Fréttablaðið - 24.01.2013, Síða 62
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46
DRYKKURINN
Stephan Stephensen, meðlimur
hljómsveitanna GusGus og Gluteus
Maximus, er mikill skútuáhuga-
maður og á hlut í þremur skútum.
Ein þeirra er staðsett á Íslandi en
hinar erlendis.
Spurður út í skútuáhuga sinn
segir Stephan, öðru nafni President
Bongó, áhugann hafa fæðst yfir
einkar saklausum kvöldverði í New
York fyrir átta til tíu árum. „Áhug-
inn á siglingum fæddist hins vegar
á seglbáti milli Ibiza og Formentera
þegar ég var tólf ára og fékk kusk
í augað. Það var fjarlægt með hús-
ráði kapteinsins en framkvæmt af
sætri stelpu og sleikt úr. Et voilá.“
Stephan er með fullgild rétt-
indi til að sigla allt að 24 metra
langri skútu og að sjálfsögðu til að
halda teiti um borð í hverri höfn.
„Við Gluteus-menn hljótum að taka
sjóleiðina á Sónar í Barselóna í
sumar,“ segir hann en tvíeykinu
hefur verið boðið að spila á hátíð-
inni í júní ásamt fleiri Íslendingum.
Hvernig er tilfinningin að sigla
um á skútu? „Að sigla á rúmsjó án
þess að sjá land er tilfinning sem
allir ættu að upplifa, helst undir
seglum. Þetta er frelsi sem á sér
fáar hliðstæður. Vindurinn, sjór-
inn og söngur bátsins er eina tón-
listin sem maður þarf á að halda í
siglingum.“
Aðspurður segir hann Sónar-
hátíðina í Reykjavík, sem verður
haldin um miðjan febrúar, leggj-
ast vel í sig. „Bæði GusGus og Glu-
teus Maximus spila og það verður
einkar gaman að fá að taka þátt
með þeim báðum. Það er nefnilega
ekkert sjálfsagt í þeim efnum því
yfirstjórnin í Katalóníu hélt fast
um valdtauminn.“ - fb
Bongó á hlut í þremur skútum
President Bongó er mikill skútuáhugamaður og hefur siglt um heimsins höf.
VIÐ ÞERNEY President Bongó siglir um
á skútunni sinni við Þerney. Hann segir
mikið frelsi felast í skútusiglingum.
Hinn vinsæli danski raftónlistar-
maður og plötusnúður Trentemöll-
er spilar á Sónar-hátíðinni í Hörpu
um miðjan febrúar.
Trentemöller hefur á ferli sínum
endurhljóðblandað lög fyrir Moby,
Pet Shop Boys og The Knife með
góðum árangri. Hann hefur gefið
út tvær plötur og kom sú síðasta,
Into the Great Wide Yonder, út
fyrir þremur árum. Trentemöller
hefur nokkrum sinnum áður sótt
Ísland heim og m.a. spilað á Air-
waves-hátíðinni.
Enska elektrósveitin LFO spil-
ar einnig á Sónar. Hún er á mála
hjá útgáfunni Warp og hefur verið
starfrækt í áratug. Hljómsveitin
gerði eitt sinn endurhljóðbland-
aða útgáfu af lagi Bjarkar, Hyper-
ballad.
Endanleg dagskrá Sónar-hátíð-
arinnar er þar með tilbúin. James
Blake, Squarepusher, Mode-
selektor, Kasper Björke, Pachanga
Boys, Ásgeir Trausti, Mugison,
GusGus og Retro Stefson koma
einnig fram á hátíðinni ásamt
fjölda annarra flytjenda.
Samtals koma fimmtíu lista-
menn fram í Hörpu 15. og 16.
febrúar. Dagskráin hefst báða dag-
ana klukkan 18 og stendur yfir til
þrjú um nóttina. - fb
Trentemöller spilar á Sónar-hátíð
Danski plötusnúðurinn Trentemöller þeytir skífum í Hörpu um miðjan febrúar.
Sólstafir spilar á sínum fyrstu tónleikum undir eigin formerkjum í
tæpt ár á Gamla Gauknum á laugardagskvöld. Þetta verða einnig síð-
ustu tónleikar rokksveitarinnar áður en hún fer í Evróputúr. Vinna við
næstu plötu er sömuleiðis í fullum gangi.
„Við verðum á flakki um Evrópu mestallt árið. Svona hefur þetta
verið síðastliðin ár en þó aukist með ári hverju,“ segir gítarleikarinn
Sæþór Maríus. Síðustu tónleikar Sólstafa erlendis voru á skemmti-
ferðaskipi sem sigldi frá Miami til Bahamaeyja. „Það var mikið ævin-
týri og ólíkt því sem við erum vanir,“ segir hann. „Við spiluðum á
sundlaugadekkinu í glampandi sól. Fólk var þarna að „headbanga“ í
heita pottinum og fá sér sundsprett.“
Þeir síðustu fyrir Evróputúr
SÓLSTAFIR Rokkararnir spila á Gamla Gauknum á laugardagskvöld.
Á SÓNAR Trentemöller spilar á sónar-
hátíðinni um miðjan febrúar.
„Það er bjór en ég á enga uppá-
haldstegund. Ég er svo mikill
sveitamaður að ég drekk bara það
sem er í boði.“
Grímur Hákonarson leikstjóri.
„Það má segja að ég byrji á toppn-
um enda er þetta draumur að ræt-
ast,“ segir kvikmyndagerðarmað-
urinn Gestur Valur Svansson sem
hefur selt sína fyrstu bíómynd í
fullri lengd til Hollywood.
Það er enginn annar en gaman-
leikarinn Adam Sandler sem keypti
handritið af Gesti en samningar
voru undirritaðir í gær. Myndin
ber vinnuheitið The Last Orgasm,
en samkvæmt samningum má
Gestur ekki tjá sig nánar um sögu-
þráð myndarinnar. Hann náði fyrst
sambandi við Sandler fyrir þremur
árum. „Til að gera langa sögu stutta
þá komst ég yfir tölvupóstfang-
ið hans Sandlers gegnum þriðja
aðila árið 2010 og við byrjuðum
að standa í tölvupóstsamskiptum,“
segir Gestur. Hann hitti svo leikar-
ann er hann var í Los Angeles vorið
2010 að heimsækja vin sinn, danska
leikarann Casper Christensen úr
Klovn-þáttunum. „Ég fór á fund-
inn ásamt Casper, en báðir vorum
við með þrjár hugmyndir hvor til
að kynna fyrir Sandler. Sá fundur
gekk ágætlega en honum leist best
á eina hugmynd hjá mér sem hann
bað mig um að þróa áfram.“
Gestur þróaði hugmyndina með-
fram öðrum verkefnum og fékk
svo póst frá Sandler í haust. „Hann
spurði hvernig gengi og ég bara
dreif mig í að klára og sendi svo-
kallaða handritsbók, eða 15 til 20
blaðsíðna handrit, til hans. Ég fékk
viðbrögð um leið þar sem hann var
yfir sig hrifinn og bað mig um að
koma strax út,“ segir Gestur sem
fór út í byrjun desember þar sem
samningar voru teiknaðir upp.
Gestur sér sjálfur um að skrifa
handritið ásamt einhverjum með-
höfundum frá Hollywood, svo hann
mun sitja sveittur við lyklaborðið
næstu mánuði. Gestur hefur feng-
ið vinnuaðstöðu hjá Casper í Kaup-
mannahöfn. „Ég er með svo mikinn
athyglisbrest að ég verð að vinna
eftir markvissu plani og láta halda
mér við efnið. Ég er mjög sáttur við
samninginn og mitt hlutfall þó að
ég vilji ekki nefna neinar upphæð-
ir. Aðalatriðið er að myndin falli í
góðan jarðveg, enda er þetta gríð-
arlegt tækifæri fyrir mig að kom-
ast að í þessum stóra kvikmynda-
heimi,“ segir Gestur. Hann sér þó
ekki fyrir sér að setjast að í Holly-
wood í framhaldinu. „Nei, það er
alltof stórt og mikið. Í mesta lagi
myndi ég flytja til Danmerkur.“
alfrun@frettabladid.is
Seldi Adam Sandler
handrit að bíómynd
Kvikmyndagerðarmaðurinn Gestur Valur Svansson hefur selt leikaranum Adam
Sandler handrit sitt að kvikmynd. Samningar voru undirritaðir í gær og Gestur
Valur er mjög sáttur með sinn hlut. Þetta er hans fyrsta bíómynd í fullri lengd.
DRAUMUR AÐ RÆTAST Adam Sandler hefur keypt kvikmyndahandrit Gests Vals
Svanssonar en samningar voru undirritaðir í gær. Vinnuheiti myndarinnar er The
Last Orgasm og er fyrsta kvikmynd Gests í fullri lengd. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
■ Adam Sandler er leikari, handritshöfundur, leikstjóri og
framleiðandi.
■ Best þekktur fyrir hlutverk sín í myndunum Billy Ma-
dison (1995), Happy Gilmore (1996), The Waterboy (1998),
Big Daddy (1999) og Mr. Deeds (2002).
■ Stofnaði framleiðslufyrirtæki sitt Happy Madison
árið 1999 og framleiðir meðal annars sjón-
varpsþættina Rules of Engagement.
■ Gestur Valur Svansson er best þekktur hér
á landi fyrir gamanþættina Tríó sem hann
skrifaði, leikstýrði og framleiddi og voru
sýndir í Ríkissjónvarpinu 2011.
Umfangsmikill Sandler
21.-27. janúar
Verðdæmi:
1.390
ALLUR FISKUR Í FISKBORÐI
kr
.k
g
.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Opi
ð k
l. 7
-18
.15
Lau
gar
d. 1
0-1
5
Laxaflök marineraður með Lemmon/Butter . . . 1.390
Laxaflök, fersk . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390
Þorskhnakkar . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390
Ýsuflök roðlaus/beinlaus . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390
Löngusteikur marineraðar Indversku karrí . . 1.390
Löngusteikur marineraðar á Gríska vísu . . . . 1.390
Rauðsprettuflök glæný . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390
Allir fiskréttir . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 1.390