Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 35
 | FÓLK | 3TÍSKA Safn tískuskólans FIT, Fashion Institute of Technology, í New York stendur fyrir sýningunni „Shoe Obsession“ í febrúar. Á sýningunni verður kafað í áráttu kvenna fyrir skóm og sýndir frægustu, furðu- legustu og ótrúlegustu skór sam- tímans. Um 150 skór verða á sýningunni, meðal annars úr smiðju Manolo Blahnik, Salvatore Ferragamo, Christians Louboutin og Rogers Vivier auk skótaus frá áhrifamiklum tískuhúsum á borð við Balenciaga, Alexander McQueen og Prada. Á sýningunni mun einnig gefa að líta skó úr eigu nokkurra tískudrósa eins og skartgripahönnuðarins Lynn Ban og tískugyðjunnar Daphne Guinness. Sýningarstjóri er dr. Valerie Steele, sem er höfundur bókarinnar Shoes: A Lexicon of Style. Sýningin verður opnuð 8. febrúar og stendur til 13. apríl. SKÓMANÍASKRAUT-GARÐAR ■ VALENTINO SUMAR 2013 Flíkurnar í sumarlínu Valentino fyrir 2013 eru alsettar útsaum- uðu flúri, sem minna um margt á garðhlið og blóm. Garðurinn var enda þemað við hönnun línunnar en einn hönnuða línunnar, Maria Grazia Chiuri, sagði hugmyndina að baki einmitt þá að garðurinn væri hluti af lífi okkar allra og að innblástur væri sóttur til fugla- búra, blóma og garða mismunandi menn- ingarheima. Rauður flúraður kjóll opn- aði sýningu Val- entino í París í síðustu viku en munstur kjólsins sagði Maria sótt til flúraðra hliðgrinda sem opn- ast út á ítalska ver- önd. ■ ÁHUGAVERT Nú stendur yfir í Stokkhólmi tískuvikan 2013 en þar gefst verslunareigendum tækifæri til að skoða og kaupa haust- og vetrartískuna 2013/2014. Í kringum 800 vörumerki eru í boði á tískuvikunni. Tískusýn- ingar eru fjölbreyttar en einnig eru ýmsar uppákomur tengdar þessari viku víða um borgina. Tískuvikan stendur til 10. febrúar. Flest eru merkin sænsk en undan- tekningin er finnska merkið Marimekko sem er með litríkan sýn- ingarbás. Sænska fatamerkið Dagmar hefur náð miklum vinsældum undanfarið hjá frægum konum þar í landi. Dagmar verður með íburðarmikla sýningu á tísku- vikunni í Stokkhólmi en margir nýir hönnuðir munu einnig sýna nýjustu framleiðslu sína. Dagmar-vörumerkið, í eigu systranna Sofiu Malm, Karin Soderlind og Kristinu Tjäder hóf framleiðslu árið 2005 og þær fengu gullverðlaun fyrir hönnun sína árið 2011. Þær eru nú komnar í útrás og selja víða um heim, meðal annars í Harrods í London. TÍSKUVIKA Í STOKKHÓLMI MCQUEEN Þeir vöktu óskipta athygli skórnir eftir Alexander McQueen á tískusýn- ingu í París árið 2010. Ö Ð Ö ÐUR ö ö
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.