Fréttablaðið - 01.02.2013, Side 58
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 42SPORT
Helena Sverrisdóttir er komin upp í annað sætið yfir
bestu þriggja stiga skytturnar í Euroleague, Meistara-
deild kvenna í körfubolta. Hún hitti úr 2 af 4 þriggja
stiga skotum sínum í frábærum sigri
Good Angels Kosice á Fenerbahce á
miðvikudagskvöldið. Helena hefur
nú hitt úr 47 prósentum þriggja stiga
skota sinna í Meistaradeildinni (16 af
34) og það er aðeins liðsfélagi hennar,
Alexandria Quigley (51 prósent), sem
skákar henni. Helena er með 7,0 stig og
4,1 fráköst að meðaltali á 16,6 mínútum
í Euroleague í vetur en lið hennar er þegar
búið að tryggja sér sigur í sínum riðli.
Helena komin upp í 2. sætið
DOMINOS-DEILD KARLA Í KÖRFU
Grindavík - Þór Þorl. 89-87 (40-40)
Grindavík: Aaron Broussard 35 (10 frák.), Samuel
Zeglinski 19, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 16 (10
frák.), Þorleifur Ólafsson 12, Jóhann Árni Ólafsson
5, Björn Steinar Brynjólfsson 2.
Þór Þorl.: Benjamin Smith 26, David Jackson
23 (10 frák.), Darri Hilmarsson 14, Darrell Flake
11 (10 frák.), Guðmundur Jónsson 6, Baldur Þór
Ragnarsson 5, Emil Karel Einarsson 2.
Stjarnan - Snæfell 88-89 (48-47)
Stjarnan: Jarrid Frye 27 (9 frák.), Justin Shouse
19, Brian Mills 13, Jovan Zdravevski 12, Fannar
Freyr Helgason 10, Dagur Kár Jónsson 4, Kjartan
Atli Kjartansson 3.
Snæfell: Jay Threatt 28 (9 stoðs.), Sigurður
Þorvaldsson 18, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 16,
Asim McQueen 10, Sveinn Davíðsson 7, Ólafur
Torfason 6 (12 frák.), Hafþór Ingi Gunnarsson 4,
Jón Ólafur Jónsson 0 (0/8 í skotum, 23 mín.).
ÍR-Njarðvík 81-98 (39-52)
ÍR: D‘Andre Jordan Williams 27, Eric Palm 18,
Sveinbjörn Claessen 10, Vilhjálmur Theodór
Jónsson 8, Nemanja Sovic 8, Hjalti Friðriksson 6,
Ellert Arnarson 2, Þorvaldur Hauksson 2.
Njarðvík: Elvar Már Friðriksson 23, Nigel Moore
21, Marcus Van 20/18 fráköst, Maciej Stanislav
Baginski 15, Ólafur Helgi Jónsson 10/8 fráköst,
Ágúst Orrason 6, Hjörtur Hrafn Einarsson 3.
Skallagrímur-Fjölnir 85-83 (53-41)
Skallagrímur: Carlos Medlock 40, Davíð
Ásgeirsson 13/, Hörður Helgi Hreiðarsson 11,
Sigmar Egilsson 8, Páll Axel Vilbergsson 7, Trausti
Eiríksson 3, Orri Jónsson 3.
Fjölnir: Christopher Smith 23/16 fráköst,
Ingvaldur Magni Hafsteinsson 16, Tómas Heiðar
Tómasson 15, Arnþór Freyr Guðmundsson
9, Gunnar Ólafsson 8, Isacc Deshon Miles 8,
Björgvin Hafþór Ríkharðsson 4.
N1-DEILD KVENNA Í HANDBOLTA
Fram - Valur 22-27 (9-10)
Fram-kvenna - Mörk (skot): Elísabet
Gunnarsdóttir 6/2 (8/3), Stella Sigurðardóttir
4 (12), Sunna Jónsdóttir 3 (6), Birna Berg
Haraldsdóttir 3 (15), Hekla Rún Ámundadóttir
2 (2), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2 (3), Steinunn
Björnsdóttir 1 (3), Ásta Birna Gunnarsdóttir 1 (3).
Varin skot: Guðrún Bjartmarz 18/1 (45/3, 40%).
Valur-kvenna - Mörk (skot): Dagný Skúladóttir
9/1 (10/1), Þorgerður Anna Atladóttir 6 (15),
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 4 (10),
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 4/1 (12/2), Aðalheiður
Hreinsdóttir 2 (3), Karólína Bærhenz Lárudóttir 1
(1), Íris Ásta Pétursdóttir 1 (2),.
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 20/1
(42/3, 48%).
Valskonur eru með tveggja stiga forskot á toppi
deildarinnar og verður alltaf ofar endi liðin jöfn
að stigum.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Nýr kafli í glæsilegum
ferli Englendingsins Davids Beck-
ham hófst í gær. Þá samdi þessi 37
ára gamla goðsögn undir samning
við franska liðið PSG.
Þar ráða ríkjum moldríkir Kat-
arar sem ætla að gera PSG að
besta liði heims. Þeir eru þegar
búnir að eyða miklum pening-
um í félagið og eru ekki hættir.
Þeir munu þó klárlega græða líka
á Beckham enda enginn knatt-
spyrnumaður sem hefur selt álíka
magn af treyjum og þessi vinsæli
Englendingur.
Með komu Beckhams mun sviðs-
ljósið enn frekar vera á franska
félaginu og bíða margir spenntir
eftir því að fylgjast með samstarfi
Beckhams og Svíans Zlatans Ibra-
himovic. Zlatan mun fá úr nægu að
moða er Beckham byrjar að dæla
snilldarsendingum sínum inn í
teiginn á Svíann.
Beckham er sigurvegari. Það
er óumdeilt. Hvar sem hann hefur
verið hefur hann náð árangri. Fer-
illinn hófst hjá Man. Utd þar sem
hann spilaði í ótrúlegu liði og vann
Englandsmeistaratitilinn sex sinn-
um.
Látinn fara frá Manchester
Vinsældir hans voru miklar og
ekki minnkuðu þær er hann fór
að slá sér upp með kryddpíunni
Victoriu. Sumir segja að hann hafi
verið orðinn of stór fyrir félagið
og þess vegna hafi Sir Alex Fergu-
son, stjóri Man. Utd, ákveðið að
selja hann. Það hefur aldrei verið
staðfest. Samband Beckhams og
Fergusons var þó erfitt eftir vin-
sældir hans ruku upp úr öllu valdi.
Er frægt þegar Ferguson kastaði
skó í Beckham með þeim afleiðing-
um að leikmaðurinn fékk skurð á
höfuð.
Það varð að lokum óumflýjan-
legt að Beckham færi og hélt hann
því næst til spænska stórliðsins
Real Madrid. Margir höfðu efa-
semdir um að hann hefði það sem
til þyrfti hjá spænska félaginu en
hann þaggaði niður í öllum slíkum
röddum. Hann átti frábær ár hjá
félaginu og er enn mjög vinsæll
hjá stuðningsmönnum félagsins.
Hinn metnaðarfulli Beckham
var nú bæði búinn að vinna meist-
aratitla á Englandi og Spáni. Þá fór
hann út í hið kröfumikla verkefni
að koma bandarískum fótbolta á
kortið.
Innrásin í Bandaríkin
Það gekk upp og ofan hjá honum.
Bandarískur fótbolti náði ekki
sömu hæðum og stærstu íþróttirn-
ar í Bandaríkjunum en vinsældirn-
ar jukust samt talsvert. Fjölmiðla-
umfjöllun varð meiri og krakkar í
Bandaríkjunum flykktust á völlinn
til þess að æfa fótbolta. Beckham
náði ekki að lyfta boltanum upp í
hæstu hæðir en upp fór hann. Þess
utan vann Beckham tvo meistara-
titla og yfirgaf Bandaríkin sem
sigurvegari, enn á ný. Þrjú lönd og
meistari í þeim öllum.
Það er ansi líklegt að hann verði
orðinn meistari í fjórða landinu
síðar á þessu ári. PSG er á toppn-
um í Frakklandi og ansi líklegt til
afreka með sinn frábæra mann-
skap.
Það á líka eflaust mjög vel við
tískuhjónin að búa í París en eig-
inkona Beckhams, Victoria, hefur
verið að láta til sín taka á þeim
markaði með góðum árangri og
Beckham eftirsótt módel þess utan.
París er því vettvangur nýrra
sigra Beckham-hjónanna og þau
munu vafalítið ná árangri þar eins
og annars staðar. henry@frettabladid.is
Beckham ræðst inn í París
David Beckham mun freista þess að verða meistari í fj órða landinu á sínum ferli en hann er búinn að semja
við franska stórliðið PSG. Félagið er þegar búið að eyða hátt í 400 milljónum punda í leikmenn og ætlar sér
stóra hluti í Evrópuboltanum. Margir bíða spenntir eft ir samstarfi Beckhams og Zlatans Ibrahimovic.
ENN EITT ÆVINTÝRIÐ Beckham var kynntur á blaðamannafundi hjá PSG í gær. Þar á bæ ætlast menn til mikils af honum.
NORDICPHOTOS/GETTY
DAVID ROBERT JOSEPH BECKHAM
FERILLINN:
1993-2003: Man. Utd 265 leikir, 62 mörk
1995: Preston (lán) 5 leikir, 2 mörk)
2003-07: Real Madrid 116 leikir, 13 mörk
2007-12: LA Galaxy 98 leikir, 18 mörk
2009: AC Milan (lán) 18 leikir, 2 mörk
2010: AC Milan (lán) 11 leikir, 0 mörk
LANDSLEIKIR FYRIR ENGLAND:
115 leikir, 17 mörk.
TITLAR MEÐ MAN. UTD:
Enskur meistari: 6 sinnum (1995-96, 1996-97,
1998-99, 1999-2000, 2000-01, 2002-03)
Bikarmeistari: 2 sinnum (1995-96, 1998-99)
Góðgerðarskjöldurinn: 4 sinnum (1993, 1994,
1996, 1997)
Meistaradeildin: 1 sinni (1998-99).
HM-félagsliða: 1 sinni (1999)
TITLAR MEÐ REAL MADRID:
Spánarmeistari: 1 sinni (2006-07)
Ofurbikarinn: 1 sinni (2003)
TITLAR MEÐ LA GALAXY:
Bandaríkjameistari: 2 sinnum (2011, 2012)
Stuðningsmannaskjöldurinn: 2 sinnum (2010,
2011)
Kolbeinn Sigþórsson skoraði tvö
mörk í sínum fyrsta leik með Ajax í
fimm mánuði þegar hann kom inn
á sem varamaður í bikarleik á móti
Vitesse í gærkvöldi. Ajax tryggði sér
sæti í undanúrslitum keppninnar
með 4-0 sigri á útivelli.
Kolbeinn kom inn á sem varamaður
15 mínútum fyrir leikslok þegar
staðan var orðin 2-0 yfir Ajax. Hann
skoraði þriðja mark liðsins aðeins sex
mínútum síðar og fimm mínútum
síðar var hann búinn að skora aftur.
Kolbeinn hafði ekki spilað með
Ajax síðan í 2-2 jafntefli á móti AZ
Alkmaar í fyrstu umferð hollensku
deildarinnar 12. ágúst síðastliðinn en
hann þurfti síðan að fara í aðgerð á
öxl. Að sjálfsögðu skoraði Kolbeinn í
þessum eina leik sínum með Ajax á
tímabilinu og er því með þrjú mörk í
tveimur leikjum á leiktíðinni.
Síðasti opinberi leikur Kolbeins fyrir
leikinn í gærkvöldi var samt í 2-0 sigri
á Færeyjum á Laugardalsvellinum í
ágúst en Kolbeinn skoraði þá líka tvö
mörk eins og í gærkvöldi.
Kolbeinn er í leikmannahópi Íslands
fyrir vináttuleik við Rússa á Spáni í
næstu viku. - óój
Kolbeinn skoraði tvö fyrir Ajax í gær
Slökkvitækja-
þjónusta
oryggi.is
Sími 570 2400
Reglubundið eftirlit og
viðhald slökkvitækja
David Beckham olli ekki vonbrigðum á blaðamannafundi í París í gær
þar sem hann var tilkynntur sem nýr leikmaður PSG en eins og vanalega
geislaði hann af þokka og glæsibrag. Beckham er ekki kominn til Parísar
peninganna vegna sem sést kannski best á því að hann hefur ákveðið að
ánefna barnaspítala í París sex mánaða laun sín hjá PSG. „Ein af ástæð-
unum fyrir því að ég kem til Parísar er að við höfðum tækifæri til að gera
eitthvað einstakt. Launin mín munu fara til barnaspítala í París og ég er
mjög spenntur og stoltur yfir því að geta gert það. Ég er ekki viss um að
svona hafi verið gert áður,“ sagði Beckham meðal annars á fundinum.
Barnaspítali í París fær öll laun Beckhams
Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður
Vals, hefur verið lánaður til hollenska
úrvalsdeildarfélagsins Pec Zwolle.
Þetta var tilkynnt á heimasíðu félags-
ins í gær. Magnús Agnar Magnússon,
umboðsmaður hans, staðfesti við
Fréttablaðið að um lánssamning væri
að ræða en félagið hefði möguleika á
að kaupa hann að honum loknum.
Pec Zwolle er nýliði í hollensku
úrvalsdeildinni og er sem stendur í
14. sæti deildarinnar. Fram undan er
því hörð fallbarátta fram á vor. - esá
Rúnar Már lánaður
til Hollands
Í BÚNINGI
GALAXY.
Í BÚNINGI
REAL.
Í BÚNINGI
MAN. UTD