Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 39
APÓTEK
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
Kynningarblað
Vítamín, Lyfjafræðisafnið,
nikótínlyf og þjónusta.
Viðskiptavinum fjölgar bara og fjölgar. Samt auglýsum við ekki mikið. Það kemur
til vegna þess að við höfum allt-
af komið mjög vel út úr verð-
könnunum á lyfjum, hvort sem
um er að ræða lyfseðilsskyld lyf
eða lyf sem eru seld án lyfseðils,“
segir Haukur Ingason, apótekari
í Garðs Apóteki.
Þá segir hann æ fleiri komast
að raun um að hægt sé að gera
góð kaup á f leiru en lyfjum í
Garðs Apóteki. „Margir koma
gagngert til að kaupa fæðubótar-
efni og vítamín sem fást í úrvali.
Einnig hjúkrunar vörur, snyrti-
vörur og næringardrykki, því verð
er almennt lágt í apótekinu.“
Að sögn Hauks kunna við-
skiptavinir því einkar vel að
Garðs Apótek sé einka rekið. „Eftir
banka hrunið er fólk orðið með-
vitaðra um við hvern það verslar
og virðist hafa fengið nóg af lyfja-
keðjum, hvort sem þær heita Lyf
og heilsa, Lyfja, Apótekið, Apótek-
arinn eða Skipholts Apótek,“ upp-
lýsir Haukur.
Í Garðs Apóteki er notalegur
kaffikrókur þar sem hægt er að
setjast niður með ilmandi kaffi,
te eða vatnsglas í boði hússins.
Haukur segir marga kunna vel að
meta það á meðan þeir bíða eftir
lyfjunum.
„Hverfisbúar koma hingað oft
og tíðum og stundum er apótekið
eins og hverfis miðstöð þar sem
íbúarnir hittast og spjalla saman,“
segir Haukur ánægður. „Við
erum í leiðinni fyrir íbúa stærstu
hverfa borgar innar og með til-
komu rafrænna lyfseðla finnst
mörgum þægilegt að hringja á
undan sér, láta taka lyfin til og
sækja þau á heimleiðinni upp
í Breiðholt, Árbæ eða Grafar-
vog og nágranna sveitarfélögin
Mosfellsbæ, Kópavog, Garða-
bæ og Hafnarfjörð,“ segir Hauk-
ur. Viðskipta vinirnir koma jafn-
vel frá Suðurnesjum, Hveragerði,
Þorlákshöfn, Akranesi og Borgar-
nesi enda apótekið steinsnar frá
Miklubrautinni og því í alfara leið.
Það sem gerir Garðs Apótek
að fyrsta vali viðskiptavina er þó
fyrst og fremst fyrirmyndarþjón-
usta og hlýlegt viðmót starfsfólks-
ins, í kaupauka við lága verðið.
„Nýverið jukum við þjónustu í
kringum stómavörur og þvagleggi
og nú geta þeir sem nota slíkar
vörur snúið sér til okkar og feng-
ið þær afhentar í apótekinu eða
sendar heim til sín, hvert á land
sem er,“ segir Haukur.
Garðs Apótek er á horni Soga-
vegar og Réttarholtsvegar, við
brúna yfir Miklubraut. Síminn er
568-0990. Opið er virka daga frá
klukkan 9 til 18 en lokað um helg-
ar. Sjá nánar á vefsíðunni www.
gards apotek.is.
Fólk kemur víða að í Garðs Apótek
Garðs Apótek er vel þekkt meðal landsmanna fyrir lágt lyfjaverð og úrvals þjónustu. Meðal nýjunga eru stómavörur, þvagleggir og
næringardrykkir. Garðs Apótek er í alfaraleið í miðju borgarinnar og rómað fyrir notalegt andrúmsloft og lipra þjónustu í hvívetna.
Haukur Ingason apótekari með fríðum flokki starfskvenna sinna, en glaðlegt viðmót þeirra og einstök þjónustulipurð er rómuð meðal viðskipta-
vina Garðs Apóteks.
Garðs Apótek er staðsett í miðju borgarinnar, á horni Sogavegs og Réttar-
holtsvegs. MYND/GVA
Einkarekið apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
Sogavegi við Réttarholtsveg Opið kl. 9-18 • Sími 5680990 • www.gardsapotek