Fréttablaðið - 24.01.2013, Page 38
FÓLK|NÁM
HILMAR MÁR
AÐALSTEINSSON
Íslendingar búa við mikla náttúruvá, sérstaklega vegna jarðskjálfta og snjóflóða. Þegar illa fer mæðir mikið
á björgunarsveitarmönnum sem oft
þurfa að leita í rústum húsa að eftirlif-
endum. Rústabjörgun er þannig mikil-
vægur hluti af starfi björgunarsveita
og þarfnast þjálfunar og mikilla æfinga
enda mikilvægt að menn geti gengið
fumlaust að verki þegar vá ber að garði.
Í dag halda 45 björgunarsveitarmenn á
vegum Íslensku alþjóðabjörgunarsveit-
arinnar utan til Danmerkur til að taka
þátt í viðamikilli rústabjörgunaræfingu.
Einn þeirra er Hilmar Már Aðalsteins-
son.
„Æfingin heitir MODEX 2013 og er
haldin við bæinn Tinglev syðst á Jót-
landi. Nafnið vísar til Modules Exercise
þar sem misjafnar einingar innan Evr-
ópusambandsins æfa sig saman,“ upp-
lýsir Hilmar en æfingin er kostuð af sjóð
innan Evrópusambandsins. „Sá sjóður
er starfræktur til þess að efla almanna-
varnir í Evrópu, til þess að löndin vinni
betur saman yfir landamæri, geti veitt
hvert öðru betri aðstoð og sameigin-
lega betri aðstoð utan Evrópusvæðis-
ins,“ segir Hilmar. Æfingin er viðamikil,
þangað koma sveitir víða að og nokkrir
stjórnendur frá Evrópusambandinu og
Sameinuðu þjóðunum.
En hvernig fer æfingin fram? „Þegar
við mætum byrjum við á því að fá
gáminn okkar við landamærastöð og
þá hefst leikritið. Við erum komin að
landamærum á einhverju tilteknu landi
og tollararnir reyna að hanka okkur á
einhverju sem við gerðum rangt. Við
fáum úthlutað svæði, verðum að vega
og meta aðstæður og leita í húsum.
Líklega þarf sveitin einnig að sjá um
húsaskjól fyrir fleiri,“ lýsir Hilmar. Ís-
lenski hópurinn gistir í tjöldum og
þarf að öllum líkindum að takast á við
snjókomu og frost sem gerir alla vinnu
erfiðari enda þarf oft að vinna með
sagir sem nota vatn.
Hilmar viðurkennir að svona æfingar
feli í sér mikið erfiði. „En við erum vanir
því að heiman. Oft erum við á leiðinni í
háttinn þegar útkall kemur og erum þá
úti alla nóttina að leita. Þetta er vissu-
lega engin skemmtiferð heldur vinna
út í gegn. En þetta er líka mjög spenn-
andi og hópurinn mjög skemmtilegur
og nær vel saman, enda gæti hann ekki
unnið undir þessu álagi öðruvísi,“ segir
Hilmar og bætir við að fólk sé einnig
duglegt að klappa hvert öðru á öxlina.
„Æfingin krefst mikillar vöku en við
erum með félagakerfi til að passa hvert
upp á annað. Við höldum bókhald til að
menn fái svefn, nærist og fylgjumst jafn-
vel með að fólk sé með eðlilegar hægð-
ir. Þá erum við með lækni með okkur
sem hugsar vel um okkur þó hann taki
einnig á móti sjúklingum frá okkur áður
en þeir komast endanlega undir læknis-
hendur.“ Hilmar segir marga ekki skilja
af hverju fólk nenni að standa í svona í
frítíma sínum. „Við erum kannski dálítið
skrítin sem förum í þetta,“ segir hann
og hlær.
Hópurinn heldur utan í dag en snýr
heim á mánudagskvöld.
ÆFA RÚSTABJÖRGUN
Í DANMÖRKU
LÆRDÓMSRÍKT Fjörutíu og fimm björgunarsveitarmenn frá Íslandi halda
utan í dag til að taka þátt í MODEX 2013. Það er rústabjörgunaræfing á vegum
Evrópusambandsins í Tinglev í Danmörku. Hilmar Már Aðalsteinsson er hluti
af hópnum og hlakkar til að takast á við afar krefjandi verkefni.
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin var stofnuð árið
1999 með samkomulagi milli Slysavarnafélagsins
Landsbjargar, utanríkisráðuneytisins og dóms-
málaráðuneytisins. Sveitin er skipuð björgunar-
sveitarmönnum úr sex björgunarsveitum auk sér-
fræðinga frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og
Landspítalanum.
Sveitin fór í sitt fyrsta útkall árið 1999 þegar
hún fór til Tyrklands í kjölfar jarðskjálftanna sem
urðu þar en þá létust meira en 18.000 manns. Árið
2003 fór sveitin til Alsír í kjölfar jarðskjálfta þar og
í byrjun árs 2004 var farið til Marokkó. Auk þess
fóru fjórir félagar úr ÍA í sjúkraflug til Taílands í
byrjun árs 2005 eftir flóðin í Indónesíu. Í janúar
2010 fór sveitin svo til Haítí eftir að öflugir jarð-
skjálftar skóku landið.
Sveitin er aðallega byggð upp sem rústabjörg-
unarsveit en Slysavarnafélagið Landsbjörg er aðili
að INSARAG sem eru regnhlífarsamtök alþjóða
rústabjörgunarsveita sem starfa innan Sameinuðu
þjóðanna. Í september 2009 hlaut sveitin vottun
INSARAG sem „medium“ rústabjörgunarsveit.
SVEIT MEÐ ALÞJÓÐLEGA VOTTUN
BJARGAÐ Íslenska
alþjóðabjörgunar-
sveitin fékk vottun frá
Sameinuðu þjóðunum
árið 2009. Fátítt er að
sjálfboðaliðar fái slíka
vottun en algengara að
slíkar sveitir séu skip-
aðar atvinnuslökkviliðs-
mönnum.
MYND/SIGURÐUR Ó SIGURÐSSON
WU SHU ART
TAI CHI
KUNG FU
FYRIR ALLA
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Í samstarfi við Kína
-Capital Institute of
Physical Education
Skúlatún 2 - 105 Reykjavík
idan@idan.is - www.idan.is
Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig!
Hefur þú starfað við pípulagnir eða
húsasmíði í 5 ár eða lengur og vilt
ljúka námi í faginu?
Áhugasömum er bent á að hafa samband við IÐUNA
fræðslusetur í síma 590 6400 eða með því að senda
fyrirspurn á radgjof@idan.is
BYGGINGAGREINAR
Raunfærnimat miðar að því að meta færni og þekkingu sem
viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið. Að loknu raunfærnimati fara
þátttakendur í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til að
útskrifast. Inntökuskilyrði í raunfærnimat eru 5 ára starfsaldur í
greininni og 25 ára lífaldur.
Kynningarfundur verður haldinn fimmtu-
daginn 31. janúar kl. 17.00 í Skúlatúni 2,
6. hæð, 105 Reykjavík.
NÁNARI
UPPLÝSINGAR
Á IDAN.IS
D
A
G
SV
ER
K
.IS
/
ID
A
N
01
13