Fréttablaðið - 01.02.2013, Side 62

Fréttablaðið - 01.02.2013, Side 62
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 46 Yfir 200 manns mættu í Bíó Paradís í gær í starf- sviðtal hjá fyrirtækinu Hópkaup.is. Auglýst var eftir fólki sem þurfti að vera 20 ára og eldra og koma vel fyrir. Í þessu starfi, sem Hópkaup gaf í skyn að væri draumastarf, felst að prófa þau fríðindi sem fyrirtækið auglýsir á síðu sinni. Þannig fær starfsmaðurinn borgað fyrir að gista á flottum hótelum, borða góðan mat á veitingastöðum, fara í nudd, snyrtingu og fleira. Er þetta ekki algjört draumastarf? „Ég tel að það séu ekki mörg svona spennandi og fríðindamikil störf í boði. Starfið verður örugglega mjög mikil skemmtun fyrir þá einstaklinga sem fá það, sérstaklega þegar aðeins fer að vora og fólk getur farið í afþreyingu eins og Gokart eða annað slíkt,“ segir Stefán Jökull Stefánsson, netmarkaðsstjóri Hópkaupa. Spurður hversu margir verða ráðnir segir Stefán að það komi í ljós. „Vonandi verður erfitt að ráða. Hugsanlega verða þetta tvö störf, hugsanlega þrjú eða kannski eitt. Það fer eftir þeim hæfileikum sem verða til staðar.“ Á bilinu tíu til tólf starfsmenn eru fyrir hjá Hóp- kaupum, sem var stofnað í mars 2011. „Það gengur vel. Við sjáum ekkert nema bjarta tíma fram undan.“ - fb Margir sóttu um draumastarfi ð Hópur fólks mætti í starfsviðtal hjá Hópkaupum.is í Bíói Paradís í gær. Í BÍÓ PARADÍS Vala Grand var meðal þeirra sem mættu í starfsviðtal hjá fyrirtækinu Hópkaup.is. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta er stór dagur í íslenskri tón- listarsögu,“ segir Magni Ásgeirs- son. Hann er aðalsöngvari Kiss- heiðurshljómsveitarinnar Meik sem spilar á sínum fyrstu tónleik- um á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Næstu tónleikar verða á Spot í Kópavogi 8. febrúar. Aðrir meðlimir í Meik eru einn- ig reynsluboltar úr tónlistarbrans- anum, þeir Eiður Arnarsson úr Todmobile, Einar Þór Jóhannsson úr Dúndurfréttum, Jóhann Hjör- leifsson úr Sálinni, Jón Elvar Haf- steinsson úr Delize Italiano og Þrá- inn Árni Baldvinsson úr Skálmöld. „Hljómsveitin er alveg klikkuð. Þetta er stórskotalið hljóðfæra- leikara og Kiss-aðdáenda,“ segir Magni. „Ég er búinn að grínast með það nokkrum sinnum að þeir séu eins og Star Trek-nördar, þeir eru svo vel að sér nokkrir í Kiss-fræð- um. Ég og Jói trommari erum eins og aukvisar miðað við þessa menn.“ Hann segist hlakka til kvöldsins en einnig vera smá stressaður. „Við erum að spila tónlist sem sumir líta á sem trúarbrögð. Maður þarf að standa sig.“ Spurður hvort þeir verði meik- aðir eins og liðsmenn Kiss segir Magni að farið verði með það allavega hálfa leið. En hvað með hárkollur? „Ég nenni því nú ekki. Þar dreg ég mörkin.“ Magni fer á Eurovision-æfingu í Hörpu á morgun og flýgur svo norð- ur. Spurður hvort hann lendi ekki í öðru til þriðja sæti eins og hing- að til segir hann: „Það er alltaf gaman að vera í topp þrjú. Það væri samt gaman að prófa fyrsta sætið einu sinni en ég er ekkert frekur.“ -fb Líta á tónlistina sem trúarbrögð Fyrstu tónleikar Kiss-heiðurshljómsveitarinnar Meik verða á Akureyri í kvöld. KISS Magni og félagar spila fræg lög með Kiss á tón- leikunum í kvöld. „Það verða tíu erlend atriði á hátíðinni og ég get staðfest að DMX er eitt þeirra, en hann er ekki það stærsta. Auk þess verður þarna rjóminn af íslensku tónlistarsenunni,“ segir umboðsmaðurinn Ólafur Geir Jónsson. Hátíðin sem um ræðir er Keflavík Music Festival 2013, sem haldin verður dagana 5. til 9. júní. Það eru Ólafur Geir hjá agent.is og Pálmi Þór Erlingsson sem standa að hátíðinni. „Við verðum á átta stöðum um bæinn, allt frá Reykjaneshöllinni yfir í Keflavíkurkirkju,“ segir Ólafur Geir. Þetta er í annað sinn sem hátíðin verður haldin og hefur hún vaxið mikið frá þeirri fyrstu sem var síðasta sumar. „Við erum búin að bæta við helmingi fleiri stöðum og dagskráin er tíu sinnum stærri,“ segir Óli Geir en þar að auki er búið að lengja hátíðina úr þremur kvöldum í fjögur. Atriði hátíðarinnar verða um 150 talsins og hljóm- sveitir geta sótt um að vera með á heima- síðu hátíðarinnar. Atriðin verða kynnt smám saman á næstu vikum og hafa nú fyrstu fimm verið staðfest. Það eru íslensku hljómsveit- irnar SIGN, Agent Fresco og Bloodgroup auk þeirra Páls Óskars og Moniku og áðurnefnds DMX. Rapparinn og þrettán barna faðirinn DMX er mörgum að góðu kunnur en þetta verð- ur í fyrsta skipti sem hann kemur til lands- ins. Hann er fæddur árið 1970 og hefur verið liðlega þrjátíu ár í bransanum. DMX gaf út sína fyrstu plötu árið 1998 og hefur selt yfir þrjátíu milljónir platna á heimsvísu, sem gerir hann að einum söluhæsta hipphopptón- listarmanni allra tíma. Auk þess hefur verið gerð raunveruleikaþáttaröð um hann, hann hefur gefið út sjálfsævisögu og leikið í fjölda bíómynda. Árið 2009 tók DMX sér frí frá bransanum í þeim tilgangi að rækta trúarlíf sitt. Hann hefur nú snúið aftur og gaf út sína nýjustu plötu, Undisputed, í september. „Hann er búinn að frelsast, er orðinn edrú og búinn að taka sig algjörlega í gegn,“ segir Óli Geir. Miðasala á Keflavík Music Festival hefst í dag og verður hægt að nálgast miða á sérstöku forsölutilboði þar til 8. febrúar á heimasíðunni keflavikmusicfestival.com. tinnaros@frettabladid.is DMX kemur á stóra hátíð í Kefl avík Fyrstu atriðin á Kefl avík Music Festival 2013 hafa verið tilkynnt. Hátíðin verður haldin öðru sinni í sumar og segir skipuleggjandi dagskrána hafa vaxið tífalt. ENGINN SAKLEYSINGI DMX hefur upplifað tímana tvenna og lent í ýmsu í gegnum árin. NORDICPHOTOS/GETTY Rapparinn DMX hefur fengið fjöldann allan af verðlaunum og viðurkenningum á ferli sínum. Meðal annars hefur hann verið tilnefndur til Grammy-verðlauna í þrígang og fimm sinnum til MTV-tónlistarverðlaunanna. Hann er eini tónlistarmaðurinn í sögunni sem gaf út fimm plötur í röð sem allar fóru beint á toppinn á Billboard 200 listanum í Bandaríkjunum. Önnur plata hans, Flesh of My Flesh, Blood of My Blood, sat þar í þrjár vikur samfleytt þegar hún kom út í desember 1998. 670.000 eintök af þeirri plötu seldust fyrstu vikuna eftir að hún kom út. Eitt vinsælasta lag DMX, Party Up (Up in Here) kom út árið 1999 og var í 56. sæti á topp 100 laga lista VH1 árið 2000. Platan sem það lag var á, And Then There Was X, varð sexföld platín-plata. Fimm plötur á top Billboard „Ég ætla á þorrablót á föstudags- kvöldið. Svo ætla ég að slaka á á laugardag, væri gaman að skella sér í sund með guttann. Á sunnudaginn fer ég svo á samkomu hjá Salti, kristnu samfélagi.“ Laufey Aðalsteinsdóttir, eigandi Blómabarna. HELGIN NAOMI WATTS TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI 100/100 „Ógnvænlega vel gerð.“ 100/100 „Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir sem fólk verður að sjá á árinu.“ 100/100 „Einstaklega raunveruleg stórslysamynd, sem lætur engan ósnortinn“ „Ein af betri myndum ársins 2012.“ Mbl. Komin í bíó

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.