Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 24
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Á myndlistarsýningu sem opnuð var
síðasta laugardag í Brunei Art Gall-
ery á eyjunni Borneó í Suðaustur-Asíu
eru verk tíu barna úr Laugarnesskóla
á aldrinum sjö til ellefu ára. Þar hanga
verkin þeirra innan um myndir þekktra
myndlistarmanna úr röðum ástralskra
frumbyggja og barna og unglinga frá
Afganistan, Ástralíu, Barein, Banda-
ríkjunum, Brúnei, Filippseyjum, Indó-
nesíu, Írak, Kína, Kúveit, Malasíu,
Mongólíu, Nýja-Sjálandi, Óman, Sam-
einuðu arabísku furstadæmunum,
Suður-Afríku, Sýrlandi, Trínidad og
Tóbagó, Túnis og Vestur-Sahara.
Þema sýningarinnar er „Í mínum
heimi“ (In my world) og eru öll verkin
unnin á handgerðan pappír frá frum-
byggjasamfélagi í Ástralíu. Menningar-
málaráðherra Brúnei opnaði sýninguna
og sérlegur gestur var prófessor Marie
Bashir, ríkisstjóri Nýja Suður-Wales í
Ástralíu.
Áströlsku samtökin BOLO (Big Ones
Little Ones) standa að sýningunni í sam-
starfi við fjölda aðila. Nafn samtakanna
vísar til þess að hinir eldri aðstoða hina
yngri í myndlist og sköpun. Markmið-
ið er að gefa börnum rödd, virkja þau
og efla sjálfsmynd þeirra og einnig að
tengja skóla, samfélög og ólíka menn-
ingarheima í gegnum myndlist og tján-
ingu. Lögð er áhersla á að ná til allra
barna, ekki síst þeirra sem þurfa á
stuðningi að halda.
BOLO er grasrótarverkefni sem hóf
göngu sína í frumbyggjasamfélögum
Ástralíu árið 2004. Stofnandi þess er
Trish Amichi.
Fulltrúi BOLO hér á landi er Petrína
Ásgeirsdóttir og það var hún sem kom
á tengslunum við Laugarnesskóla. „Ég
var í heimsókn í Ástralíu fyrir ári og
kynntist Trish Amichi fyrir tilviljun.
Hún spurði hvort ég vildi koma á sam-
starfi milli Íslands og BOLO og hefja
það með því að fá íslensk börn til að
senda myndir á sýninguna í Brúnei. Ég
hafði strax samband við Laugarnes-
skóla, því það er minn gamli skóli, og
þar var strax tekið vel í hugmyndina.“
Sólborg Gunnarsdóttir myndmennta-
kennari skólans segir þemað „Í mínum
heimi“ hafa strax kveikt áhuga sinn.
Valdir hefðu verið krakkar sem hefðu
haft þörf fyrir að styrkja sig og hún
ásamt Dagnýju Baldvinsdóttur og Vigni
Ljósálfi Jónssyni kennurum í skólanum
hefðu fús varið frítíma sínum í að gefa
þeim tækifæri til að tjá sig á myndræn-
an hátt á alþjóðlegum vettvangi.
Að loknum morgunsöng í Laugarnes-
skóla í vikunni afhenti Petrína börnun-
um tíu viðurkenningarskjöl frá BOLO
fyrir þátttöku sína. gun@frettabladid.is
Sýna myndverk sín
í Suðaustur-Asíu
Tíu nemendur í Laugarnesskóla eiga myndir á sýningu í höfuðborg Brunei sem er smáríki
á eyjunni Borneó í Suðaustur-Asíu. Þeir eru einu Evrópubúarnir sem eiga þar verk.
VIÐ AFHENDINGU VIÐURKENNINGA Eydís Barke Ágústsdóttir, Halldór Egill Arnarsson, Boyd
Cive Aynscomb Stephen, Dagný Baldvinsdóttir kennari, Mirra Bjarnadóttir, Petrína Ásgeirsdót-
tir, tengiliður BOLO á Íslandi, Ólafur Franklín Jónasson, Vignir Ljósálfur Jónsson kennari,
Sunna Mist Helgadóttir, Jóhanna Lísa Björnsdóttir, Sólborg Gunnarsdóttir kennari, Daníel
Rúnar Arnbjargarson, Orri Harðarson og Áróra Ísól Valsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ SIGURBJÖRG THORDERSEN
(NÍNA)
Hæðargötu 1, Njarðvík,
sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 15. janúar verður jarðsungin
frá Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn
25. janúar klukkan 14.00.
Vigdís Thordersen Magnús B. Hallbjörnsson
Stefán Thordersen Sigurbjörg Björnsdóttir
Ólafur Thordersen Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir
og fjölskyldur.
24 tíma vakt
Sími 551 3485
Davíð H. Ósvaldsson S: 896 8284 Óli Pétur Friðþjófsson S: 892 8947
ÞEKKING–REYNSLA–ALÚÐ
ÚTFA
RARÞJÓNUSTA
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HENRIK VILHELM AUNIO ÁRNASON
Austurbrún 6,104 Reykjavík,
lést á lungnadeild Landspítala Fossvogi
þann 14. janúar sl. Útför hefur farið fram
í kyrrþey.
Anna Henriksdóttir Vilhjálmur Ívar Sigurjónsson
Ardís Henriksdóttir Ásgeir Ásgeirsson
Asta Henriksdóttir Finnur Magnússon
og barnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HÉÐINN ÁGÚSTSSON
Skúlagötu 20, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans mánudaginn
21. janúar.
Gylfi Ómar Héðinsson Svava Árnadóttir
Hörður Héðinsson Berglind Bendtsen
Rut Marsibil Héðinsdóttir Þorkell Einarsson
Páll Vignir Héðinsson Gunnhildur Kjartansdóttir
Ágúst Héðinsson Baldvina Snælaugsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRIR BJÖRN JÓHANNSSON
Dalseli 6, Reykjavík,
lést sunnudaginn 13. janúar á Land-
spítalanum við Hringbraut. Útförin fór fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Áslaug Guðnadóttir
Ásta Gunnarsdóttir Stefán Gunnarsson
Guðni Sigurður Þórisson
Jenný Guðbjörg Hannesdóttir
Elvar Örn Þórisson Unnur Björg Stefánsdóttir
Sigrún Anna Þórisdóttir
Guðjón Ýmir Lárusson
og barnabörn.
Elskulegur bróðir okkar, frændi og vinur,
HALLGRÍMUR SIGURÐSSON
lést á Landspítala Fossvogi fimmtudaginn
18. janúar 2013. Jarðsett verður
frá Grensáskirkju, föstudaginn 25. janúar
klukkan 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Ás Styrktarfélag.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rannveig og María Sigurðardætur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR
Hamraborg 30,
lést þriðjudaginn 22. janúar á hjúkrunar-
heimilinu Sunnuhlíð. Útförin fer fram
frá Kópavogskirkju mánudaginn 28. janúar
klukkan 15.00.
Elísabet Haraldsdóttir Guðmundur Hansson
Ragnheiður Haraldsdóttir
Valgerður Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR
Sóltúni 10, Reykjavík,
sem lést á Landakotsspítala þann 20.
janúar, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
í Reykjavík mánudaginn 28. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á líknarstofnanir.
Gunnlaugur Pálmi Steindórsson
Steindór Gunnlaugsson Halldóra Lydía Þórðardóttir
Haraldur Páll Gunnlaugsson Bolette Møller Christensen
Bryndís Dögg Steindórsdóttir Haukur Eggertsson
Gunnlaugur Egill Steindórsson
Emilía Björk Hauksdóttir
Okkar ástkæra,
SNÆFRÍÐUR BALDVINSDÓTTIR
lést laugardaginn 19. janúar sl.,
44 ára að aldri. Við kveðjum hana
við útför í Dómkirkjunni í Reykjavík,
þriðjudaginn 29. janúar kl. 15.00.
Marta Snæfríðardóttir Brancaccia
Gunnar Gylfason Sigríður Diljá Gunnarsdóttir
Rakel Gróa Gunnarsdóttir
Oddný Þóra Gunnarsdóttir
Glúmur Baldvinsson Melkorka Glúmsdóttir
Kolfinna Baldvinsdóttir Starkaður Sigurðarson
Magdalena Björnsdóttir
Fitore Berisha
Jón Baldvin Hannibalsson Bryndís Schram
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
NJÁLS HARALDSSONAR.
Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust
hann í veikindum hans. Kær kveðja til ykkar
allra.
Ingigerður Karlsdóttir
Tinna Rut Njálsdóttir
Þorvarður Jónsson
Haraldur Njálsson
Valgerður Jóhannsdóttir
Þórunn Njálsdóttir
Örn Hrafnkelsson
Okkar ástkæra,
SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
Bræðraborgarstíg 7, Reykjavík,
lést þann 22. janúar. Útförin fer fram
frá Bústaðakirkju föstudaginn 1. febrúar
kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Guðmundur Guðmundsson
Kristján Gylfi Guðmundsson
Eyrún Guðmundsdóttir Unnar Bragi Bragason
Brynhildur Guðmundsdóttir Jón Valgeirsson
Borghildur Guðmundsdóttir Kolbeinn Sveinbjörnsson
Kristrún, Lúkas, Tryggvi, Felix, Emil Bragi, Eva Karen,
Guðmundur, Hildur, Sólveig.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BIRGIR ÁGÚSTSSON
vélvirki, Hraunbæ 84,
lést þriðjudaginn 22. janúar á
Krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut. Starfsfólk heimahjúkrunar
Karitas og deildar 11E Landspítala er færðar bestu þakkir fyrir
alúð og góða umönnun. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Edda Kjartansdóttir
Kjartan Birgisson Guðrún Sæmundsdóttir
Ágúst Birgisson Sigurður Rúnar Sigurðsson
Jóhanna Birgisdóttir Björn Hörður Jóhannesson
Auður Edda Birgisdóttir