Fréttablaðið - 24.01.2013, Side 25

Fréttablaðið - 24.01.2013, Side 25
Það eiga allir skilið að sjá vel,“ segir Helga Kristinsdóttir, sjón-tækjafræðingur og einn eigenda gleraugnaverslunarinnar Eyesland, en hún opnaði verslunina fyrir tveimur og hálfu ári þegar henni ofbauð verðlag á gleraugum. „Gleraugu mega ekki vera munaðarvara fyrir fáa útvalda. Hjá Eyesland höfum við farið óhefðbundn- ar leiðir í vöruvali til að geta boðið gott verð en við leitum mikið til Bandaríkj- anna og Asíu en erum einnig með vörur frá Evrópu. Hjá okkur getur fólk jafnvel keypt sér þrenn gleraugu á verði einna og margir kaupa sér mörg gleraugu í einu fyrir ólík tækifæri, svo sem íþróttagleraugu, skíðagleraugu, sólgleraugu með styrk, hlaupa- eða göngugleraugu. Þá eru margskipt gleraugu og skipt tölvugler- augu að sækja í sig veðrið en margir hafa fram að þessu ekki haft ráð á að fá sér margskipt gleraugu. Þau er hægt að fá á skikkanlegu verði hjá okkur. Fólk hefur þá skýra sjón á tölvuna en getur einnig lesið smátt. Við sérhæfum okkur einnig í linsum fyrir þá sem eru með mikla sjónskekkju eða erfiða sjón,“ útskýrir Helga og segir verslunina hafa fengið góðar móttökur. „Þó að við séum á fimmtu hæð í Glæsibæ er stöðugur straumur af fólki hjá okkur.“ Í Eyesland fást einnig sjónhjálpartæki fyrir sjónskerta og úrval fylgihluta fyrir gleraugu. Verslunin er opin frá klukkan 8.30 til 17 alla virka daga. Sjá einnig vefverslun á www.eyesland.is og visir.is. SVART OG HVÍTT Erlend tískublöð segja að svart og hvítt verði í há- tísku með vorinu. Alls kyns rendur, hvort sem þær eru langsum eða þversum. Þessi svarthvíta tíska er áber- andi hjá flestum tískuhönnuðum, hvort sem er í bol- um, kjólum eða skyrtum. Þessi er frá Marc Jacobs. NÝJUNG Í EYESL- AND Barna títan-gler- augu, íslensk hönnun frá Reykjavík eyes. ALLIR EIGA GÓÐ GLERAUGU SKILIÐ EYESLAND KYNNIR Gleraugnaverslunin Eyesland í Glæsibæ býður yfir þús- und hágæða gleraugu fyrir allt að 70% lægra verð en annars staðar. EYESLAND Helga Kristinsdóttir sjón- tækjafræðingur ásamt Eddu Friðfinns- dóttur og Rannveigu Gísladóttur. Þær segja stöðugan straum fólks í verslunina þó hún sé á fimmtu hæð í Glæsibæ. MYND/ANTON Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Þú mætir - við mælum og aðstoðum www.misty.is Opið frá 10-14 virka daga. AÐHALDS- kjóll/ undirkjóll Margir glæsilegir li t ir í stærðum S,M,L ,XL á kr. 6.550,- Rodalon sótthreinsun Gegn myglusveppi Eyðir lykt úr fatnaði Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 25 569 3100 eirberg.is Vertu vinur okkar á Facebook Meiri verðlækkun Nú allar haustvörur og skór á HÁLFVIRÐI Einnig LAGERSALA í fullum gangi. 60% afsláttur af fatnaði og skóm!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.