,6 l/100 km*
ELDSNEYTI
MINNA
NÝIR SPARNEYTNIR BÍLAR
FER 1.428 KM
Á EINUM TANKI
M.v. blandaðan ak
stur
VINSÆLASTI
SPORTJEPPINN
Samkv. Umferðars
tofu 2012
SPARNEYTINN
SUBARU
Ný vél, aukinn ben
sínsparnaður
ÍSRAEL Snemma á síðasta ári til-
kynnti Yair Lapid, þekktur sjón-
varpsmaður í Ísrael, að hann hygð-
ist stofna stjórnmálaflokk. Ári
síðar er Yesh Atid, hinn nýstofnaði
flokkur, orðinn sá næstfjölmenn-
asti á ísraelska þinginu.
Faðir hans, Tommy Lapid, lék
sama leik fyrir tíu árum. Hann
var einnig þekktur fjölmiðlamað-
ur sem sneri sér að stjórnmálum,
gekk til liðs við Shinui-flokkinn og
vann mikinn kosningasigur.
Yair er, eins og faðir hans, ver-
aldlega sinnaður miðjumaður sem
á auðvelt með að höfða til almenn-
ings. Hann hefur það nú í hendi
sér hvort Benjamín Netanjahú
getur setið áfram við stjórnvölinn.
Hann segist ekki hafa áhuga á að
mynda bandalag flokka sem hefði
það markmið að halda Netanjahú
frá völdum.
Stjórnarflokkarnir héldu ekki
meirihluta sínum á þingi, fengu
samtals 60 þingsæti af 120 og
þurfa því að fá liðsinni frá miðju-
eða vinstriflokkum.
Netanjahú hefur stuðst við
smærri flokka strangtrúargyð-
inga en segist nú ætla að reyna
að mynda breiða stjórn hófsamari
hægri- og vinstriflokka. Staðan er
hins vegar snúin því ólíklegt er að
Netanjahú reynir að
mynda breiða stjórn
Yair Lapid, óvæntur sigurvegari þingkosninganna í Ísrael, verður í lykilstöðu við
stjórnarmyndun. Stjórnarflokkarnir misstu meirihlutann en Benjamín Netanjahú
forsætisráðherra reynir nú að mynda breiða stjórn hægri og vinstri flokka.
YAIR LAPID Þekktur og virtur sjónvarpsmaður í Ísrael vann óvæntan sigur með nýstofnuðum flokki sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
➜ Fjöldi þingmanna
Flokkar hægri manna og strangtrúaðra (60)
31 Kosningabandalag Likud (flokkur Netanjahú)
(21) og Yishrael Beiteinu (10)
11 Heimkynni gyðinga
11 Shas
7 Bandalag lögmálsgyðinga
Flokkar miðju- og vinstrimanna (60)
19 Yesh Atid (flokkur Lapids)
15 Verkamannaflokkurinn
12 Flokkar ísraelskra araba
6 Hatnua
6 Meretz
2 Kadima
Úrslit þingkosninganna í Ísrael
RÚSSLAND, AP Þær Nadezhda Tolo-
konnikova og Anna Alekhina, með-
limir í rússnesku pönkhljómsveit-
inni Pussy Riot, segjast ekki láta
erfiðar aðstæður í vinnubúðunum
hafa mikil áhrif á sig.
„Ég er meinlætamanneskja og
læt mig litlu varða hvaða aðstæð-
ur ég bý við,“ segir Tolokonnikova.
„Ég mun lifa þetta af. Það kemur
ekkert fyrir mig,“ segir Alekhina.
Alekhina er þó höfð í einangr-
un vegna hættu á því að hún verði
fyrir aðkasti annarra fanga. Hana
grunar að fang-
elsisyfirvöldin
hafi hvatt aðra
fanga til að hóta
henni öllu illu.
Hún segist þó
kunna betur við
sig í einangr-
uninni: Þar sé
þó friður til að
lesa.
Tolokonnikova og Alekhina
fengu báðar tveggja ára fangels-
isdóm síðastliðið haust fyrir að
hafa efnt til mótmæla gegn Vla-
dimir Pútín forseta í helstu kirkju
Moskvuborgar snemma á síðasta
ári.
Þær segjast ekki sjá eftir neinu,
þótt ekki reikni þær með neinni
miskunn frá stjórnvöldum.
Tolokonnikova segir það alrangt,
sem rússneskir fjölmiðlar hömruðu
á, að mótmælin hafi verið hugsuð
sem guðlast: „Þetta var kaldhæðin,
glaðvær og frökk athöfn, pólitískt
neyðaróp, ef svo má að orði kom-
ast,“ segir hún. - gb
Liðsmenn Pussy Riot segjast vel geta þraukað í fangabúðum:
Sjá ekki eftir mótmælunum
MARIA ALEKHINA
strangtrúarflokkarnir geti starfað
með Lapid.
Hann boðar stjórn sem fær
þrjú meginverkefni: að svipta
heittrúargyðinga undanþágu frá
herskyldu, að gera húsnæðisverð
viðráðanlegt og gera breytingar
á stjórnkerfinu þannig að smærri
flokkar hafi ekki þau miklu áhrif
á stefnu ríkisstjórna og nú er.
Versnandi kjör landsmanna
hafa valdið verulegri ólgu á síð-
ustu mánuðum og endurspeglast
í úrslitum kosninganna, ekki síst
í sigri flokks Lapids sem hefur
lagt meiri áherslu á velferðarmál
en öryggismál og samskiptin við
Palestínumenn.
Leiðtogar Palestínumanna segja
að úrslit kosninganna hafi komið
þægilega á óvart, en hafa þó efa-
semdir um að harðlínustefna Net-
anjahús muni breytast mikið:
„Það kemur enginn frelsari, sem
færir okkur frið með hraði,“ segir
Hanan Ashrawi, þingkona á þingi
Palestínumanna í Ramallah.
gudsteinn@frettabladid.is
120
þingmenn sitja
á ísraelska
þinginu. 61
þingmann þarf
til að mynda
meirihluta í
þinginu.