Fréttablaðið - 01.02.2013, Qupperneq 34
8 • LÍFIÐ 1. FEBRÚAR 2013
búin og ákvað að freista gæf-
unnar í Búlgaríu þar sem ég var
með nýtt fyrirtæki og líkaði vel. Á
þessum tímapunkti slitnaði upp
úr okkar sambandi og við völd-
um að fara hvort í sína áttina.
Eruð þið Garðar í góðu sam-
bandi? Já, við erum góðir vinir
og erum í mjög góðu sambandi,
ég get ekkert kvartað undan því
og hugsa að það verði aldrei nein
vandamál okkar á milli. Ég hef
valið mér þann góða sið að taka
öllum eins og þeir eru og gera
ekki óþarfa vandamál úr því sem
fæst ekki breytt þannig að ég er
ekki mikið fyrir að búa til drama
úr hlutunum eða vorkenna sjálfri
mér. Ég vona bara að hann finni
einhverja góða stúlku sem getur
hugsað vel um drengina mína –
þá verð ég ánægð.
Settirðu þér einhver ný mark-
mið fyrir árið 2013? Já, ég setti
mér margvísleg markmið fyrir
árið, bæði lítil og stór. Sem dæmi
þá ætla ég að vera duglegri í
ræktinni, koma mér í súper gott
form, framleiða eitthvað skemmti-
legt fyrir næstu jól, ferðast meira,
en ég er nú þegar búin að fara
til fimm landa í janúar þannig að
það gengur vel, stofna eitt spenn-
andi fyrirtæki, landa nokkrum
forsíðum, finna draumaprinsinn,
læra búlgörsku betur, koma oftar
til Íslands og eins og svo marg-
ir aðrir hugsa betur um sjálfa mig
og aðra.
Er sem sagt enginn sem hefur
hitt þig í hjartastað enn þá? Nei,
því miður hef ég ekki fundið þann
eina rétta. Ég er svo sem ekkert
að flýta mér enda búin að vera
í tveimur samböndum síðustu
sautján árin þannig að ég held ég
hafi bara gott af því að vera ein í
einhvern tíma en maður veit aldrei
hvað bíður handan við hornið.
Hvað er það sem heillar þig
í fari karlmanna? Ef ég hugsa
út í mína fortíð þá hef ég oft-
ast heillast og verið að vesenast
í yngri karlmönnum en þetta er
aðeins að breytast núna. Ef ég
myndi setja niður á blað hvernig
karlmann ég vildi myndi ég vilja
að hann væri á svipuðum aldri
og ég eða eldri, barngóður, við-
kunnanlegur, klár, myndarlegur
og með bein í nefinu og að hann
gæti veitt mér öryggi og höndl-
að mig og mitt líf án þess að éta
mig lifandi eða springa úr afbrýði-
semi. Ég er nefnilega ekkert sú
auðveldasta.
Völva Lífsins sagði eftirfar-
andi: Ásdís Rán verður ekki
mikið í sviðsljósinu á árinu. Hún
er ekki ánægð með lífið fyrri
part ársins 2013 en
það breytist með
haustinu. Hefurðu
í hyggju að draga
þig í h lé þegar
kemur að sviðs-
ljósinu? Hvað varð-
ar íslenskt sviðsljós
gæti allt eins verið
eitthvað til í þessu
þar sem ég hugsa
að ég verði mikið
erlendis að ein-
beita mér að öðru
sv ið i en áðu r.
Þar af leiðandi á
ég eftir að hafa
minn i t íma t i l
að skemmta íslenskum fjölmiðl-
um. Hins vegar held ég að það
séu mjög litlir möguleikar á því að
sviðsljósið minnki utan landstein-
anna, en þó svo að það gerist þá
truflar það mig
ekkert. Annars
tek ég þess-
um völvuspám
með fyr i rvara
þar sem þær
hafa spáð því á
hverju ári að ég
flytji heim en það
hefur ekki gerst
enn þá. Hvort ég
verði svo ham-
ingjusamari með
haustinu gæti líka
alveg verið rétt,
hver veit!
Ef ég hugsa út
í mína fortíð
þá hef ég oft-
ast heillast og
verið að ves-
enast í yngri
karlmönnum
en þetta er að-
eins að breyt-
ast núna.
Simmi og Jói
Laugardagsmorgna kl. 9 – 12