Fréttatíminn - 14.10.2011, Side 14
Borgartún 26 » 105 Reykjavík
Hafnarstræti 102 » 600 Akureyri
Sími: 545 3200 » Fax: 545 3201
sala@maritech.is » www.maritech.is
Maritech hefur verið leiðandi í þróun hugbúnaðarlausna
fyrir sjávarútveginn um árabil. Lausnir Maritech spanna
alla virðiskeðjuna frá skeldi og veiðum til sölu og dreingar.
WiseDynamics lausnir veita
ölbreytta möguleika á að fylgjast
með og greina upplýsingar fyrir
stjórnendur í rauntíma. Um er að
ræða: Wise stjórnendasýn, Wise
greiningartól, Wise BI teninga, Wise
skýrslur, Wise farsímalausn og Wise
samningaker.
WiseFish lausnir innihalda Gæðastjórnun,
Fiskeldi, Útgerð og kvóta, Vinnslu, Birgðir og
vöruhús og Sölu og útutning.
WiseDynamics
stjórnendalausnir
Nýjustu upplýsingar eru forsenda réttra ákvarðana
WiseFish
sjávarútvegslausnir
Dynamics NAV í áskrift:
Eigðu eða leigðu kerð,
kynntu þér hagkvæmar lausnir Maritech.
- tryggir þér samkeppnisforskot
Sjávarútvegslausnir
á að síðast þegar ráðist var í átak
hafi húsaleigubætur komið til og
skattlagning breyst.
Markaðurinn hafi
verið að þróast í átt
ina að leigumarkaði
eins og er í öðrum
löndum – komið upp
á yfirborðið. „Það var
farið að lána til að
byggja leiguíbúðir.
Menn byggðu og
byggðu og fengu
lán. Íbúðirnir fóru
hins vegar aldrei út
á leigumarkaðinn
heldur voru seldar
á frjálsum markaði.
Aðgerðin lak því út.
því miður,“ segir
Sigurður Helgi.
Hvað er til ráða?
Ljóst er að eitt
stærsta vandamál
íslenska leigumark
aðarins kristallast í
orðum Lilju Móses
dóttur alþingis
manns sem segir að
ráðstöfunartekjur
heimilanna hafi
rýrnað um 27,4 pró
sent frá byrjun mars
2008 og lán hækkað
um 40 prósent. „Ég
veit ekki um neina
þjóð sem hefur þurft
að taka á sig aðra
eins eignarýrnun og
kaupmáttarrýrnun,“
segir Lilja.
Svanur segir að
það sé alveg ljóst
að eitthvað þurfi að
gera til að minnka
gjána sem hefur
myndast á milli
leigjenda annars
vegar og leigusala hins vegar. „Það
sér það hver heilvita maður að
þetta gengur ekki. Leiguverð er
of hátt fyrir leigjendur en of lágt
fyrir leigusala. Það þarf að hækka
laun og auka kaupmátt fólks. Það
þarf að lækka vexti og skatta til að
lækka kostnað leigusala. Ef þetta
væri gert myndum við færast nær
eðlilegum leigumark
aði,“ segir Svanur
og bætir við að hann
fagni áformum
Reykjavíkurborgar
sem tilkynnti í liðinni
viku áætlunir sínar
um að byggja 500
nýjar íbúðir á næstu
árum. „Þar fáum við
litlar íbúðir sem fólk
er að leita að,“ segir
hann.
Friðjón vonast til
að sú lagabreyting að
heimila lífeyrissjóð
um að eiga íbúðar
húsnæði með útleigu
í huga geti skapað
öryggi á markaðnum.
„Maður veit auðvit
að ekki hvernig það
þróast en ég sæi fyrir
mér að sjóðirnir yrðu
kjölfestufjárfestar í
stærri leigufélögum,“
segir Friðjón.
Sigurður Helgi er á
sömu línu og Svanur
þegar kemur að
aðgerðum. „Það þarf
að koma byggingar
iðnaðinum í gang.
Eftir því sem lengri
tími líður þeim mun
erfiðara verður að fá
hjólin til að snúast.
Það þarf að lækka
vexti og auka kaup
mátt. Þetta hangir
saman við almenna
húsnæðismarkað
inn og kerfið í heild
sinni. Það þarf að
kryfja almenna hús
næðis og leigu
markaðinn og ákveða
stefnu. Það er búið að skipa nefnd
sem hefur skilað tillögum til vel
ferðarráðuneytis. Það á að vera
búið að kortleggja ástandið en
maður bíður spenntur eftir því að
einhverjar aðgerðir verði tilkynnt
ar,“ segir Sigurður Helgi.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, sem
veitti forstöðu samráðshópi um hús
næðisstefnu á vegum velferðarráðu
neytisins, segir í samtali við Frétta
tímann að það liggi ljóst fyrir að það
hafi verið byggðar rangar tegundir af
húsnæði á röngum stöðum. Leigufélög
hafi verið stofnuð sem ekki hafi haft
bolmagn til að starfa – með of lítið eig
infé og óraunhæfa fjármögnun.
„Ég vil fá ríkið, sveitarfélög, lífeyris
sjóði og jafnvel verkalýðsfélög til að
koma að því að búa til alvöruleigufélög.
Slíkt myndi veita raunverulegt öryggi
á þessum leigumarkaði – nokkuð sem
hefur vantað hingað til. Síðan þarf rík
ið að standa jafnþétt við bakið á þeim
sem leigja og þeim sem eiga eignir.
Þeir sem skulda fá vaxtabætur burtséð
frá tekjum en aðeins þeir tekjulægstu
fá húsleigubætur. Þessu þarf að breyta. Hér er rekin séreignarstefna
og hún er góð á sinn hátt en það þarf að bjóða upp á valkost – heilbrigð
an leigumarkað fyrir þá sem ekki eiga eignir,“ segir Sigríður. -óhþ
Vill aðkomu hins
opinbera að uppbygg-
ingu leigumarkaðarins
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
formaður samráðshóps um hús-
næðisstefnu.
Markaðurinn er í ójafnvægi. Leiguverð er of
hátt fyrir leigjendur og of lágt fyrir leigusala.
Svanur Guðmundsson, for-
maður Félags leigumiðlara.
Friðjón Sigurðarson
leiguráðgjafi.
Sigurður Helgi Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Hús-
eigendafélagsins.
Helgin 14.-16. október 2011