Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 18
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Innilegar þakkir fyrir þátttökuna
í jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar
og stuðning við innanlandsaðstoð.
Við komum gjöfinni þinni í þakklátar
hendur, þangað sem hennar er
virkilega þörf.
www.help.is
Innlán heimilanna drógust saman
um 5 milljarða króna í desember.
Er það þó nokkur mánaðar lækkun
en til samanburðar lækkuðu inn-
lán heimilanna samanlagt um 12,7
milljarða fyrstu ellefu mánuði
síðasta árs.
Þetta kemur fram í tölum sem
Seðlabankinn birti í síðustu viku
og greining Íslandsbanka vakti
athygli á í Morgunkorni sínu í
gær.
Samanlögð innlán heimilanna
hjá innlánsstofnunum voru rétt
ríflega 600 milljarðar króna
um áramótin. Innlán hafa farið
minnkandi frá því um mitt ár
2009 þegar þau voru rétt tæplega
800 milljarðar. Misserin á undan
höfðu innlán hins vegar aukist
mjög mikið þegar fjárfestar leit-
uðu í aukið öryggi vegna vand-
ræða í fjármálaheiminum.
Í Morgunkorni Íslandsbanka
frá í gær segir að samdrátt inn-
lána upp á síðkastið megi meðal
annars rekja til kaupmáttar-
rýrnunar á tímabilinu og nei-
kvæðrar raunávöxtunar innláns-
reikninga sem hafi hvatt heimilin
til að draga úr innlánum og auka
neyslu. Þá megi rekja einhvern
hluta lækkunarinnar til tilfærslu
fjármagns í sjóði þar sem ávöxtun
kunni að vera meiri.
Telur greining Íslandsbanka
að þessi síðastnefndi þáttur hafi
raunar spilað sérstaklega stórt
hlutverk í desember. Bendir hún
því til stuðnings á þá staðreynd
að innlendir verðbréfa-, fjár-
festingar- og fagfjárfestasjóðir
stækkuðu um 13,3% í mánuðinum,
fóru úr 31,4 í 35,6 milljarða. Er
sú hækkun talsvert umfram þá
hækkun sem varð á verði hluta-
og skuldabréfa í mánuðinum.
- mþl
Verðbréfasjóðir stækkuðu um 13,3% í desember:
Innlán minnka og
sækja í verðbréfasjóði
40.000
35.000
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
800.000
762.500
725.000
687.500
612.500
575.000
537.500
500.000
jan maí sep jan maí sep jan maí sep jan maí sep
2009 2010 2011 2012
■ Eign verðbréfa-, fj ár-
festingar- og fagfj ár-
festasjóða í innlendum
hlutabréfum (til
vinstri)
■ Innlán heimilanna hjá
innlánsstofnunum (til
hægri)
INNLÁN HEIMILANNA OG EIGN SJÓÐA
Í ÍSLENSKUM HLUTABRÉFUM
millj. kr. millj. kr.
Kauphöll Íslands vísaði alls átta málum,
þar sem grunur var um markaðs-
misnotkun, til Fjármálaeftirlitsins
(FME) í fyrra. Hún vísaði auk þess
tveimur málum þangað þar sem grun-
ur lék á um ólögmæt viðskipti innherja.
Alls vísaði Kauphöllin 21 máli til FME
á árinu 2012. Þetta kemur fram í árs-
skýrslu kauphalla á Norðurlöndum.
Kauphöllin afgreiddi samtals 69 mál á
árinu 2012. 43 þeirra voru vegna gruns
um brot á reglum um upplýsingagjöf.
Sjö þeirra mála voru afgreidd með
athugasemdum en eitt með óopinberri
áminningu. Níu málanna voru send
áfram til FME til frekari rannsóknar.
Fleiri mál til FME
Alls afgreiddi Kauphöllin 26 mál vegna
viðskipta með verðbréf. Átta þeirra
voru afgreidd með athugasemd, sex
mál voru felld niður en tólf send áfram
til frekari rannsóknar hjá FME. Í árs-
skýrslu kauphalla á Norðurlöndunum
kemur fram að átta þeirra mála sem
falla undir þennan flokk, og var vísað
til FME til frekari rannsóknar, snúist
um meinta markaðsmisnotkun. Tvö
málanna voru vegna gruns um ólögmæt
viðskipti innherja og tvö voru flokkuð
sem „önnur mál“.
Talsmaður Kauphallarinnar segist
ekki geta tjáð sig um hverja málin snerta
né hvert umfang þeirra er þegar leitað
var eftir þeim upplýsingum í gær. Frétta-
blaðið beindi fyrirspurn til FME um
hvers eðlis málin voru en eftirlitið hafði
ekki tök á því að svara fyrirspurninni í
gær. Henni verður þó svarað.
Málunum sem Kauphöllin afgreiddi
fækkaði um níu á milli ára, en þau voru
78 árið 2011. Af þeim var tuttugu málum
vísað til FME til nánari skoðunar, eða
einu færra en í fyrra. Átta þeirra voru
vegna gruns um brot á upplýsingagjöf
félaga á markaði og tólf vegna viðskipta
með verðbréf.
Stöðvaði viðskipti tvisvar
Í ársskýrslu um eftirlitsmál kauphalla á
Norðurlöndum kemur einnig fram að við-
skipti hafi verið stöðvuð tvívegis í Kaup-
höll Íslands á árinu 2012. Í bæði skiptin
var það vegna mála sem tengjast Íbúða-
lánasjóði (ÍLS). Í fyrra skiptið, hinn 22.
nóvember, voru viðskiptin stöðvuð vegna
fréttar í Viðskiptablaðinu þar sem sagt
var að sjóðurinn hefði áform um að breyta
skilmálum íbúðabréfa þannig að þau yrði
uppgreiðanleg. ÍLS sendi samstundis frá
sér tilkynningu um að slíkt væri ekki
framkvæmanlegt og að það yrði ekki gert
nema í samstarfi við eigendur bréfanna.
Opnað var aftur fyrir viðskiptin klukkan
10.20 sama morgun. Í skýrslunni segir að
ástæða lokunarinnar hafi verið að mögu-
lega verðmyndandi upplýsingar hefðu
verið opinberaðar í fjölmiðlum.
Aftur var lokað fyrir viðskipti með
íbúðabréf 27. nóvember vegna ummæla
Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, for-
manns velferðarnefndar Alþingis,
við Bloom berg um að ÍLS vantaði tíu
milljarða króna og að afnema þyrfti ríkis-
ábyrgð á skuldabréfum hans. Ummælin
þóttu sérlega óheppileg þar sem þegar
hafði verið tilkynnt að ríkisstjórnin myndi
skýra frá aðgerðum vegna ÍLS síðar sama
dag. Í þeim aðgerðapakka var ekkert um
að afnema ríkisábyrgð á skuldabréfum
sjóðsins. Í skýrslunni segir að lokað hafi
verið fyrir viðskiptin því grunur hafi leik-
ið á um leka á verð myndandi upplýsing-
um. thordur@frettabladid.is
Átta markaðsmisnotkunarmál
send frá Kauphöll til FME í fyrra
Kauphöll Íslands sendi alls 21 mál til Fjármálaeftirlitsins í fyrra til frekari rannsóknar, einu máli meira en árið áður. Átta málanna voru
vegna gruns um markaðsmisnotkun og tvö vegna gruns um ólögleg innherjaviðskipti. Tvívegis þurfti að stöðva viðskipti á markaði í fyrra.
EFTIRLITSAÐILI Kauphöllin gegnir ákveðnu eftirlitshlutverki á
íslenska markaðnum samkvæmt samstarfssamningi við FME og
sendir mál þangað til frekari athugunar verði hún þess áskynja
að lög kunni að hafa verið brotin. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
er fj öldi eft irlitsmála
sem Kauphöllin
afgreiddi í fyrra.
69
er fj öldi mála sem lúta
að viðskiptum með
verðbréf.
26
er fj öldi verðbréfamála
sem vísað var til FME.12
er fj öldi þeirra verðbréfa-
mála þar sem grunur er
um markaðsmisnotkun.
8
er fj öldi þeirra verðbréfa-
mála þar sem grunur er
um ólögleg innherjaviðskipti.
2