Fréttablaðið - 01.02.2013, Síða 33
LÍFIÐ 1. FEBRÚAR 2013 • 7
sem gæti náð mér heim. Eins
og er þá er heimilið mitt enn þá
í Sofíu.
Hvað ef leið þín liggur svo
heim fljótlega, hvað sérðu þá
fyrir þér að þú farir að gera?
Nú, ef ég kem heim veit ég ekki
hvað bíður mín. Ég hef verið að
skoða ýmislegt, bæði nýjar við-
skiptahugmyndir og líka að koma
inn í minni fyrirtæki sem þurfa á
smá hressingu að halda. Svo
er ég með einhver bókatilboð á
borðinu frá útgefendum. Ég hef
ekki tekið þeim síðustu ár en
þetta gæti verið rétti tíminn.
Hvernig gengur l íf ið eftir
skilnaðinn? Það gengur svona
ágætlega, takk. Lífið er búið að
vera mjög ævintýraríkt en á sama
tíma tómlegt. Auðvitað sakna ég
þess að hafa alla fjölskylduna
saman þegar ég vakna og þegar
ég fer að sofa. Ætli það sé ekki
tilfinning sem ég verð að venjast,
held að hún sé ekkert á förum.
Börnin þín, fjölskyldan og
uppeldið, segðu okkur aðeins
hvernig þú tekst á við móður-
hlutverkið samhliða forsíðu-
myndatökunum og öllum hinum
verkefnunum. Ég er svo heppin
að eiga þrjú heilbrigð og frábær
börn. Ég átti mitt fyrsta þegar ég
var aðeins sautján ára gömul,
hann Róbert minn. Hann er al-
gjör töffari sem er núna að klára
10. bekk í vor. Hann er ekkert
svakalega hrifinn af Búlgaríu en
er að skoða það að koma út eftir
skólann og fara að vinna í kvik-
myndaiðnaðnum. Þeir eru mjög
virkir þarna í Búlgaríu og fram-
leiða um 50 erlendar myndir á ári,
bæði stórar og litlar. Svo er það
hann Hektor Bergmann, hann er
sjö ára fótboltastrákur og býr hjá
pabba sínum. Hann æfir mikið og
er mjög efnilegur í boltanum, þeir
feðgar stunda þetta áhugamál af
krafti ásamt Gunnlaugsfjölskyld-
unni sem styður þá eftir bestu
getu. Ef það er ekki fótbolti úti á
velli þá horfa þeir á hann í sjón-
varpinu. Síðust í röðinni er svo
prinsessan hún Vict oria Rán, hún
er fimm ára og býr úti hjá mér.
Hún er ótrúlega klár lítil skelli-
bjalla og talar fjögur tungumál;
búlgörsku, þýsku, ensku og ís-
lensku. Hún hefur aldrei búið á
Íslandi og líður vel úti í Búlgaríu
þar sem hún hefur verið stærst-
an hluta af lífi sínu. Hún mun lík-
lega fara í rússneska og enska
einkaskóla fljótlega eftir að við
förum út aftur. Við Garðar höfum
verið mikið á flakki síðustu ár og
börnin að mestu alin upp erlendis
eða í Skotlandi, Svíþjóð, Búlgaríu,
Þýskalandi og Austurríki.
Hvernig hafa börnin fund-
ið sig í þessu flökkulífi? Þetta
hefur allt gengið mjög vel enda
þekkja þau nánast ekkert annað.
Ég var mjög mikið ein með litlu
krakkana þessi ár sem Garðar
stundaði fótboltann af krafti og
ferðaðist. Við vorum ein í burtu
frá öllum ættingjum öll þessi ár
en okkur leið bara vel og þetta
átti vel við okkur að ferðast svona
og upplifa ný lönd og tækifæri. En
í lokin þá var orðið svolítið erf-
itt að hafa ekki fótfestu og vita
aldrei hvað myndi gerast næst.
Ég á góðar minningar frá þess-
um tíma og fannst þetta aldrei
neitt mikið mál þó svo að ég væri
með tvö ung börn. Róbert bjó
að mestu leyti hjá pabba sínum
og fjölskyldu á þessum tíma og
heimsótti okkur út þegar tæki-
færi gáfust eða við komum heim.
Þetta eru orðin sjö ár núna sem
við erum búin að vera á flakki á
milli landa. Í lokin þráði Garðar að
fara heim en ég var ekki til-
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Verkjalaus og svaf
eins og engill
Á einhverjum tímapunkti ákvað ég
að hætta að taka inn NutriLenk, mér
leið svo vel - verkjalaus og svaf allar
nætur eins og engill en eftir nokkra
daga fann ég fyrir gamalkunnum
verkjum og var ég fljót að byrja aftur
að taka inn NutriLenk.
Nú tek ég NutriLenk Gold að staðaldri,
3 töflur á dag eða fleiri – því þar sem
mér finnst gaman af allri útiveru og
fer til dæmis í golf, göngur og sund þá
þarf ég að “hlusta” á líkamann og taka
fleiri töflur þá daga sem ég er í meiri
hreyfingu – allt upp í 5 töflur á dag.
Nutrilenk Gold hefur reynst mér hin
besta heilsubót og undravert hversu
vel það virkaði eftir aðgerðina.
Frábært að hægt sé að endurbæta
liðheilsuna með náttúrulegu efni og
get ég svo sannarlega mælt með
Nutrilenk Gold.
Anna K Ágústsdóttir
Endurheimt liðheilsa
og laus við lyfin!
Fyrir 3 árum gekkst ég undir liðskiptaaðgerð á mjöðm, hafði ég þurft
að taka inn gigtarlyf í 5 ár þar á undan vegna slitgigtar í báðum mjöð-
mum og hálsliðum. Eftir aðgerðina var ég í tiltölulega stuttan tíma
á sterkum verkjalyfjum því ég byrjaði meðfram þeim að taka inn
Nutrilenk og fann ég fljótt fyrir mun betri líðan.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
NUTRILENK
NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!
Victoria Rán,
dóttir Ásdísar
og Garðars er
aðeins fimm
ára gömul
en talar nú
þegar fjögur
tungumál.
Hér má sjá öll
börnin sam-
ankomin, þau
Róbert, Hektor
og Victoriu á
góðri stundu.