Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 58

Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 58
8 LIÐA ÚRSLIT Rússland - Slóvenía 27-28 (13-14) Þýskaland - Spánn 24-28 (14-12) Danmörk - Ungverjaland 28-26 (18-11) Frakkland - Króatía 23-30 (12-13) UNDANÚRSLIT Á MORGUN Slóvenía - Spánn kl. 17.15 Danmörk - Króatía kl. 20.30 ÚRSLIT DOMINOS-DEILD KVENNA Grindavík - Snæfell 71-76 (30-32) Grindavík: Crystal Smith 27/6 fráköst, Petrúnella Skúladóttir 22/7 fráköst, Helga Rut Hallgríms- dóttir 7/5 fráköst, Jeanne Lois Figeroa Sicat 6, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 3, Harpa Rakel Hallgrímsdóttir 2, Berglind Anna Magnúsdóttir 2, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 2. Snæfell: Hildur Björg Kjartansdóttir 22/10 fráköst, Kieraah Marlow 18/13 fráköst, Hildur Sigurðardóttir 16/8 fráköst/5 stoðsendingar, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 8/10 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 6, Rósa Indriðadóttir 3, Alda Leif Jónsdóttir 3/4 fráköst. Keflavík - Njarðvík 99-83 (37-51) Keflavík: Jessica Ann Jenkins 33/7 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 17/12 fráköst/3 varin skot, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 16/8 fráköst/5 stolnir, Pálína Gunnlaugsdóttir 14/5 fráköst/9 stoðsend- ingar/5 stolnir, Ingunn Embla Kristínardóttir 11, Bryndís Guðmundsdóttir 4/10 fráköst, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2, Sandra Lind Þrastardóttir 2. Njarðvík: Lele Hardy 39/24 fráköst/8 stoðsending- ar, Erna Hákonardóttir 9, Svava Ósk Stefánsdóttir 8/6 fráköst, Guðlaug Björt Júlíusdóttir 7, Salbjörg Sævarsdóttir 6, Sara Dögg Margeirsdóttir 5, Eva Rós Guðmundsdóttir 4, Emelía Ósk Grétarsdóttir 3, Ásdís Vala Freysdóttir 2. Haukar - Valur 61-66 (34-34) Haukar: Siarre Evans 19/16 fráköst/8 stoðsend- ingar, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 19/5 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 8/4 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 7/4 fráköst/6 stolnir, Auður Íris Ólafsdóttir 4, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 2, Dag- björt Samúelsdóttir 2. Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 25/6 fráköst/5 stoðsendingar, Jaleesa Butler 15/11 fráköst/4 varin skot, Guðbjörg Sverrisdóttir 13/7 fráköst/10 stoðsendingar, Hallveig Jónsdóttir 6/4 fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 5/10 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 2, Þórunn Bjarnadóttir 0/8 fráköst. KR - Fjölnir 74-69 (32-34) KR: Shannon McCallum 43/14 fráköst/5 stolnir/5 varin skot, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 17/11 fráköst/6 stoðsendingar, Björg Guðrún Einars- dóttir 7, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 3/12 fráköst, Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir 2, Helga Einarsdóttir 2/7 fráköst, Rannveig Ólafsdóttir 0/4 fráköst. Fjölnir: Britney Jones 28/7 fráköst/6 stoðsend- ingar, Bergdís Ragnarsdóttir 19/14 fráköst, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 8, Fanney Lind Guðmundsdóttir 5/10 fráköst/4 varin skot, Eyrún Líf Sigurðardóttir 4, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 3/12 fráköst/4 varin skot, Eva María Emilsdóttir 2/5 fráköst. SÍMABIKAR KVENNA Fylkir - FH 17-28 (8-12) Fjölnir - Selfoss 20-29 (11-13) Stefanía Ósk Sigurjónasdóttir 9– Hildur Einars- dóttir 7, Kristrún Steinþórsdóttir 5. ENSKA ÚRVALSDEILDIN Arsenal - West Ham 5-1 0-1 Jack Colilson (18.), 1-1 Lukas Podolski (22.), 2-1 Olivier Giroud (47.), 3-1 Santi Cazorla (53.), 4-1 Theo Walcott (54.), 5-1 Olivier Giroud (57.). ENSKI DEILDABIKARINN Swansea - Chelsea 0-0 Swansea vann samanlagt, 2-0, og mætir Bradford í úrslitaleik keppninnar í næsta mánuði. TENNIS Fyrsti vísir að kynslóðaskiptum meðal tenniskvenna gerði vart við sig á Opna ástralska meistaramótinu er hin nítján ára Sloane Stephens frá Bandaríkjunum sló Serenu Williams úr leik í fjórðungsúrslitum, 2-1. Williams hefur borið höfuð og herðar yfir stöllur sínar að undanförnu og vann tvö síð- ustu stórmót síðasta árs auk gullverðlauna á Ólympíuleikunum. Þess ber þó að geta að hún hefur verið að glíma við meiðsli í baki og ökkla en úrslitin þóttu samt koma á óvart. Stephens mun sennilega komast í hóp 20 efstu á heimslistanum innan skamms en hún var að spila í fyrsta sinn í fjórðungsúrslitum stórmóts. - esá Táningur sá við Serenu KÖRFUBOLTI Magnús Þór Gunnars- son stórskytta út Keflavík, stund- um kallaður Maggi Gun, stóð ekki undir nafni fyrstu tvo mánuði tímabilsins enda ískaldur fyrir utan þriggja stiga línuna. „Tímabilið byrjaði ömurlega hjá mér. Ég handarbrotnaði rétt fyrir mót og það var eiginlega allt í volli hjá mér. Það var ekki rosa- lega mikill áhugi hjá mér og ég var bara leiður,“ segir Magnús Þór en nú er aðra sögu að segja af kapp- anum og Keflavíkurliðinu sem er líklegt til afreka það sem eftir lifir tímabilsins. Keflvíkingar töpuðu fyrstu fimm leikjum tímabilsins og Magnús klikkaði á 32 af 42 þriggja stiga skotum sínum í þessum leikj- um. Lágpunktur var þó örugglega í tveggja stiga tapi á heimavelli á móti KR þar sem hann klikkaði á öllum sjö skotum sínum og skoraði hvorki stig né gaf stoðsendingu á 31 mínútu. Nú skal ég byrja tímabilið mitt „Síðan lentum við á móti KR í 32-liða úrslitum bikarsins. Þá sagði ég við Sigga Ingimundar þjálfara: Nú skal ég byrja tímabil- ið mitt,“ segir Magnús sem skor- aði 27 stig og sjö þrista í leiknum. Magnús hefur hækkað meðalskor sitt úr 8,6 stigum í leik í október og nóvember upp í 20,4 stig í leik í desember og janúar. „Það höfðu allir áhyggjur af mér en ég vissi alveg sjálfur að ég ætti að koma til baka. Þetta ræðst allt saman í febrúar og síðan í apríl eða maí. Það var því alveg nóg eftir af tímabilinu. Ef maður hefði gefist upp þá væri maður ekkert í þessu lengur. Maður er aðeins sterkari en þetta,“ segir Magn- ús en hann fékk líka góða hjálp á „heimavelli“. Pálína á fimmtíu prósent í þessu „Ég á svo rosalega skemmtilega kærustu og hún hjálpaði mér heil- mikið. Við fórum bara í gegnum þetta og ég er kominn í fínt form núna og á bara eftir að verða betri og betri þegar líður að úrslita- keppni. Eigum við ekki að segja að Pálína eigi fimmtíu prósent í þessu. Við Pálína tókum til hausn- um á mér og þá fór maður að hitta,“ sagði Magnús um þátt kær- ustu sinnar, Pálína Gunnlaugsdótt- ur, í endurkomu sinni. Komnir með Keflavíkurkana Keflvíkingar hafa tvisvar sinnum þurft að skipta um Bandaríkja- mann í vetur en Magnús er ánægð- ur með þann nýjasta, Billy Bapt- ist. Keflavík hefur unnið alla fjóra leiki sína frá því að hann mætti fyrst í Toyota-höllina. „Við erum núna komnir með liðið sem við ætluðum að vera með. Við skiptum um tvo Kana og það hefur alltaf áhrif líka. Nú erum við komnir með mann sem er svona Keflavíkurkani. Hann er með rétta viðhorfið, stæla og hefur mikið sjálfsálit,“ segir Magnús sem gerir sér líka grein fyrir mik- ilvægi sínu. „Ef ég spila eins og maður þá spilar liðið betur því það smitar út frá sér. Nú eru bara allir glað- ir og hoppandi hamingja,“ segir Magnús og bætir við: „Við erum með hörku lið og stefnum á að vinna þennan titil. Eins og liðið hjá okkur er í dag þá eigum við hörku- góða möguleika,“ sagði Magnús að lokum. ooj@frettabladid.is Við Pálína tókum til í hausnum á mér Magnús Þór Gunnarsson hefur sýnt á sér tvær hliðar í vetur. Hann var „ömurlegur“ eins og hann segir sjálfur í október og nóvember en tímabilið hans byrjaði að eigin sögn í fyrsta leik desembermánaðar. Magnús Þór Gunnarsson vann þriggja stiga skotkeppni Stjörnuleiksins um síðustu helgi og var það í þriðja sinn sem hann vinnur þessa keppni. Magnús vann hana einnig árin 2005 og 2010 og er fyrstur í 25 ára sögu Stjörnuleiks KKÍ til að vera þrisvar sinnum þriggja stiga kóngur. Þekktar stórskyttur eins og Valur Ingimundarson (1989, 1990), Brenton Birmingham (2001, 2002), Teitur Örlygsson (1996, 2000), Jeb Ivey (2004, 2006) og Guðjón Skúlason höfðu allir unnið þriggja stiga keppni Stjörnuleiksins tvisvar sinnum. „Ég var alveg búinn að ákveða það að vinna þessa þriggja stiga keppni og þannig fór það bara,“ svaraði Magnús spurður um sigurinn í þriggja stiga keppninni um síðustu helgi. Fyrstur til að vinna þrisvar sinnum Tvær hliðar á Magga Gun í vetur 8 LEIKIR Í OKTÓBER OG NÓVEMB. Stig í leik 8,6 3ja stiga körfur í leik 1,9 Þriggja stiga skotnýting 21,4 prósent Plús og mínus þegar hann er inn á -8 5 LEIKIR Í DESEMBER OG JANÚAR Stig í leik 20,4 3ja stiga körfur í leik 3,8 Þriggja stiga skotnýting 37,3 prósent Plús og mínus þegar hann er inn á +39 - Aðeins leikir í Domino‘s-deild karla. BARDAGAÍÞRÓTTIR Gunnar Nel- son fékk í gær nýjan andstæðing fyrir UFC-bardaga sinn þann 16. febrúar næstkomandi. Justin Edwards varð að draga sig úr bardaganum vegna meiðsla og mætir Gunnar nú Jorge Santiago frá Mexíkó. Santiago er 31 árs og hóf UFC- feril sinn árið 2006. Hann á að baki 35 bardaga og vann tíu þeirra. Hann þykir erfiðari and- stæðingur en Edwards. - esá Gunnar mætir Santiago HANDBOLTI Fjórðungsúrslitin fóru fram á HM í handbolta á Spáni í gær. Balkansskagaþjóðirnar Sló- venía og Króatía unnu stærstu sigrana en þar að auki komust Danir og Spánverjar áfram í und- anúrslitin. Króatía gerði sér lítið fyrir og lagði ríkjandi heims- og Ólympíu- meistara Frakklands í lokaleik dagsins, 30-23. Króatía byrjaði betur í leiknum og hélt forystunni allan leikinn, þó svo að Frakk- ar hafi aldrei verið langt undan. Króatar náðu þó að auka forystu sína jafnt og þétt á lokamínútun- um og fögnuðu þeir afar sætum sigri í leikslok. Slóvenía komst í undanúrslit á HM í fyrsta sinn í sögu þjóðar- innar með góðum sigri á Rúss- landi. Slóvenar mæta gestgjöfum Spánar sem unnu sigur á seigum Þjóðverjum, 28-24. Danir höfðu að síðustu betur gegn Ungverjum og munaði mestu um frábæran fyrri hálf- leik. Ungverjar náðu að minnka muninn í eitt mark í síðari hálf- leik en nær komst liðið ekki. Frakkland úr leik á HM SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.