Fréttablaðið - 31.01.2013, Síða 41

Fréttablaðið - 31.01.2013, Síða 41
KYNNING − AUGLÝSING Apótek31. JANÚAR 2013 FIMMTUDAGUR 3 Mismunandi er hvaða lyfjaform hentar hverjum og einum. Á það að vera einfalt í notkun? Á að fara lítið fyrir því? Á það að vera bragð- gott? Á það að líkjast sígarettunni? Þess vegna býður Nicorette mesta úrval nikótínlyfja fyrir mismunandi þarfir reykingafólks. Í dag eru lyfjaformin sjö talsins: ■ Lyfjatyggigúmmí – mest notaða lyfjaformið. Mikilvægt að tyggja rétt! ■ Forðaplástur – einfaldasta lyfjaformið. ■ Munnsogstafla – lítið áberandi, ekki ólík brjóstsykri. ■ Tungurótartafla – fyrirferðarminnsta lyfjaformið. ■ Innsogslyf – það lyfjaform sem líkist sígarettunni hvað mest. ■ Nefúði – skjótvirkt lyfjaform. ■ QuickMist-munnholsúðinn – nýjasta lyfjaformið. Virkar á 60 sekúndum. Hvað hentar þér? Nicorette er frumlyf, þ.e. lyf sem viðkomandi lyfjafyrir-tæki hefur uppgötvað og þróað og hefur fjölda rannsókna á bak við sig. Nikótínlyfið Nicorette varð þannig til að sænski sjó herinn fór þess á leit við Háskólann í Lundi að það yrði hannað lyf sem myndi auðvelda sænskum kaf báta- hermönnum að hætta að reykja á meðan þeir væru neðansjávar. Nicorette kom fyrst á markað árið 1978 en var ekki markaðssett hér á landi fyrr en 1986. Fjöldi rann- sókna og áralöng reynsla sýnir að notkun nikótínlyfja eykur líkur á árangurs ríku reykleysi. Nýjasta varan frá Nicorette er skjótvirkur munnholsúði „Flestir sem reykja þrá að losna við tóbaksfíknina hratt. Krafan um reykleysi og sú staðreynd að reyk- ingar eru bannaðar á flestum stöð- um hefur breytt reykinga venjum fólks. Hafa þeir sem reykja nú tilhneigingu til að draga reykinn ört og djúpt ofan í sig en það gerir það að verkum að nikótín inntakan og skyndisælan við reykingarnar verður meiri. Það er afar erfitt að hætta að reykja og mörgum finnst ekkert koma í staðinn fyrir „kikkið“ sem þeir voru vanir að fá úr síga r- ettunni. Til að mæta þessu hefur Nicorette nú þróað nýtt lyfja- form, Nicorette QuickMist munn- holsúða, en „með notkun hans má draga úr reykingalöngun- inni á 60 sekúndum,“ segir Guðný Traustadóttir, reykleysisráðgjafi og markaðs- og sölufulltrúi hjá Vistor hf. Nicorette QuickMist munnhols- úðanum er úðað í munninn við reykþörf, einn til tveir úðar í senn. Úðinn frásogast síðan í gegnum slímhúð munnsins út í blóðrásina og slær þannig hratt á reykþörfina. Af hverju að nota nikótínlyf? „Það sem helst kemur í veg fyrir að reykingum er hætt eru frá- hvarfseinkenni og reykingaþörf. Því er svo mikilvægt að slá sem mest á það. Nicorette-nikótínlyf draga úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf og styðja þannig við reykstoppið í upphafi ferlisins sem almennt stendur yfir í sex til tólf vikur. Með því að nota nikótínlyf fær líkaminn miklu minna nikó- tín en úr sígarettunni en samt nóg til að slá á fráhvarfseinkennin og reykingaþörfina. Auk þess losnar líkaminn við þau 4.000 eiturefni sem eru til staðar í sígarettunni,“ upplýsir Guðný og bendir á þrjár leiðir sem hægt er að nýta sér til hætta að reykja með hjálp Nico- rette. ■ Fastsetja sér dag og hætta þá alveg að reykja. Nota lyfin við reykþörf. ■ Draga úr reykingum, þá er önnur hver sígaretta ekki reykt heldur Nicorette notað í staðinn og þannig stig af stigi dregið úr reykingum. ■ Samsett meðferð. Þá eru notuð tvö lyfjaform samtímis; Nico- rette-forðaplástur er þá notaður í grunninn til að gefa líkamanum stöðugt og jafnt nikótínmagn og síðan er annaðhvort tveggja milligramma Nicorette-lyfja- tyggigúmmí eða Nicorette inn- sogslyf notað með til að tryggja að nikótínþörfinni sé betur full- nægt og til að slá á skyndilega nikótínþörf sem kann að kom upp. Nikótín losar meðal annars dópamín sem er taugaboðefni í heilanum og veldur þessu svo- kallaða „kikki“ sem reykinga- menn upplifa. Losun á dópamíni veldur vellíðan og slökun og sú til- finning sem það framkallar á þátt í fíkninni sem tengist tóbaki, rétt eins og fíkn sem tengist alkóhóli og ýmsum lyfjum. Allir vita að það er skaðlegt að reykja en hér eru nokkrar óhugnan legar staðreyndir. ■ Sjúkdómar af völdum reyk- inga valda dauða um 360-400 Íslendinga árlega. ■ Til samanburðar má nefna að um 20-25 láta lífið í umferðar- slysum árlega. ■ Á hverjum degi deyr einn Íslend- ingur af völdum reykinga. ■ Yfir 80% allra lungnakrabba- meina eru af völdum reykinga. ■ Óbeinar reykingar eru hættu- legar. ■ Það eru f leiri en 4.000 efni í tóbaks reyk. ■ Meira en 50 þeirra eru krabba- meinsvaldandi – nikótín er hins vegar ekki krabbameins- valdandi. ■ Það er blanda eiturefna í sígarettureyknum sem er höfuð- ástæða heilsuskaða, ekki nikó- tínið. ■ Sum eiturefnin eru meira að segja geislavirk, eins og pólóníum-210 og blý-210. ■ Dæmi um önnur eiturefni í tóbaki eru ammoníak, fenól, blá- sýra, arsenik, metanól og kadmí- um. En það virkar að hætta. Heilsu- farslegur ávinningur er mikill eftir að drepið er í síðustu sígarettunni. ■ Eftir 20 mínútur lækkar blóð- þrýstingur og púls. ■ Eftir 8-48 klukkustundir hefur dregið úr líkum á hjartaáfalli og heilablóðfalli. ■ Eftir 1 ár hefur áhætta á hjarta- sjú kdómu m m in n kað u m helming. ■ Eftir 5 ár hefur hættan á hjarta- áfalli minnkað um helming. ■ Eftir 10 ár hefur dregið úr líkum á lung na k rabbameini um helming. Nicorette er lausasölulyf og fæst án lyfseðils í næsta apóteki. Að auðvelda reykleysi Það felst mikill heilsufarslegur ávinningur í því að hætta að reykja og hefur fjölda fólks tekist að gera það með hjálp Nicorette, sem framleiðir ýmsar tegundir nikótínlyfja. Nýjasta varan er munnholsúði sem dregur úr reykingaþörfinni á sextíu sekúndum. QuickMist er úðað í munninn við reykþörf. Úðinn frásogast úr munnholinu út í blóðrásina og slær þannig hratt á reykþörfina. MYND/GVA NOTKUNAR LEIÐBEININGAR Beina skal munnstykkinu á skammtar- anum að opnum munninum og halda því eins nálægt munninum og mögu- legt er. Þrýsta skal efst á skammtar- ann, þá úðast einn skammtur inn í munninn. Til að forðast að úðinn fari niður í kok skal ekki anda að sér á meðan úðað er. ■ Ekki skal kyngja í nokkrar sekúndur eftir notkun úðans, þannig næst bestur árangur. ■ Ekki skal borða eða drekka um leið og munnúðinn er notaður. Nicorette-nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð til meðferðar á nikótínfíkn og til að draga úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr þeim. Skammtar eru einstaklingsbundnir eftir því hve mikið hefur verið reykt en hámarksdagskammtar eru lyfjatyggigúmmí 24 stk., innsogslyf 12 hylki, nefúði 80 úðar, forðaplástur 1 stk., tungurótartöflur 40 stk., munnsogstöflur 15 stk. og munnholsúði 64 úðar – nota má allt að fjóra úða á klst. en ekki fleiri en tvo úða við hverja skömmtun. Gæta skal að úða ekki í augu. Munnholsúðinn inniheldur lítið magn af etanóli (alkóhól), minna en 100 mg/úða. Ekki má nota Nicorette ef þú ert með ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum þess. Gæta skal sérstakrar varúðar við notkun Nicorette ef þú hefur nýlega fengið hjartadrep eða heilaslag, ert með brjóstverk (hjartaöng), hjartasjúkdóm, ómeðhöndlaðan háþrýsting, hefur fengið bráðaofnæmisviðbrögð eða útbrot með kláða, ert með skerta lifrarstarfsemi, alvarlegan nýrnasjúkdóm, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil, æxli í nýrnahettum, magasár eða vélindabólgu. Börn yngri en 15 ára mega ekki nota Nicorette og munnsogstöflurnar eru ekki ætlaðar yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Einstaklingar yngri en 18 ára, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu eingöngu nota Nicorette í samráði við lækni. Þeir sem ekki hafa reykt eiga ekki að nota lyfið. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ. VARNAÐARORÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.