Fréttablaðið - 24.01.2013, Qupperneq 35
KYNNING − AUGLÝSING Gólfefni & hitakerfi24. JANÚAR 2013 FIMMTUDAGUR 7
Vínyll
Hreinsa ryk með því að sópa reglulega. Þvo með volgu
sápuvatni og þvegli eða gólfklút. Ekki verra að fara yfir
með hreinu vatni á eftir. Ef vínyldúkur er bónaður á að
nota vatnsuppleysanlegt bón, ekki vaxbón. Ef blettir koma
í dúkinn er ágætt að setja vatnsuppleysanlegt bón í klút og
nudda blettinn.
Línoleum
Þvoið með mildri sápu (ekki uppþvottalegi eða brúnsápu).
Varist að bleyta gólfdúkinn um of. Nota má vaxbón á línó-
leumgólfdúk, en gott að nota vatnsuppleysanlegt bón þar
sem mæðir á með vatni, s.s. í eldhúsi og baði. Bletti og rákir
má nudda með fínni stálull eða grófum svampi vættum í
terpentínu. Ekki má nota bónuppleysi á línoleumdúk eða
flísar.
Parket – lakkað
Sópið eða rykmoppið eftir þörfum. Þvoið með mildu sápu-
vatni og þurrvindið moppuna eða klútinn. Varast ber að
láta vætu liggja á lökkuðu parketgólfi. Nota má hvort
heldur er vatnsuppleysanlegt eða vaxbón, en varast
skal að bóna slík gólf oft. Ef lakkið er orðið slitið þarf
að pússa gólfin upp og lakka að nýju.
Parket – olíu- eða vaxborið
Rykmoppa reglulega. Best er að nota græn-
sápu eða þar til gerða parketsápu eða sápu
sem er feit, því fitan mettar gólfborðin. Nauð-
synlegt er að olíu- eða vaxbera gólf nokkuð
reglulega annars vilja þau þorna og verða
mislit.
Parket – plast
Varast skal að bleyta mikið, þurfi þess á að
nota volgt vatn og þurrka jafnóðum. Best er að strjúka yfir
með þurri moppu eða ryksuga.
Korkur
Sópa eða ryksuga. Þvoið með vel heitu sápu-
vatni. Gott að bóna með vaxbóni öðru hverju.
Ef korkurinn er lakkaður skal nota volgt sápuvatn
og þurrka yfir í lokin.
Leirflísar – Uppþvottalögur er góður til að þvo leir-
flísar með. Mikil óhreinindi þarf að skrúbba burt. Fúgur
þarf að þrífa sérstaklega með sterku sápuvatni og mjúkum
bursta. Leirflísar má alls ekki bóna.
Steinflísar – Best að strjúka reglulega yfir með þvegli og
vatni með góðum hreinsilegi. Einnig má skrúbba flísarnar
með sterku sápuvatni og skola vel og þurrka á eftir. Nota má
vaxbón, það gefur stamt yfirborð. Stálull og terpentína er gott
að nota á bletti. Þegar flísarnar eru nýjar er gott að bera á þær
línolíu og þvo ekki fyrstu tvær vikurnar.
Teppi og mottur
Þarna dugar ryksugan oftast best. Teppi þarf líka að hreinsa
af og til og best er að leigja sér tæki til þess þar sem teppa-
lagt er horna á milli. Góð teppahreinsiefni eru fáanleg. Þau
má líka nota á húsgögn. Varast skal að bleyta ullarteppi of
mikið. Lausar mottur og dregla er gott að viðra og banka með
teppabankara.
Mottur úr sísalhampi, kókostrefjum eða öðrum náttúrutrefj-
um er best að ryksuga. Ef þær eru mjög óhreinar er ráð að þvo
þær upp úr saltvatni, skola vel á eftir og þurrka við stofuhita.
Gott ráð til að fríska upp á teppi
Stráið matarsóda jafnt yfir teppið og látið liggja í 15-20 mín-
útur. Ryksugið vel að lokum.
Skúrað og skrúbbað
Ekki er sama hvernig farið er að við þrif á gólfum. Huga þarf að því að þau efni og aðferðir sem eru notuð henti þeim gólfum sem á
að þrífa. Á vef leiðbeiningarstöðvar Heimilanna www.leidbeiningastod.is er að finna greinargóðar leiðbeiningar.
Kjaran-Gólfbúnaður selur mikið úrval af vegg- og gólfdúkum sem henta
til votrýmislagna, en þá er átt
við staði eins og baðherbergi,
sturtuklefa og þvottahús þar
sem myndast raki og bleyta
vegna mikillar vatnsnotkunar.
Í nágrannalöndunum er það
langalgengasti frágangur vot-
rýma að dúkaleggja veggi og
gólf með algjörlega vatns- og
loftþéttum samskeytum. Krist-
ján Ársælsson dúklagninga-
maður, sem hefur sérhæft sig
í votrýmislögnum, segir einn-
ig mjög mikla aukningu í slík-
um frágangi hér á landi en
hann hentar einkar vel þar sem
til dæmis er byggt með gifs- og
spónaplötum.
Ægir Örn Björnsson, sölu-
maður hjá Kjaran, segir fjöl-
breytt úrval vegg- og gólfdúka
fáanlegt til votrýmislagna hjá
Kjaran. Má þar nefna hefð-
bundin flísamunstur, viðar-
munstur og grafísk tilbrigði og
margt fleira.
Ekkert vandamál er að fá vot-
rýmislögn framkvæmda því
allir löggiltir dúklagningamenn
geta annast slík verk.
Verslunin er til húsa að Síðu-
múla 12-14. Nánari upplýsing-
ar er að finna á heimasíðunni;
www.kjaran.is.
Öryggi gegn raka
og myglusvepp
Kjaran-Gólfbúnaður er sérverslun með mikið úrval af gólfefnum, jafnt fyrir
heimili og vinnustaði. Kjaran býður upp á stærsta úrval landsins af gólfdúkum
og þar á meðal fjölbreytt úrval vegg- og gólfdúka til votrýmislagna. Lögð er
áhersla á vandaða ráðgjöf varðandi efnisval, lögn og umhirðu.
Hér eru veggir og gólf dúklagðir með vatns- og loftþéttum samskeytum. Allir löggiltir
dúklagningamenn geta annast slík verk. Fjölbreytt úrval vegg- og gólfdúka til votrýmis-
lagna fæst hjá Kjaran.
Ægir Örn Björnsson sölumaður og Kristján Ársælsson dúklagningamaður segja ekkert
vandamál að fá votrýmislögn framkvæmda, allir löggiltir dúklagningamenn geti annast
slík verk. MYND/ANTON
Kristján Ársælsson
dúklagningamaður segir
það langalgengasta
frágang votrýma að
dúkleggja veggi og gólf
með algjörlega vatns- og
loftþéttum samskeytum.
Slíkur frágangur henti
einkar vel þar sem til
dæmis er byggt með gifs-
og spónaplötum.