Fréttablaðið - 01.02.2013, Page 26

Fréttablaðið - 01.02.2013, Page 26
FÓLK|HELGIN Eina kvöldstund í janúar sett-ist við matarborð í Hvassaleiti heiðursfólkið Ebenezer Halliday, greifinn De La Rochefour, Jane Mason, Rupert Carrington, Alex Simpson, lafði Swansea, Marie Mignon og Jessica Lyle. Morð var framið í miðju matarboðinu og þurftu matargestir að komast að því hver þeirra væri morðinginn. Þetta hljómar kannski eins og saga eftir Agöthu Christie og það er ekki fjarri lagi, en rétt er að þetta er einnig lýsing á matarboði sem hjónin Jakob Hrafnsson og Sigríður Heiðar héldu fyrir vinafólk sitt. „Sigga gaf mér fyrir nokkru pakka með uppskrift að sér- stöku matarboði sem bar heitið Agatha Christie, Murder Mystery Party. Við höfðum lengi beðið færis að halda það,“ segir Jakob. Sigríður bætir við að slíkt matarboð þarfnist mikils og nákvæms undirbúnings þar sem allt þurfi að ganga upp. „Boðið er fyrir átta manns og í pakkanum eru allar upplýs- ingar. Til dæmis fær hver og einn mat- argestur sent boðskort með nokkrum fyrirvara auk bæklings með upplýsing- um um sína persónu, klæðnað, hegðun og umræðuefni,“ lýsir Jakob. Enginn veit nákvæmlega hvernig framvinda boðsins verður, ekki einu sinni gestgjaf- arnir. „Við fengum aðeins að vita hvaða stemning ætti að vera varðandi mat, hvernig ætti að dekka borðið og hvaða tónlist ætti að hljóma,“ segir Sigríður en í sögunni fer matarboðið fram á ensku óðalssetri. Matseðillinn var glæsilegur og marg- rétta en krafðist þó nokkurrar yfir- legu að sögn hjónanna. „Við erum ekki með þjónustufólk á hverju strái og því ákváðum við að stíla inn á mat sem þyrfti ekki mikla yfirlegu í eldhúsinu á meðan á matarboðinu stæði,“ segir Jakob. „Við byrjuðum hins vegar að elda strax um morguninn til að hafa allt klárt um kvöldið,“ segir Sigríður og brosir. Þau eru sammála um að miklu skipti að velja boðsgesti af kostgæfni. „Fólk verður að skuldbinda sig til að mæta því leikurinn er ónýtur ef einn vantar,“ segir Sigríður og bætir við að fólk verði einnig að vera tilbúið til að nota leik- listarhæfileika sína. En hvernig fer leikurinn fram? „Í matar boðinu fylgir hver sínum bækl- ingi. Aðeins má lesa visst mikið í hvert sinn og svo koma stundum heillangar senur þar sem matargestir þurfa að leika,“ útskýrir Jakob en matarboðið fór aðallega fram á ensku enda leið- beiningarnar á því máli. Inn á milli rétta var spilaður dvd-diskur þar sem Hercule Poirot dró saman það sem á undan hafði gengið og veitti vissar upp- lýsingar. „Allir fá síðan að giska á hver morðinginn er og af hverju. Að lokum fer Poirot yfir málið og upplýsir það,“ segir Jakob, en aðeins einn matargest- anna giskaði rétt. „Þetta var nefnilega alls ekki einfalt enda voru allar persón- urnar með tilefni,“ bætir Sigríður við. En er aðeins hægt að spila sama spilið einu sinni? „Já, nú vitum við hver morðinginn er og því væri það ekki skemmtilegt,“ segir Sigríður. Hins vegar hafi hún og móðir hennar gripið tæki- færið fyrir jólin og keypt nokkrar fleiri útgáfur. Þær á stórfjölskyldan í samein- ingu og getur þannig notað til skiptis. „Þar á meðal er til dæmis matarboðið Death by chocolate,“ segir hún og hlær. Jakob og Sigríður mæla heilshugar með þessari upplifun. „Við buðum þremur vinahjónum sem ekki endilega þekktust sín á milli. Eftir hálftíma voru allir farnir að grínast og hlæja enda allir í búningi, í karakter og andrúmsloftið létt og skemmtilegt,“ segir Jakob glað- lega og er viss um að annað matarboð með svipuðu sniði sé ekki langt undan. Hópurinn verði þó líklega ekki sá sami. „Það er nefnilega mikill félagslegur þrýstingur frá öðrum vinum okkar um að fá að vera með,“ segir hann og hlær. ■ solveig@365.is MORÐ Í MATARBOÐI HLUTVERKALEIKUR Hjónin Jakob Hrafnsson og Sigríður Heiðar héldu afar óvenjulegt matarboð. Þau buðu þremur vinahjónum til veislu og fékk hver og einn fyrirmæli um sérstakan búning, persónuleika og umræðuefni. MATARGESTIR OG MÖGULEGIR MORÐ- INGJAR Í fremri röðinni eru Sigurlaug Jóhanns- dóttir, Kristín Ögmunds- dóttir, Bryndís Péturs- dóttir og Sigríður Heiðar. Í þeirri aftari: Sverrir Jan Norðfjörð, Baldur Már Vilhjálmsson, Jakob Hrafnsson og Sigurður Elí Haraldsson. FORDRYKKUR: Appelsínukampavínskokteill með koníakstári. LYSTAUKI: Ofnbakaður camembert með mangó- chutney. Piparostur, vínber og kex. FORRÉTTUR: Sterk ítölsk tómatsúpa með baguette-brauði. MILLIRÉTTUR: Sítrónusorbet með myntu og kampavíni. AÐALRÉTTUR: Himneskar, hægeldaðar kjúklingabringur með ríkri appelsínusósu. Borið fram með rósmarínkartöflubátum og rótarsteiktu grænmeti. EFTIRRÉTTUR: Heimagerð New York-ostakaka með hindberjagljáa. DRYKKIR: Vatn úr Gvendarbrunnum og eðalguðaveigar úr ýmsum áttum. HÖFUNDURINN ■ DROTTNING LEYNILÖG- REGLUSÖGUNNAR Lafði Agatha Mary Clarissa Christie (1890-1976) var bresk- ur glæpa- sagnahöfund- ur. Hennar er helst minnst fyrir þær 66 leynilögreglu- bækur sem hún skrifaði en hún gaf einnig út 15 smásagnasöfn, skrifaði leikrit og gaf auk þess út sex skáld- verk undir nafninu Mary West- macott. Meða þekktra persóna úr sögum hennar má nefna þau Hercule Poirot og Miss Jane Marple. MATSEÐILL Í MORÐGÁTU-MATARBOÐI Fyrir árshátíðina Fleiri myndir á Facebook 50 % afsláttur af síðkjólum og völdum stuttum kjólum MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *S am kv æ m t p re nt m ið la kö nn un C ap ac en t G al lu p nó v. -s ep t. 20 12 Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU Það er hvergi betri staður fyrir fjölpóst en inni í Fréttablaðinu. 60% landsmanna skoða fjölpóst. Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! 75% íbúa höfuðborgarsvæðisins lesa Fréttablaðið daglega. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi orn@365.is Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.            FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.