Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 41
KYNNING − AUGLÝSING Apótek31. JANÚAR 2013 FIMMTUDAGUR 3
Mismunandi er hvaða lyfjaform hentar hverjum og einum. Á það að
vera einfalt í notkun? Á að fara lítið fyrir því? Á það að vera bragð-
gott? Á það að líkjast sígarettunni? Þess vegna býður Nicorette mesta
úrval nikótínlyfja fyrir mismunandi þarfir reykingafólks. Í dag eru
lyfjaformin sjö talsins:
■ Lyfjatyggigúmmí – mest notaða lyfjaformið. Mikilvægt að tyggja
rétt!
■ Forðaplástur – einfaldasta lyfjaformið.
■ Munnsogstafla – lítið áberandi, ekki ólík brjóstsykri.
■ Tungurótartafla – fyrirferðarminnsta lyfjaformið.
■ Innsogslyf – það lyfjaform sem líkist sígarettunni hvað mest.
■ Nefúði – skjótvirkt lyfjaform.
■ QuickMist-munnholsúðinn – nýjasta lyfjaformið.
Virkar á 60 sekúndum.
Hvað hentar þér?
Nicorette er frumlyf, þ.e. lyf sem viðkomandi lyfjafyrir-tæki hefur uppgötvað og
þróað og hefur fjölda rannsókna á
bak við sig. Nikótínlyfið Nicorette
varð þannig til að sænski sjó herinn
fór þess á leit við Háskólann í Lundi
að það yrði hannað lyf sem myndi
auðvelda sænskum kaf báta-
hermönnum að hætta að reykja
á meðan þeir væru neðansjávar.
Nicorette kom fyrst á markað árið
1978 en var ekki markaðssett hér
á landi fyrr en 1986. Fjöldi rann-
sókna og áralöng reynsla sýnir að
notkun nikótínlyfja eykur líkur á
árangurs ríku reykleysi.
Nýjasta varan frá Nicorette er
skjótvirkur munnholsúði
„Flestir sem reykja þrá að losna við
tóbaksfíknina hratt. Krafan um
reykleysi og sú staðreynd að reyk-
ingar eru bannaðar á flestum stöð-
um hefur breytt reykinga venjum
fólks. Hafa þeir sem reykja nú
tilhneigingu til að draga reykinn
ört og djúpt ofan í sig en það gerir
það að verkum að nikótín inntakan
og skyndisælan við reykingarnar
verður meiri.
Það er afar erfitt að hætta að
reykja og mörgum finnst ekkert
koma í staðinn fyrir „kikkið“ sem
þeir voru vanir að fá úr síga r-
ettunni. Til að mæta þessu hefur
Nicorette nú þróað nýtt lyfja-
form, Nicorette QuickMist munn-
holsúða, en „með notkun hans
má draga úr reykingalöngun-
inni á 60 sekúndum,“ segir Guðný
Traustadóttir, reykleysisráðgjafi og
markaðs- og sölufulltrúi hjá Vistor
hf. Nicorette QuickMist munnhols-
úðanum er úðað í munninn við
reykþörf, einn til tveir úðar í senn.
Úðinn frásogast síðan í gegnum
slímhúð munnsins út í blóðrásina
og slær þannig hratt á reykþörfina.
Af hverju að nota nikótínlyf?
„Það sem helst kemur í veg fyrir
að reykingum er hætt eru frá-
hvarfseinkenni og reykingaþörf.
Því er svo mikilvægt að slá sem
mest á það. Nicorette-nikótínlyf
draga úr fráhvarfseinkennum og
reykingaþörf og styðja þannig við
reykstoppið í upphafi ferlisins sem
almennt stendur yfir í sex til tólf
vikur. Með því að nota nikótínlyf
fær líkaminn miklu minna nikó-
tín en úr sígarettunni en samt nóg
til að slá á fráhvarfseinkennin og
reykingaþörfina. Auk þess losnar
líkaminn við þau 4.000 eiturefni
sem eru til staðar í sígarettunni,“
upplýsir Guðný og bendir á þrjár
leiðir sem hægt er að nýta sér til
hætta að reykja með hjálp Nico-
rette.
■ Fastsetja sér dag og hætta þá
alveg að reykja. Nota lyfin við
reykþörf.
■ Draga úr reykingum, þá er
önnur hver sígaretta ekki reykt
heldur Nicorette notað í staðinn
og þannig stig af stigi dregið úr
reykingum.
■ Samsett meðferð. Þá eru notuð
tvö lyfjaform samtímis; Nico-
rette-forðaplástur er þá notaður í
grunninn til að gefa líkamanum
stöðugt og jafnt nikótínmagn
og síðan er annaðhvort tveggja
milligramma Nicorette-lyfja-
tyggigúmmí eða Nicorette inn-
sogslyf notað með til að tryggja
að nikótínþörfinni sé betur full-
nægt og til að slá á skyndilega
nikótínþörf sem kann að kom
upp.
Nikótín losar meðal annars
dópamín sem er taugaboðefni í
heilanum og veldur þessu svo-
kallaða „kikki“ sem reykinga-
menn upplifa. Losun á dópamíni
veldur vellíðan og slökun og sú til-
finning sem það framkallar á þátt
í fíkninni sem tengist tóbaki, rétt
eins og fíkn sem tengist alkóhóli
og ýmsum lyfjum.
Allir vita að það er skaðlegt
að reykja en hér eru nokkrar
óhugnan legar staðreyndir.
■ Sjúkdómar af völdum reyk-
inga valda dauða um 360-400
Íslendinga árlega.
■ Til samanburðar má nefna að
um 20-25 láta lífið í umferðar-
slysum árlega.
■ Á hverjum degi deyr einn Íslend-
ingur af völdum reykinga.
■ Yfir 80% allra lungnakrabba-
meina eru af völdum reykinga.
■ Óbeinar reykingar eru hættu-
legar.
■ Það eru f leiri en 4.000 efni í
tóbaks reyk.
■ Meira en 50 þeirra eru krabba-
meinsvaldandi – nikótín er
hins vegar ekki krabbameins-
valdandi.
■ Það er blanda eiturefna í
sígarettureyknum sem er höfuð-
ástæða heilsuskaða, ekki nikó-
tínið.
■ Sum eiturefnin eru meira
að segja geislavirk, eins og
pólóníum-210 og blý-210.
■ Dæmi um önnur eiturefni í
tóbaki eru ammoníak, fenól, blá-
sýra, arsenik, metanól og kadmí-
um.
En það virkar að hætta. Heilsu-
farslegur ávinningur er mikill eftir
að drepið er í síðustu sígarettunni.
■ Eftir 20 mínútur lækkar blóð-
þrýstingur og púls.
■ Eftir 8-48 klukkustundir hefur
dregið úr líkum á hjartaáfalli og
heilablóðfalli.
■ Eftir 1 ár hefur áhætta á hjarta-
sjú kdómu m m in n kað u m
helming.
■ Eftir 5 ár hefur hættan á hjarta-
áfalli minnkað um helming.
■ Eftir 10 ár hefur dregið úr líkum
á lung na k rabbameini um
helming.
Nicorette er lausasölulyf og fæst án
lyfseðils í næsta apóteki.
Að auðvelda reykleysi
Það felst mikill heilsufarslegur ávinningur í því að hætta að reykja og hefur fjölda fólks tekist að gera það með hjálp Nicorette, sem
framleiðir ýmsar tegundir nikótínlyfja. Nýjasta varan er munnholsúði sem dregur úr reykingaþörfinni á sextíu sekúndum.
QuickMist er úðað í munninn við reykþörf. Úðinn frásogast úr munnholinu út í blóðrásina og slær þannig hratt á reykþörfina. MYND/GVA
NOTKUNAR
LEIÐBEININGAR
Beina skal munnstykkinu á skammtar-
anum að opnum munninum og halda
því eins nálægt munninum og mögu-
legt er. Þrýsta skal efst á skammtar-
ann, þá úðast einn skammtur inn í
munninn. Til að forðast að úðinn fari
niður í kok skal ekki anda að sér á
meðan úðað er.
■ Ekki skal kyngja í nokkrar sekúndur
eftir notkun úðans, þannig næst
bestur árangur.
■ Ekki skal borða eða drekka um leið
og munnúðinn er notaður.
Nicorette-nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og
eru notuð til meðferðar á nikótínfíkn og til að
draga úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum
er hætt eða þegar dregið er úr þeim. Skammtar
eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið
hefur verið reykt en hámarksdagskammtar
eru lyfjatyggigúmmí 24 stk., innsogslyf 12
hylki, nefúði 80 úðar, forðaplástur 1 stk.,
tungurótartöflur 40 stk., munnsogstöflur 15 stk.
og munnholsúði 64 úðar – nota má allt að fjóra
úða á klst. en ekki fleiri en tvo úða við hverja
skömmtun. Gæta skal að úða ekki í augu.
Munnholsúðinn inniheldur lítið magn af etanóli
(alkóhól), minna en 100 mg/úða. Ekki má nota
Nicorette ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni
eða öðrum innihaldsefnum þess. Gæta skal
sérstakrar varúðar við notkun Nicorette ef þú
hefur nýlega fengið hjartadrep eða heilaslag,
ert með brjóstverk (hjartaöng), hjartasjúkdóm,
ómeðhöndlaðan háþrýsting, hefur fengið
bráðaofnæmisviðbrögð eða útbrot með
kláða, ert með skerta lifrarstarfsemi, alvarlegan
nýrnasjúkdóm, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil,
æxli í nýrnahettum, magasár eða vélindabólgu.
Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette
og munnsogstöflurnar eru ekki ætlaðar
yngri en 18 ára nema í samráði við lækni.
Einstaklingar yngri en 18 ára, þungaðar konur
og konur með barn á brjósti skulu eingöngu
nota Nicorette í samráði við lækni. Þeir sem
ekki hafa reykt eiga ekki að nota lyfið. Lesið
allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er
að nota lyfið. Geymið þar sem börn hvorki ná
til né sjá. Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark
ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2,
210 Garðabæ.
VARNAÐARORÐ