Fréttablaðið - 24.01.2013, Side 44
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 28
BAKÞANKAR
Friðriku Benónýs
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
Guð minn
góður!
Nú gerist
þetta!
Guð minn
góður! Nú
er þetta að
gerast!
Guð minn
gó…
Trúi og trúi...
ég VEIT að
honum er
ekki vel við
mig!
Svo þú heldur að
loftsteinninn hafi
verið sendur af
guði? Trúir þú á
guð?
Ok … fyrst að
kallinn situr inni
næstu 17 árin
fyrir allskyns
óspektir...
Daman verður
einmana! Smá
fjörugt tungu-
tangó mundi því
ekki skaða er
það nokkuð?
Steikur! Já! Má ég grilla í
kvöld?
Hvers
vegna
ekki?
Kúl! Finnum
á þig
svuntu!
Veistu um
einhver trúar-
brögð sem
eru iðkuð á
ströndinni?
Fyrirgefðu! Ég
ætlaði ekki að
seg ja þetta!
Slakaðu
á.
Ég er ekki týpan til að hlaupa
til mömmu og klaga.
Ég er týpan til að bíða með að
klaga þangað til ég get komið
þér í alvöru vandræði!
LÁRÉTT
2. eyja, 6. í röð, 8. húðsepi milli táa,
9. farfa, 11. tveir eins, 12. fáni, 14.
einkennis, 16. rás, 17. klæði, 18. rell,
20. fyrir hönd, 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. helminguð, 3. frá, 4. hrörnun, 5.
sigað, 7. geðtruflaður, 10. saur, 13.
gifti, 15. dreifa, 16. espa, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. java, 6. áb, 8. fit, 9. lit, 11.
tt, 12. flagg, 14. aðals, 16. æð, 17. föt,
18. suð, 20. pr, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. af, 4. vitglöp, 5.
att, 7. bilaður, 10. tað, 13. gaf, 15. strá,
16. æsa, 19. ðð.
Volvo er í hugum flestra tákn um sænska velferð og öryggi. Traustan bíl
sem hægt er að stóla á að komi fjölskyld-
unni frá einum stað til annars án teljandi
vesens. Hin týpíska sænska kjarnafjöl-
skylda samanstendur gjarna af pabba,
mömmu, tveimur börnum, húsi, sumarbú-
stað, hundi og Volvo. Reglufesta er höfuð-
dyggð í Svíþjóð og sá sem bregður út af
norminu er litinn hornauga. Ordning og
reda, eða röð og regla, eru einkunnarorð
Svía og inn í þá mynd passaði Volvo-
inn til skamms tíma eins og Jesús á
jólakorti.
SAMFYLKINGIN er sænsk-
asta stjórnmálaafl á Íslandi og
eflaust hefur það verið þessi
ordning og reda sem Dagur B.
hafði í huga þegar hann kaus að
hæla Guðbjarti Hannessyni með
samlíkingu við Volvo. Hann
hefði þó betur stúderað sögu
fyrirtækisins áður en hann
greip til þessarar samlíking-
ar því Volvo er langt frá því
að vera allur þar sem hann er
séður. Hann er ekki einu sinni
sænskur lengur, hann er kín-
verskur. Og þar á undan var
hann amerískur. Má kannski
lesa úr þessari samlíkingu dulin
skilaboð um breyttar áherslur í
íslenskri utanríkispólitík?
VOLVO þýðir ég snýst á latínu og það
segir kannski allt sem segja þarf um sögu
þessa fyrirtækis. Eftir að hafa verið í sam-
starfi við Hollendinga um hríð var fyrir-
tækið og vörumerkið selt hinum ameríska
bílaframleiðanda Ford sem fékk dollara-
merki í augun við tilhugsunina um sölu-
tölur á fólksbílum merkisins í Evrópu. Það
var árið 1999 og var Volvo þá skipt upp í
tvær deildir, Svíar héldu áfram að fram-
leiða vörubíla og trukka undir því nafni
en sú framleiðsla var algjörlega aðskilin
þeirri sem Ameríkanar stjórnuðu. Eftir
hrun dvínaði hins vegar salan á fólksbílum
og það var þá sem Kínverjarnir komu inn
í myndina. Þeir keyptu Volvo árið 2010 og
nú er framleiðslunni stýrt frá höfuðstöðv-
um fyrirtækisins Geely í Hangzhou.
GÁRUNGAR gætu því hent þessa sam-
líkingu varaformanns Samfylkingarinnar
á lofti og sett hana í samhengi við Gríms-
staði og Nubo og aukna ásókn Kínverja í
undirtök á norðurslóðum. Það dettur mér
hins vegar auðvitað ekki í hug, en því
verður ekki á móti mælt að þessi samlík-
ing við Volvo er ekki beint til þess fallin
að auka traust á formannsframbjóðand-
anum. Hefði ekki verið nær að kalla hann
Citroën? Franski bíllinn er sá evrópskasti
sem um getur og hægt að hækka hann og
lækka til að laga sig að akstursaðstæðum
hverju sinni. Er það ekki Samfylkingin í
hnotskurn?
Volvo eða Citroën?
Námskeið á vorönn 2013
Mistöð símenntunar í Hafnarfirði býður upp á
fjölbreytt, lærdómsrík og skemmtileg námskeið
nú á vorönn 2013. Meðal námskeiða sem er
boðið upp á:
• TUNGUMÁL: Enska. Danska. Norska.
Hollenska. Ítalska. Franska o.fl.
• ÍSLENSKA FYRIR ÚTLENDINGA
Islandzki dla audzoziemców
Icelandic as a second language
• HANDVERK OG LISTIR: Teikning. Olíumálun.
Myndlist/börn. Hnífagerð. Tálgun o.fl.
• HANNYRÐIR: Fatasaumur. Hekl. Heklaðir skart-
gripir, rósavettlingar og sokkar o.fl.
• HEILSA – ÚTLIT - HREYSTI: Förðun. Hár og
fegurð – léttar greiðslur. Nudd.
• TÖLVUR OG REKSTUR: Almennt tölvunám.
Excel. Facebook o.fl.
• TÓNLIST : Trommur.Gítar. Bassagítar. Hljóm-
borð. Blokkflauta o.fl.
• GARÐYRKJUNÁMSKEIÐ: Trjá- og runnaklipp-
ingar. Sáning og ræktun krydd og matjurta.
Vorverkin í garðinum o.fl.
• ÝMIS NÁMSKEIÐ: Lærum að yrkja rétt. Limrur.
Líf eftir dauðann. Góður svefn. Tískuteikning.
Ebay námskeið o.fl.
• FJARNÁM VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI
• STARFSRÉTTINDANÁMSKEIÐ FYRIR
DAGFORELDRA
Nánari upplýsingar og innritun í síma 585-5860
og á www.nhms.is
Ný námskrá vorannar 2013 er aðgengileg
heimasíðu skólans
á netinu: www.nhms.is
Aðalfundarboð
Aðalfundur Ísfélags Þorlákshafnar hf fyrir
starfsárið 2012 verður haldinn í kaffistofu félagsins
að Hafnarskeiði 12 í Þorlákshöfn fimmtudaginn
7. febrúar kl. 12.00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Ársreikningurinn mun liggja frammi á skrifstofu
félagsins viku fyrir aðalfund.
Stjórnin