Fréttablaðið - 24.01.2013, Qupperneq 50
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Sixto Rodriguez hefur slegið í
gegn eftir að heimildarmynd-
in Searching For Sugarman var
frumsýnd á síðasta ári.
Hinn sjötugi Rodriguez hefur
verið kallaður „mesta tónlistar-
átrúnaðargoð áttunda áratugarins
sem aldrei varð frægt“. Núna eftir
sýningu þessarar verðlaunuðu
myndar, sem var nýlega tilnefnd
til Óskarsverðlaunanna, virðist
sem hans tími í sviðsljósinu hafi
loksins runnið upp.
Hann er bókaður á tónleikum á
„heimavelli“ sínum í Suður-Afr-
íku, Ástralíu og Bandaríkjunum á
næstu mánuðum og í sumar spil-
ar hann á hátíðunum Glastonbury,
Coachella og Primavera. Einnig
spilar hann í hinni virtu tónleika-
höll Royal Albert Hall í London.
Í nóvember spilaði hann þrettán
sinnum fyrir fullu húsi, þrjú þús-
und manns, í Bretlandi og nýtur
því greinilega mikilla vinsælda
þar.
Þegar upptökustjórar sáu
Rodriguez spila á bar í Detroit
seint á sjöunda áratugnum héldu
þeir að þeir hefðu uppgötvað hinn
nýja Bob Dylan. Tónlistin var af
þjóðlagaætt með sækadelískum
undirtón og innihaldsríkum, and-
félagslegum textum um veru-
leikann í Detroit.
Einhverra hluta vegna var
bandarískur almenningur ekki
sammála. Fyrsta plata þessa
Bandaríkjamanns sem er af
mexíkóskum uppruna, Cold Fact,
fékk mjög góða dóma og einnig
sú næsta, Coming To Reality, en
sárafáir keyptu þær. Rodriguez
hvarf sjónum og orðrómur var
lengi uppi um að hann hefði fram-
ið sjálfsvíg uppi á sviði.
Eftir að sjóræningjaútgáfa af
Cold Fact komst til Suður-Afr-
íku varð hún ekki bara svakalega
vinsæl, heldur varð hún óopinber
biblía ungra mótmælenda gegn
aðskilnaðarstefnunni.
En það var ekki fyrr en tveir
aðdáendur Rodriguez, Stephen
„Sugar“ Segerman og Craig Bart-
holomew, komust að því að hann
væri enn á lífi og ætti heima í
Detroit án þess að hafa hugmynd
um að litið væri á hann sem goð-
sögn í Suður-Afríku, að boltinn fór
að rúlla.
Það eru ekki bara vel samin lög
og textar Rodriguez í bland við
Öskubuskusögu hans sem hafa
heillað fólk eftir að myndin kom
út. Hógværð hans og það hversu
laus hann er við alla tilgerð hefur
fallið í kramið því þessir mann-
kostir eru óvenjulegir í tónlistar-
bransanum. freyr@frettabladid.is
Það hafa orðið miklar breytingar á plötusölu í heiminum síðustu ár.
Bæði hefur niðurhal aukist á kostnað tónlistar á föstu formi og eins taka
netrisar eins og Amazon til sín stöðugt stærri hluta af því sem selst af
geisladiskum og vínyl.
Í síðustu viku bárust þær fréttir að HMV-verslunarkeðjan í Bretlandi
væri komin í greiðslu-
stöðvun. HMV, sem rekur
223 verslanir og er með um
4.000 manns í vinnu, er síð-
asta plötubúðakeðjan sem
eftir er á Bretlands eyjum.
Tower Records, Virgin
Megastore, Our Price, Zavvi
og allar hinar eru löngu
horfnar af sjónarsviðinu.
HMV-búðirnar hafa verið
með 38% markaðshlutdeild
í sölu á tónlist á föstu formi
í Bretlandi og um 27% af
sölu á DVD-diskum, en
samt hefur reksturinn ekki
gengið sem skyldi og salan
fyrir síðustu jól var langt
undir væntingum. Flaggskip
HMV er verslunin á Oxford
Street númer 150 í London
sem er stærsta plötubúð heims.
Fréttirnar af vandræðum HMV fengu mikil viðbrögð. Fyrsta HMV-plötu-
búðin var opnuð árið 1921, þannig að tónlistarunnendur í Bretlandi eru
aldir upp með þeim. Flestir hörmuðu fréttirnar, ekki síst plötuútgefendur,
en sumir sáu samt í þessu aukna möguleika fyrir sjálfstæðu plötubúðirnar.
Þær bjóða upp á persónulegri þjónustu og eiga auðveldara með að aðlaga
sig að breyttum aðstæðum. Hlutdeild HMV í sölu á vínylplötum er t.d.
mun lægri en í sölu á geisladiskum, sem segir sitt.
Á þriðjudag bárust hins vegar þær fréttir að Hilco-fyrirtækið, sem
sérhæfir sig í endurskipulagningu fyrirtækja sem komin eru í þrot, væri
að landa samningi um kaup á HMV. Hilco keypti HMV-keðjuna í Kanada
og rekur með ágætum árangri. Talið er að Hilco fái HMV á góðu verði þar
sem útgefendur á tónlist og kvikmyndaefni eru tilbúnir að ganga mjög
langt til þess að halda keðjunni á lífi.
Áfram sviptingar í plötusölu
TÓNNINN
GEFINN
Trausti Júlíusson
SLAPP FYRIR HORN HMV-verslunarkeðjan í
Bretlandi verður opin áfram.
Jussanam– Rio/Reykjavík
Sin Fang– Flowers
Anna von Hausswolff - Ceremony
Í spilaranum
Mögnuð endurkoma
hjá Sixto Rodriguez
Hinn sjötugi Rodriguez er á allra vörum eft ir myndina Searching For Sugarman.
SIXTO RODRIGUEZ Bandaríski tónlistarmaðurinn hefur heldur betur slegið í gegn
upp á síðkastið. NORDIPCHOTOS/GETTY
Heimildarmyndin Searching For Sugarman í
leikstjórn Svíans Malik Bendjelloul var bæði
tilnefnd til og vann fjölda verðlauna á síðasta
ári. Hún hlaut tvenn verðlaun á Sundance-
hátíðinni, lenti í öðru sæti hjá áhorfendum
á Tribeca-hátíðinni, var valin besta heim-
ildarmyndin hjá National Board of Review í
Bandaríkjunum og hlaut áhorfendaverðlaunin
á kvikmyndahátíðinni í Los Angeles. Á þessu
ári hefur hún verið tilnefnd bæði til bresku
BAFTA- og Óskarsverðlaunanna sem besta
heimildarmyndin.
Margverðlaunuð heimildarmynd
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Valdimar Yfir borgina
2 Moses Hightower Háa C
3 Ásgeir Trausti Nýfallið regn
4 Labrinth / Emeli Sandé Beneath You’re Beautiful
5 Retro Stefson Julia
6 Jónas Sigurðsson Hafið er svart
7 Blaz Roca / Ásgeir Trausti Hvítir skór
8 Ed Sheeran Give Me Love
9 Bruno Mars Locked Out of Heaven
10 Pink Try
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Retro Stefson Retro Stefson
3 Valdimar Um stund
4 Hjaltalín Enter 4
5 Dimma Myrkraverk
6 Of Monsters And Men My Head Is an Animal
7 Moses Hightower Önnur Mósebók
8 Jónas Sigurðsson Þar sem himin ber við haf
9 Raggi Bjarna Dúettar
10 Ýmsir Minning.tónl. um Ellý Vilhjálms
17.1.2013 ➜ 23.1.2013
ÁSGEIR TRAUSTIHLJÓMSVEITIN VALDIMAR
Miðasala opin alla virka daga kl. 12 – 17 í síma 5700 400.
24. janúar kl. 20.30
PÁLL ÓSKAR – Uppselt
31. janúar kl. 20.30
HELGI BJÖRNSSON – Ósóttar
pantanir farnar í sölu
6. febrúar kl. 20.30
EIVÖR PÁLSDÓTTIR – Uppselt
21. febrúar kl. 20.30
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
– Uppselt
7. mars kl. 20.30
ANDREA GYLFADÓTTIR
21. mars kl. 20.30
DIDDÚ
Miðaverð 3.300 kr.
-hljómar vel
Spjalltónleikar án hliðstæðu
Jón Ólafsson tekur á móti okkar
fremsta tónlistarfólki
AF FINGRUM FRAM
www.Salurinn.is