Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 54
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
Aðeins 9% af þeim leikstjórum
sem áttu 250 tekjuhæstu bíómynd-
irnar í Hollywood árið 2012 voru
konur. Þetta kemur fram í nýrri
könnun sem Rannsóknarmið-
stöð kvenna í sjónvarpi og kvik-
myndum í Bandaríkjunum gerði.
Þrátt fyrir þessa lágu prósentu-
tölu jókst fjöldi kvenna um 4%
frá árinu á undan. Ef teknir eru
saman allir leikstjórar, framleið-
endur, handritshöfundar, kvik-
myndatökumenn og klipparar var
fjöldi kvenna 18%. Í könnuninni
kom einnig fram að konur væru
líklegri til að vinna við heimildar-
myndir, dramamyndir og teikni-
myndir.
Konur aðeins
9% leikstjóra
KVENKYNS LEIKSTJÓRI Leikstjóri
hinnar vinsælu Zero Dark Thirty er
Kathryn Bigelow.
Angelina Jolie segir að fyrsta
ferðin sín til Afríku fyrir Samein-
uðu þjóðirnar hafi breytt lífi sínu.
Tilfinningarnar báru hana ofurliði
vegna þeirra bágbornu aðstæðna
sem hún varð vitni að. Henni var
ráðlagt að skrá líðan sína í dag-
bók til að hjálpa sér að vinna úr
því sem hún sá. Leikkonan segir
þessa reynslu hafa breytt sér. „Ég
veit að ég opnaði mig og vildi læra
meira um heiminn og um annað
fólk og hvað er að gerast í kring-
um mig. Þannig að ég breyttist,“
sagði Jolie, sem er núna góðgerð-
arfulltrúi Sameinuðu þjóðanna.
Fyrsta ferðin
breytti lífi nu
ANGELINA JOLIE Fyrsta ferðin hennar
til Afríku breytti lífi hennar.
NORDICPHOTOS/GETTY
Jennifer Lopez þakkar kær-
asta sínum, dansaranum Casper
Smart, fyrir að
hafa stutt sig í
gegnum skilnað
í nýju viðtali við
tímaritið People.
Töluverður ald-
ursmunur er á
parinu, en Smart
er átján árum
yngri en Lopez.
„Ég var
nýkomin úr
stórum, erfiðum
skilnaði og hann
hjálpaði mér að
verða heil aftur. Hann hefur verið
til staðar fyrir mig þegar ég þarf
á að halda,“ sagði Lopez í viðtal-
inu.
Hún segist meðvituð um hið
stóra aldursbil sem sé á milli
hennar og Smart, en að það íþyngi
henni ekki. „Við erum ánægð
þessa stundina. Við gerum hvort
annað hamingjusamt.“
Hamingjusöm
með Smart
JENNIFER LOPEZ
Þriðja plata elektrósveitarinnar Bloodgroup
kemur út 4. febrúar og heitir Tracing Echoes.
Fyrsta smáskífulagið, Fall, hefur hljómað
í útvarpinu undanfarið. Það fékk á dögun-
um umfjöllun hjá enska blaðinu Guardian.
„Hljómsveitin nær að aðskilja sig frá áhrifa-
völdum sínum með stórum poppmelódíum
sínum. Þrátt fyrir alla tilraunakenndu hljóm-
ana og hljóðgervlahávaðann er það hið æðis-
lega viðlag sem gerir gæfumuninn í laginu,“
sagði gagnrýnandinn.
Tracing Echoes kemur út hjá Kölska á
Íslandi en erlendis á vegum AdP, sem gaf
einnig út síðustu plötu sveitarinnar Dry
Land, og Sugarcane Recordings, sem er með
David Lynch, Hot Chip og Hercules & Love
Affair á sínum snærum.
Forsala á plötunni verður á Tónlist.is
frá og með 31. janúar. Einnig verður hægt
að hlýða á plötuna í hlustunarpartíi á hár-
greiðslustofunni Sjoppunni annað kvöld
klukkan 21.
Bloodgroup gerði nýverið samning við
umboðsskrifstofuna Projekta og heldur í
tónleikaferð um Evrópu stuttu eftir útgáfu
Tracing Echoes sem verður nánar tilkynnt
um síðar. Það stefnir því allt í annasamt ár
hjá sveitinni.
Bloodgroup á leiðinni með glænýja plötu
Elektrósveitin Bloodgroup gefur út sína þriðju plötu, Tracing Echoes, í byrjun næsta mánaðar.
NÝ PLATA Bloodgroup gefur út nýja plötu 4. febrúar
sem heitir Tracing Echoes.