Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 20
31. janúar 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, boðaði til fundar með íbúum Grafarvogs hinn 29. janúar sl. en tilgangur fundarins var að kynna sýndarlýðræði það sem svo- kallaður Besti flokkur og Samfylkingin hafa innleitt í borginni og er ekki ósvipað hugmyndafræði keisaranna í Róm til forna – brauð og leikar. Borgararnir fá það á til- finninguna að þeir ráði einhverju en í reynd er aðeins um örfáar milljónir að ræða. Fundarmenn spurðu borgarstjórann beinskeyttra spurninga, enda hefur fram- koma borgaryfirvalda gagnvart Grafar- vogsbúum verið til skammar á umliðnum misserum og mikil reiði undirliggjandi meðal íbúa hverfisins. Í þessu sambandi nægir að nefna sameiningu skóla í óþökk íbúa og samning borgarinnar við ríkið um að ekki verði ráðist í neinar samgöngubæt- ur næstu tíu árin. Jón svaraði fáu, þrátt fyrir að embættismenn lægju á eyrum hans með ábendingar. Honum virtist helst liggja á hjarta að „fá skósmiðinn aftur inn í hverfið“ svo vitnað sé orðrétt í ræðu hans. Undirritaður var á fundinum og spurði borgarstjórann hvort hann væri stoltur af því að hafa hækkað skatta og gjöld á heim- ilin í borginni upp í topp og margfaldað kostnað við yfirstjórn á sama tíma og grunnþjónustan væri stórlega skert. Annar fundarmaður benti á bruðlið á fleiri stöðum, þar sem ónýtir húskofar í miðbæ og Vesturbæ hefðu verið keyptir fyrir á annan milljarð króna að ógleymdum kostn- aði við endurgerð þeirra. Ekki skorti fjár- muni þegar kæmi að gæluverkefnum Jóns Gnarr, en borið við fjárskorti þegar sinna þyrfti brýnustu grunnþjónustu, svo sem sorphirðu og lýsingu borgarinnar. Ýmsar fleiri beinskeyttar spurningar bárust borgar stjóranum, enda af mörgu að taka. Eftir að hafa komið heim af fundinum skrifar Jón Gnarr færslu á Fésbókarsíðu sína og sakar íbúa Grafarvogs um að leggja sig í „einelti“ – og ekki nóg með það – hann sakar þá um að beita sig „ofbeldi“. Er það ofbeldi að spyrja áleitinna spurninga þegar mikil réttmæt reiði er undirliggjandi? Er það einelti að krefja borgarstjórann í Reykjavík svara við málefnum er varða borgarana? Er ekki kominn tími til að borg- arstjórinn í Reykjavík hugsi sinn gang? Gnarr hættir sér í Grafarvog LÝÐRÆÐI Björn Jón Bragason sagnfræðingur ➜ Er það ofbeldi að spyrja áleitinna spurninga þegar mikil réttmæt reiði er undirliggjandi? Er það einelti að krefja borgarstjórann í Reykjavík svara við málefnum er varða borg- arana? Trefjaríkt 10 g trefjar í 100 g Inniheldur náttúruleg trefjaefni sem viðhalda heilbrigðri meltingu. ORKA SEM ENDIST Weetabix er frábær leið til að byrja daginn. Veldu næringar- ríkan morgunverð sem heldur þér gangandi fram að hádegi. Í skýrslunni, sem alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið McKinsey vann um hagvaxtarmöguleika á Íslandi og birti síðastliðið haust, var lagt til að settur yrði á fót samráðshópur full- trúa stjórnmálaflokkanna og ýmissa hagsmunaaðila til að hrinda í framkvæmd ýmsum hugmyndum sem þar komu fram. Slíkar tillögur hafa áður verið settar fram, en sjaldnast náð flugi. Það er þess vegna raunverulegt fagnaðarefni að tilkynnt skuli hafa verið um stofnun slíks samráðsvettvangs í síðustu viku, ekki sízt af því að hugur virðist fylgja máli og ætlunin er að raunverulega komi eitthvað út úr starfi hans. Ragna Árnadóttir, aðstoðar- forstjóri Landsvirkjunar, er formaður hópsins en þar sitja meðal annars forystumenn allra flokka á þingi, fulltrúar samtaka vinnumarkaðarins, fulltrúar fyrirtækja og stjórnsýslu. Auk þess á verkefnastjórn, skipuð ýmsum sérfræðingum, að starfa með hópnum og leggja fram „áþreifanlegar tillögur um ákveðna hluti“ eins og Friðrik Már Baldursson prófessor, sem stýrir störfum hennar, orðaði það hér í blaðinu. Þetta framtak er til fyrirmyndar og í raun næsta ótrúlegt að til dæmis leiðtogar stjórnmálaflokkanna vilji taka þátt í slíku starfi á kosningavetri, þegar þeir ættu venju samkvæmt frekar að vera á harðahlaupum hver í sína áttina að skapa sér sérstöðu en að leita að sameiginlegum lausnum. En það er reyndar gamla, íslenzka venjan sem hefur ekki endilega skilað góðum árangri. Vonandi skilar nefndarstarfið að minnsta kosti því að stjórn- málamenn og forystumenn á vinnumarkaði, atvinnulífi og í háskólasamfélaginu séu á sömu blaðsíðu í greiningu sinni á stöðu og vanda íslenzks atvinnulífs, en á það virðist hafa vantað veru- lega allt þetta kjörtímabil. Ef skilningurinn á stöðunni er sá sami, er líklegra að samstaða náist um breytingar til hins betra. Ef vel tekst til, getur komið út úr því einhvers konar áætlun til langs tíma fyrir íslenzkt atvinnulíf. Stóra spurningin er hins vegar hvort þessi breiði, vel skipaði hópur ber gæfu til að horfa á heildarhagsmuni þjóðarinnar og gera út frá þeim tillögur um aðgerðir sem geta aukið hagvöxt og hagsæld eða hvort menn velta ofan í gamlar skotgrafir sérhags- muna. Í McKinsey-skýrslunni er til dæmis bent á óhagkvæmni og framleiðniskort í innlenda verzlunar- og þjónustugeiranum og í bankakerfinu. Ef vinda á ofan af henni þarf að fækka fólki og vinnustöðum í þessum geirum og beina kröftunum í aðrar greinar. Þar er líka bent á óhagkvæmni ofurtolla og niður- greiðslna óarðbærrar atvinnustarfsemi í landbúnaði. Eigi að takast að útvega vaxtargreinum starfsfólk með rétta menntun og sérhæfingu þarf að gera róttækan uppskurð á menntakerfinu, sem getur þýtt að ýmsar rótgrónar stofnanir missi spón úr aski sínum. Þannig mætti áfram telja. Skýrsla McKinsey er full af hugmyndum, sem hafa komið fram áður og myndu bæta lífskjör þjóðarinnar ef þeim yrði hrint í framkvæmd, en sérhagsmunaöfl hafa staðið í vegi fyrir því. Tækifærin eru klárlega fyrir hendi, en spurningin er hvort þetta landslið í töku ákvarðana, sem búið er að stilla upp, er reiðubúið að stökkva á þau. Stofnun samráðsvettvangs um aukna hagsæld er framfaraskref: Á sömu blaðsíðu? Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Einelti Gömlu pönkararnir Jón Gnarr og Einar Örn Benediktsson eru ægilega aumir vegna þess að einhver spældur maður í Grafarvogi kallaði borgar- stjórann hyski á opnum fundi. Það er leitt að heyra. Enn leiðara er að heyra að þeim finnist þessi óvægna gagn- rýni nokkurra borgarbúa á starfshætti þeirra jafnast á við einelti. Varla getur fólk búist við því að stjórn- málamenn séu með þykkari skráp en almenningur og láti hvað sem er yfir sig ganga. Leiðinlegt Þetta er ekki í fyrsta sinn sem einelti er nefnt í tengslum við borgarmálin. Þannig gagnrýndi rithöfundur- inn Auður Jónsdóttir liðsmenn Besta flokks Jóns og Einars fyrir eineltislegt hátterni í kosninga- baráttunni um borgina 2010, sem henni fannst birtast hvað skýrast í heimildarmyndinni Gnarr. Þar talar Jón fjálglega um hversu leiðinlegir sitjandi borgarfulltrúar séu og gerir grín að klæðaburði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Í myndinni kemur Jón hins vegar með sterk rök gegn þessu: Þótt ekki megi gera grín að borgar- búum, sem séu skjólstæðingar þeirra, gegni öðru máli um stjórnmálamenn- ina sjálfa. Þeim megi stríða og ganga út af leiðinlegum fundum þeirra. En það er líklega bara fólk í Besta flokknum sem má pönkast á stjórnmála- mönnum. Engin tengsl Fyrsta eintak Tímans kemur út í dag, í ritstjórn Helga Þorsteinssonar. Helgi hefur verið bendlaður við Fram- sóknarflokkinn og sagður hafa reynt að kaupa hina og þessa fjölmiðla með fulltingi og í þágu flokksins. Helgi þvertók fyrir þessi tengsl í Fréttablaðinu á laugardag. Nýr vefur Tímans fór í loftið á mánudaginn var. Ef Helgi hefði viljað að fólk tryði því að miðillinn væri ótengdur Fram- sókn hefði hann kannski ekki átt að byrja á að birta fimm aðsendar greinar á vefnum, þar af tvær eftir Sigmund Davíð Gunnlaugs- son og tvær eftir Frosta Sigurjónsson. stigur@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.