Fréttatíminn - 14.10.2011, Blaðsíða 28
Nýir húsráðendur í Netagerðinni
Í húsinu við Nýlendugötu 14 voru
um árabil riðin net í Netagerð
Reykdals Jónssonar en í síðustu
viku var opnað þar annars konar
verkstæði þótt nafnið kinki kolli
til fortíðarinnar. Netagerð Work
& Shop er hönnunargallerí sjö
kvenna sem eru með opnar
vinnustofur í húsinu þannig að
fólk getur átt við þær milliliðalaus
viðskipti. Framboðið er fjölbreytt:
textílvörur, skartgripir, ljósmyndir
og ýmsir hlutir fyrir heimilið.
Frá og með þessari helgi fá
bragðlaukar gesta á staðnum líka
eitthvað við sitt hæfi þegar útibú
frá Humarhúsinu, Forréttabarinn,
verður opnaður á sama stað.
Ljósmyndir af netagerðarkonum/Hari
Vildi að ég hefði hannað ... PK22 eftir
Paul Kjærholm. Einfaldlega eitt fallegasta
húsgagn sem teiknað hefur verið, og það
á við næstum allt sem Paul hannaði.
Vildi að ég hefði hannað ... ljós
sem Poul Henningsen hannaði
fyrir meira en fjörutíu árum. Ljósið
heitir PH Artichoke eða þistilhjarta.
Þetta danska meistaraverk er líkt
og skúlptúr þar sem það hangir í
loftinu og dreifir ljósi á einhvern
veginn fullkominn hátt.
Eigin eftirlætishönnun ... ég er
mjög ánægð með Kanínu-klukk-
urnar okkar í Stássi. Þær eru úr áli og
upphaflega hugsaðar fyrir börn, en
eru yndislegar alls staðar, hvort sem
það er í eldhúsum, stofum, baðher-
bergjum eða sumarbústöðum.
Eftirlætis eigin hönnun
... kragarnir okkar Olgu í Volka. Þetta
var fyrsta varan sem við framleiddum
og seldum af einhverju viti. Eftir það
fórum við að gera stærra og meira. En
kragarnir voru byrjunin.
Eftirlætis eigin hönnun ... ég er
stoltust af HLJÓÐ-kúlunni minni.
Hún þjónar þrenns konar tilgangi;
dempari, dreifari og hefur síðan
fagurfræðilegt gildi!
Vildi að ég hefði tekið ... það eru
margar myndir sem koma til greina
en þessi var sú fyrsta sem mér datt í
hug. Hún er tekin af Kerry Brown en
ég kynntist honum í sumar þegar ég
var að vinna hjá TrueNorth við gerð kvikmyndar Ridleys Scott,
Prometheus. Myndin er af Ray Winestone sem er einn af mínum
uppáhaldsleikurum og Kerry náði honum í karakter eftir margar
„mjög skemmtilegar tilraunir“, að hans sögn.
Bryndís Bolladóttir
textílhönnuður
Vildi að ég hefði hannað ...
Algue-greinarnar eftir Ronan
og Erwan Bouroullec en þeir
bræður eru miklir snillingar.
Helga Guðrún Vilmundardóttir
arkitekt
Vildi að
ég hefði
hannað
... Kubus
stagen, kertastjaka sem var
hannaður af Dananum Mogens
Lassen árið 1960. Snilldin og töfr-
arnir felast í því hversu ótrúlega
einfaldur stjakinn er.
Vildi að ég hefði hannað ...
dásamlega og litríka Tropicalia
Cocoon-stólinn eftir Patriciu
Urquiola.
Eigin eftirlætishönnun ... frekar
erfitt val en ég ætla að segja textíl-
vörurnar okkar, Volki. Þær eru svo
litríkar, síbreytilegar og fullar af
gleði!!
Olga Hrafnsdóttir
bólstrari
Anna María Sigurjónsdóttir
ljósmyndari
Eftirlætis eigin ljósmynd ... það er breytilegt og fer eftir því
að hverju ég er að vinna. Í ágúst kom út bók eftir mig sem heitir
„herrar, menn og stjórar“ og mér þykir rosalega vænt um eina
myndina þar. Á henni eru hesturinn Háttur, hundurinn Jaki og
tamningamaðurinn Metta Manseth en á milli þeirra er einstakt
samband. Þetta var líka alveg rosalega skemmtilegt verkefni og
hefur heldur betur undið upp á sig.
Árný Þórarinsdóttir
arkitekt
Sigga Heimisdóttir
meistari í
iðnhönnun
Eftirlætis eigin hönnun ... er venjulega það sem ég
vinn að hverju sinni. Í dag þykir mér sérstaklega vænt
um hluti sem ég er að vinna að og tengjast Íslandi og
virðingu fyrir landinu okkar. Hér er standlampi sem er
hluti af þeirri seríu.
Eigin eftirlætishönnun ... sem stendur er í
uppáhaldi nýja skartgripalínan okkar í Stássi,
dufthúðuð álhálsmen og eyrnalokkar í leðurbandi.
Elísabet Jónsdóttir
grafískur hönnuður
Vildi að ég hefði hannað ...
mér finnst erfitt að svara þessari
spurningu – það er til svo mikið
af frábærri hönnun – en ég er
mjög hrifin af stólnum Rag Chair
eftir hollenska hönnuðinn Tejo
Remy. Ég hef alltaf verið hrifin af
hugmyndinni um að búa til
nýtt úr gömlu; endur-
vinnslu í hönnun – og
Rag-stóllinn er búinn
til úr gömlum fötum.
28 hönnun Helgin 14.-16. október 2011