Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 31. janúar 2013 | MENNING | 45
Enginn
viðbættur sykur,
ekkert ger.VILTU
HRÖKKVA
Í GÍRINN?
Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn
viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott!
Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi.
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!
Marilyn Manson hefur kært konu
sem segist hafa verið gift tónlistar-
manninum. Samkvæmt Billboard
neitar Manson því staðfastlega að
hafa nokkurn tíma hitt téða konu.
Konan, Yolanda Tharpe, hafði
samband við fjölmargar frétta-
stofur á síðasta ári og sagðist hafa
verið trúlofuð Manson. Tharpe hélt
því einnig fram að tónlistarmaður-
inn væri hallur undir nasisma. Þá
segir hún Manson hafa borið ábyrgð
á dauða tveggja katta hennar. Fer
Manson fram á nærri fjórar millj-
ónir króna í skaðabætur fyrir meið-
yrði og fleira.
Manson kærir konu
Fer fram á fj órar milljónir króna fyrir meiðyrði.
VONDUR Marilyn Manson er ósáttur.
Guðný Guðmundsdóttir sýnir
klippilistaverk í Ráðhúsi Reykja-
víkur þessa dagana. Hún hefur
lagt stund á klippilist í nokkur
ár eða frá 2006 þegar hún fór
að leita nýrra leiða í listsköpun
sinni og tók ástfóstri við þessa
listgrein. Hún hefur áður sýnt
verk sín í Safnasafninu í Eyja-
firði 2010, Kaffitári í Borgartúni
í Reykjavík 2011 og Gerðubergi í
Reykjavík 2012.
Tækni og hefð klippilistar kom
fram í Kína með tilkomu pappírs-
ins fyrir Krists burð, barst þaðan
til Japans og var vel þekkt í list-
sköpun á Vesturlöndum á miðöld-
um og síðar. En klippilistin tók að
blómstra svo að um munaði fram-
an af 20. öld, þegar klippiverk
urðu áberandi þáttur í nútímalist.
Sýningin stendur til 4. febrúar.
Klippilist í
Ráðhúsinu
KLIPP COLLAGE Eitt verkanna á
sýningu Guðnýjar í Ráðhúsinu.
Síðasti hluti þríleiks E.L. James sem kenndur er við
Fimmtíu gráa skugga kemur út í íslenskri þýðingu
í dag. Bókin nefnist á ensku Fifty Shades Freed en
nefnist á íslensku Fimmtíu skuggar frelsis. Bókin
kom út frummálinu fyrir réttu ári og naut mikilla
vinsælda eins og fyrri bækurnar tvær. Í ágúst í fyrra
tilkynnti bókarisinn Amazon að Skuggaþríleikurinn
hefði selst í fleiri eintökum á vefnum en allar
bækurnar sjö um Harry Potter samanlagt (á heims-
vísu hefur galdrastrákurinn þó vinninginn með 450
milljón seld eintök á móti 65 milljónum).
Bækur James hafa ekki síst notið vinsælda í raf-
bókaútgáfu. Eigendur lesbretta og spjaldtölva hér
á landi fá líka forskot á sæluna. Íslenska þýðingin
kemur fyrst út á rafbók í dag en í kiljuútgáfu 10.
febrúar.
Lokakafl i Skuggaþríleiksins
Fimmtíu skuggar frelsis kemur út á rafb ók í dag en í kilju í næsta mánuði.
E.L. JAMES Sló í gegn með Fimmtíu gráum skuggum, en þriðja
bókin kemur út á íslensku á rafbók í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Alina Dubik messósópran syngur
rússneskar perlur á hádegistón-
leikum ársins í Hafnarborg á
þriðjudag. Á tónleikunum, sem
bera yfirskriftina Í Rússaskapi,
flytur Dubik verk eftir Tsjaí-
kovsky og Rimsky-Korsakov.
Alina hefur haldið fjölda ein-
leiks- og kammertónleika hér á
landi og gert hljóðritanir fyrir
Ríkisútvarpið og pólska útvarpið.
Hún starfar nú sem söngkennari
við Nýja tónlistarskólann og Tón-
listarskólann í Reykjavík. Antonía
Hevesi píanóleikari hefur frá upp-
hafi verið listrænn stjórnandi
hádegistónleika í Hafnarborg.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12
og standa yfir í um hálfa klukku-
stund, þeir eru öllum opnir á
meðan húsrúm leyfir.
Hádegis-
tónleikar í
Hafnarborg
HAFNARBORG Alina Dubik
messósópran syngur rússneskar perlur.