Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.02.2013, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 01.02.2013, Qupperneq 10
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 10 FÓLK „Þetta var alveg stórkost- legt. Við vissum ekkert hvað átti að sýna okkur en svo kom í ljós að þetta var nákvæmlega sami bær- inn og ég var staddur í fyrir 25 árum og nákvæmlega sami skóli sem hafði hrunið í skjálftanum,“ segir Þórir Guðmundsson, sviðs- stjóri hjálparstarfssviðs Rauða kross Íslands og fyrrverandi fréttamaður. Í byrjun árs 1989 fór Þórir til armensku fjallaborgarinnar Len- inakan sem fréttamaður Stöðvar 2 stuttu eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir svæðið með þeim afleið- ingum að meira en fimmtíu þús- und létu lífið, meðal annars nær öll börn og kennarar úr grunn- skóla sem gjöreyðilagðist. Þórir greindi frá heimsókn- inni á Facebook-síðu sinni í gær. Hann er nú á ný staddur í Armen- íu ásamt fleiri Íslendingum fyrir hönd Rauða krossins og heimsótti þar skóla í gær í borginni Gyumri, sem áður hét Leninakan. Samtök- in eru að aðstoða heimafólkið við að búa sig undir og verjast ýmissi náttúruvá sem herjað getur á lönd- in. Aðstæður þar eru svipaðar og hér á landi, það er að segja mestu hætturnar eru ofanflóð og jarð- skjálftar, útskýrir Þórir. Vegna þeirra verkefna var komið við í skóla í Gyumri á leið þeirra til Tíblisi, höfuðborgar Georgíu. Í skólanum ræddi Þórir við skólastjórann um hjálparstarf tengt jarðskjálftum í svæðinu sem yrði stutt af Rauða krossi Íslands. Hann komst fljótt að því að þetta var nákvæmlega sami skóli og hann hafði heimsótt stuttu eftir hamfarirnar 1989. „Við ræddum við fólkið og nem- endurna um viðbragðs áætlanir. Svo þegar ég er að ganga út kemur upp að mér miðaldra kona og segir: „Ég hef séð þig áður!“ Hún mundi eftir mér frá því ég var hér sem fréttamaður,“ segir hann. „Þetta er afskaplega lítill heimur og búinn að vera ótrúlegur dagur.“ Skólinn var endurbyggður með fjármagni sem fékkst með því að selja úr landi málverk og teikning- ar sem fundust í rústum skólans eftir að skjálftinn reið yfir. sunna@frettabladid.is Þekktist í Armeníu eftir aldarfjórðung Fyrir tilviljun var Þórir Guðmundsson í gær staddur í sama armenska skóla og hann heimsótti sem fréttamaður fyrir aldarfjórðungi eftir miklar náttúruham- farir. Kennari þekkti hann aftur. Grét með syrgjendum eftir hamfarirnar 1989. REISTUR Á NÝ ÚR RÚSTUNUM Skólinn sem hrundi í skjálftanum stóra var endur- byggður fyrir fé sem fékkst fyrir að selja listaverk og teikningar sem fundust í rúst- unum úr landi. MYND/ÞÓRIR GUÐMUNDSSON Í EGILSHÖLL Gabriel Folkesson frá Svíþjóð sýnir listir sínar á Norðurlandamótinu í listhlaupi á skautum sem hófst í Egilshöll í Grafarvogi í gær. Að lokinni keppni drengja tók við stúlknaflokkur þar sem Ísland átti fjóra keppendur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Stórfenglegir tilburðir á svellinu Ég hef séð þig áður! Hún mundi eftir mér frá því ég var hér sem frétta- maður. Þórir Guðmundsson, sviðsstjóri hjálpar- starfssviðs Rauða kross Íslands og fyrr- verandi fréttamaður SAMGÖNGUR Evrópudómstóllinn í Lúxemborg hefur úrskurðað að írska lággjaldaflugfélagið Ryan- air hafi átt að útvega farþega, sem komst ekki heim til Írlands frá Portúgal vegna gossins í Eyja- fjallajökli vorið 2010, gistingu, fullt fæði og ferðir milli flugvallar og gististaðar á meðan tafir urðu á heimkomu. Farþeginn, Denise McDonagh, fékk enga aðstoð frá flugfélag- inu, sem bar því við að aðstæður væru svo óvenjulegar að þær gætu ekki fallið undir þær „óvenjulegu kringumstæður“ sem um er talað í viðkomandi lögum um neytenda- vernd. Dómstóllinn hafnaði þessari túlkun, en tók fram að flugfélag- inu bæri ekki að greiða neinar við- bótar skaðabætur heldur einungis þann kostnað, sem hlotist hefði af því að útvega henni gistingu, fullt fæði og ferðir allan þann tíma sem hún beið eftir að komast heim. Upphaflega hafði McDonagh ætlað að fljúga til Írlands 17. apríl en var ekki komin heim fyrr en 24. apríl. Dómstóllinn hafnaði því einn- ig að flugfélög þyrftu einungis að sinna farþegum sínum í takmark- aðan tíma ef langar tafir yrðu á flugi, heldur yrðu þau að greiða kostnað fyrir allan þann tíma sem beðið væri flugs. - gb Evrópudómstóllinn um tafir vegna Eyjafjallajökuls: Ryanair hefði átt að borga kostnað farþega FLUGFARÞEGAR Fjöldi manns þurfti að bíða dögum saman á flugvöllum meðan Eyjafjallajökull gaus vorið 2010. NORDICPHOTOS/AFP „Allir í borginni misstu einhvern í skjálftanum 1988,“ segir Þórir. „Ég var hér þann 7. janúar 1989 sem fréttamaður og var viðstaddur tvö þúsund manna minningarathöfn þar sem syrgjendurnir komu saman. Allur salurinn grét og ég stóð þarna með myndavélina, hágrátandi líka.“ Á sínum ferli hefur Þórir oft rætt um skjálftann í Armeníu, afleiðingar hans og þann lærdóm sem má draga af honum um hvernig brugðist er við skjálftum. Þótt 7. desember sé ekki löglegur frídagur í bænum mætir enginn til vinnu þann dag. Fólk nýtir daginn til að hitta fjölskyldu sína og vini, skoðar myndir og minnast þeirra látnu. Hágrét með syrgjendum eftir skjálftann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.