Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 48
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING MENNTUN | 32
Í Hagaskóla hafa samtals fjöru-
tíu nemendur í 10. bekk valið það
í vetur að fræðast um fjármál í
tveimur kennslustundum á viku.
Þegar kíkt er inn í tíma er Edda
Hauksdóttir kennari að fræða
hluta þess hóps á líflegan hátt um
skattkort, persónuafslátt og tekju-
skattþrepin þrjú. Í lokin fá nem-
arnir það verkefni að reikna út
hvað einstaklingur með 850 þús-
und krónur á mánuði greiðir af
þeim í skatt. Að lokinni kennslu-
stund gefur hún sér tíma í smá
spjall.
„Við erum búin að bjóða upp á
fjármálafræðslu að minnsta kosti í
þrjá vetur. Ég spila kennsluna svo-
lítið af fingrum fram og er alltaf
að finna upp hjólið. Reyndar er
ýmislegt kennsluefni til og sumt
af því hef ég notað en mest tek ég
dæmi vítt og breitt úr daglega líf-
inu.“ Hún notar netið og skjávarpa
við kennsluna og kveðst óhrædd
sýna nemendum heimabankann
sinn, lánin sín og launaseðilinn til
að útskýra ýmsa liði. „Það er gott
að vera svolítið óspéhrædd,“ segir
hún brosandi. „Það góða við hrunið
er að nú þorir fólk að viðurkenna
að það eigi ekki fyrir hlutum. Á
tímabili var það bara tabú.“
Edda kveðst hafa unnið í banka
og einnig séð um bókhald fyrir
lítið fyrirtæki. „Ég hef orðið vitni
að því að krakkar koma til vinnu-
veitanda og eru beðnir um banka-
upplýsingar en hafa ekki hugmynd
um hvað átt er við, gefa jafnvel
upp númerið á debetkortinu sínu.
Þetta byrja ég á að útskýra fyrir
nemendum,“ segir hún. Hún kveðst
líka hafa lesið með þeim skil-
málana í sambandi við smálánin
og þeir hafi komið auga á fullt af
punktum sem hún hafði ekki hug-
mynd um. „Til dæmis var mér bent
á að það er litið á það sem brot á
samningi ef lántakandi fellur frá,“
nefnir hún.
Fjármálahugtök eru krufin í
tímum og hlutverkaleikir eru á
dagskrá að sögn Eddu. „Við þykj-
umst vera að leigja okkur íbúð og
gerum kostnaðaráætlun um leigu
og eigin framfærslu, einnig veljum
við okkur bíl á netinu. Krakkarnir
sjá fyrir sér afborgunina og bens-
ínið en hafa ekki pælt í hvað trygg-
ingar kosta, skoðun, bifreiðagjöld,
dekk, rúðuþurrkur og smurning og
fleira sem tilheyrir rekstri bíls,“
lýsir hún og segir frá öðru dæmi
sem kom unga fólkinu á óvart.
„Við ímynduðum okkur að
krakkarnir væru á leið í skólann
og það helltist eitthvað ógeð yfir þá
þannig að allt eyðilegðist sem þeir
væru í og með, en þeir slyppu sjálf-
ir óskaddaðir. Þeir áttu að gera
bréf til tryggingafélags um tjónið
og voru í sjokki yfir því hversu hár
sá reikningur var. Þeir eru með
iPhone, vasareikni, úr, skólatöskur,
skólabækur, eyrnalokka og í úlpum
sem kosta tugi þúsunda – jafnvel
með iPad í töskunni. Meðalverð á
útbúnaði nemanda var 200 þúsund
eins og hann labbaði út í skóla.“
Fleira tengir Edda daglega lífinu
í kennslustundum til að efla kostn-
aðarvitund nemenda. Til dæmis
hvað þeir eyða yfir árið í æfing-
argjöld, innkaup fyrir skólann,
keppnisferðir, píanótíma, vasapen-
inga, klippingar, fatnað, símagjöld,
strætókort og fleira. „Ég man
eftir einum nemanda sem sagði
þegar hann labbaði út: „Vá, að hún
mamma skuli ekki vera búin að
henda mér að heiman.“ Þeir voru
svo hissa á hvað þetta voru háar
fjárhæðir.“ gun@frettabladid.is
Dæmi tekin úr daglega lífi nu
Samningur um aðgerðir til að efl a fj ármálalæsi í grunn- og framhaldsskólum var nýlega undirritaður af menntamálaráðherra og for-
manni samtaka fj ármálafyrirtækja. Tveir framhaldsskólar og fj órir grunnskólar voru valdir til tilraunakennslu í byrjun. Hagaskóli var
einn þeirra en hann hefur haft fj ármálafræði sem valgrein síðustu þrjú ár. Það er Edda Kristín Hauksdóttir sem kennir hana.
VIÐ KENNSLU Edda útskýrir persónuafslátt og skattaþrep fyrir nemendum sínum í fjármálafræði í Hagaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GLÓEY ÞÓRA EYJÓLFSDÓTTIR
Ég valdi fjármálafræði af því mig
langaði að hafa einhverja vitneskju
um bílakaup, laun, skatta og annað.
Vinna í fjármálageiranum er ekki
markmið en vel hugsanleg.
ANNA RAGNHEIÐUR
TRYGGVADÓTTIR
Það er gott að kunna eitthvað um
fjármál í framtíðinni og mér finnst
ég hafa lært heilmikið. Ég er mjög
ánægð með þetta fag og finnst það
skemmtilegt.
BJARNI ÓLAFSSON
Ég prufaði fjármálafræðslu í 9. bekk
og hafði áhuga á að byggja ofan á
það. Mér finnst mikilvægt og hagnýtt
að kunna á svona hluti fyrir fram-
tíðina.
VALTÝR ÖRN KJARTANSSON
Það er alltaf verið að fjalla um fjár-
mál í fjölmiðlum og mig langaði að
skilja þau betur. Ég byrjaði að vinna
á síðasta ári og finnst betra að vita
eitthvað um skattamál.
Nemendur
hafa orðið
GUÐRÚN BERGMANN fjallar um ótal náttúrulegar leiðir til að öðlast stinna
og ferska húð og unglegra útlit. Hún fjallar að hluta um þetta í bók sinni
UNG Á ÖLLUM ALDRI, en það eru fleiri leyndarmál sem vert er að kynna sér.
Fimmtudaginn 31. janúar
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5,
kl. 18:30 - 21:00. Námsgögn með víðtækum
upplýsingum innifalin. Verð 4.900 kr.
Nánari upplýsingar og skráning á
ung@gudrunbergmann.is
og www.ungaollumaldri.is
Guðrún Bergmann
hefur haldið fjölda
fyrirlestra og námskeiða,
og skrifað bækur um bæði
heilsu, náttúrulækningar
og umhverfisvitund
Á námskeiðinu verður farið yfir:
• Hvað húðin í andlitinu segir þér um heilsufar líkamans
• Hvað hægt er að gera til að örva húðina og draga úr hrukkumyndun
án hjálpartækja eða krema sem innihalda skaðleg aukaefni
• Hvaða bætiefni styrkja og gera húðina stinnari
Betri hú› – unglegra útlit