Fréttablaðið - 01.02.2013, Page 24

Fréttablaðið - 01.02.2013, Page 24
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför, HAFÞÓRS ARNAR SIGURÐSSONAR Þverbraut 1, Blönduósi. Ragnheiður Þorsteinsdóttir Þorsteinn Hafþórsson Edda Brynleifsdóttir Auður Ingibjörg Hafþórsdóttir Óli Guðlaugur Laursen og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð, hlýhug og vinsemd við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR SIGURBJARGAR THORDERSEN (NÍNU) Hæðargötu 1, Njarðvík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýju. Vigdís Thordersen Magnús B. Hallbjörnsson Stefán Thordersen Sigurbjörg Björnsdóttir Ólafur Thordersen Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför, HANNESAR KRISTMUNDSSONAR garðyrkjubónda, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hjúkrunar- heimilinu Ási, Hveragerði, fyrir frábæra umönnun. Sigurbjörg Gísladóttir Kristmundur Stefán Hannesson Sigurður Elí Hannesson Helena Sif Ericson og barnabörn. Elskulegur bróðir okkar og frændi, GEIRFINNUR HELGI KARLSSON Vestursíðu 9, Akureyri, lést þriðjudaginn 29. janúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 7. febrúar kl. 10.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á öldrunarheimili Akureyrar. Arnór Karlsson Jón Karlsson Inga Karlsdóttir og systkinabörn. Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, RÚNAR ARNBJÖRNSSON sem lést þann 27. janúar síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Snartarstaðakirkju hinn 5. febrúar klukkan 13.00. Jóhanna Sigurðardóttir Kristinn María Sigurður Filippía Magnús Stefán Anna Arna Kristján börn og barnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA BIRGIT BERNÓDUSDÓTTIR Brimhólabraut 17, Vestmannaeyjum, sem lést 26. janúar sl., verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Líkn. Sveinn Halldórsson Ágústa Berg Sveinsdóttir Gunnar Árni Vigfússon Bernódus Sveinsson Kristín Björg Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. INGIBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR fæddist í Fagradalstungu, Saurbæjarhreppi, Dalasýslu, 11. ágúst 1927. Hún lést 29. janúar á Dvalarheimilinu Dalbraut, Reykjavík. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 4. febrúar klukkan 13.00. Kristján Zophoníasson Björk Ólafsdóttir Viðar Zophoníasson Hrönn Harðardóttir Þorsteinn Lýðsson Erna Harðardóttir Vala Brynja Viðarsdóttir Davíð Þór Björnsson og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÚNAR STEFÁNSDÓTTUR frá Hrísum í Fróðárhreppi, síðast til heimilis á Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir einstaka hlýju og umönnun. Eygló Tómasdóttir Þorgils Sigurþórsson Tómas Rúnar Andrésson og ömmubörn. „Þjóðfræðin fer svo víða og ritgerðin mín er alls ekki bara um kyn og kyn- gervi, þetta er bara einn kafli hennar,“ segir Védís Ólafsdóttir þjóðfræðingur spurð hvað efni fyrirlestursins Karl- mannlegar konur? Kyn og kyngervi í Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur hafi með þjóðfræði að gera. „Rannsókn mín fer mjög víða og fjallar fyrst og fremst um Flugbjörgunarsveitina sem ákveðinn menningarkima. Ég tók þátt í tveggja ára nýliðaþjálfun og tók við- töl við átján aðila sem ýmist eru enn starfandi í Flugbjörgunarsveitinni eða hafa starfað þar og eins nokkra sem störfuðu aldrei með henni en höfðu þó einhver afskipti af sveitinni.“ „Flugbjörgunarsveitin mótaðist mjög af því að konur fengu ekki fulla aðild fyrr en 1995, þótt sérstök kvennadeild tæki til starfa 1966. Það er staðreynd sem ekki verður litið fram hjá þannig að það var eigin- lega óhjákvæmilegt að láta einn kafla af sjö í ritgerðinni fjalla um hana. Sveitin var stofnuð 1950 og það er því engin smáræðis saga sem liggur þarna að baki. Sú saga mótar starf sveitarinnar enn þann dag í dag. Til dæmis fékk sveitin í upphafi ýmsan búnað og þjálfun í fallhlífar hjá banda- ríska hernum á Keflavíkurflugvelli. Á þeim tíma kölluðu útköll oft á mjög erfiðar göngur og langa fjarvist frá heimilinu sem átti auðvitað sinn þátt í því að starf með sveitinni þótti ekki henta konum.“ Kvennadeildin var stofnuð 1966. Hvaða hlutverk hafði hún? „Hún var ákveðið fjárhagslegt bakland og alveg nauðsynleg starfinu á þeim tíma. Hún hjálpaði líka við að skaffa búnað og mat og var til staðar á meðan á út- köllum stóð. Fulltrúi kvennadeildar var líka stundum í stjórn sveitarinnar, þótt konurnar fengju ekki fulla félags- aðild. Kvennadeildin var að stærstum hluta skipuð eiginkonum, systrum, dætrum og mæðrum félagsmanna sem óhjákvæmilega drógust inn í þetta þar sem starf í sveitinni setti svo sterkan svip á heimilislífið.“ Hverju breytti það fyrir starf flug- björgunarsveitarinnar þegar konur fengu fulla aðild? „Það eru skiptar skoðanir um það reyndar. Flestir segja að það hafi breytt einhverju, stemn- ingin orðið öðruvísi og sumir ganga svo langt að segja að sveitin væri bara ekkert til í dag ef konur hefðu ekki fengið aðild. Það höfðu orðið miklar breytingar í þjóðfé laginu á þessum tíma, konur voru orðnar áberandi í öðrum björgunar- og hjálpar sveitum og krafan um inntöku kvenna varð ekki lengur hunsuð. En það hefur verið alveg skýrt frá upphafi að konur þurfa að ganga í gegnum sömu þjálfun og karlarnir, það er engin undanþága gefin frá því.“ Hvað er stór hluti sveit- arinnar konur í dag? „Það er mjög mis- jafnt hlutfall á nýliða námskeiðum, stundum eru konurnar fleiri en með- altal kvenna starfandi í sveitinni er svona einn þriðji af heildar fjöldanum.“ Og er fullkomið jafnrétti innan sveitarinnar? „Á yfirborðinu, já. Konur eiga að hafa alveg sömu tæki- færi og karlar. En það er svona lúmskt misrétti, til dæmis eru þrír lokaðir hópar, undanfarahópur, fallhlífa- hópur og sleðahópur og þar eru konur í miklum minnihluta. Þegar ég spurði viðmælendur mína hvort jafnrétti ríkti hjá sveitinni vitnaði fólk mjög mikið í það að það hefði einu sinni kona verið formaður. Minnti mann dálítið á umræðuna þegar Vigdís var kosinn forseti, að það þýddi að jafn- rétti væri náð. En auðvitað er það ákveðið skref í jafnréttisátt að í sveit sem var búin til af körlum fyrir karla skuli kona hafa orðið formaður. Það sýnir að fólk er tilbúið til að breyta. Það gerist hægt en það er að gerast.“ fridrikab@frettabladid.is Kona formaður, þýðir það að jafnrétti sé náð? Védís Ólafsdóttir fl ytur í hádeginu í dag fyrirlestur sem hún hefur unnið upp úr MA- ritgerð sinni í þjóðfræði. Fyrirlesturinn nefnist Karlmannlegar konur? Kyn og kyngervi í Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og verður fl uttur í Þjóðminjasafninu. ÞJÓÐFRÆÐINGURINN Þjóðfræðin snertir eiginlega öll svið í menningu okkar, að sögn Védísar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.