Fréttatíminn - 14.10.2011, Síða 40
Atvinnutækifæri í Evrópu
Vinnumálastofnun og EURES standa fyrir starfakynningu
í Ráðhúsi Reykjavíkur 14. og 15. október.
Föstudagur 14. október kl. 17:00 – 20:00
Laugardagur 15. október kl. 12:00 – 18:00
Einkum er eftirspurn eftir fólki úr eftirtöldum starfsstéttum:
Mikil eftirspurn er eftir flestum starfsstéttum í byggingariðnaði svo sem byggingaverkfræðingum, húsasmiðum, rafvirkjum, málurum, járnamönnum,
pípulagningarmönnum ofl. Einnig er eftirspurn eftir járniðnaðarmönnum hvers konar auk bifvélavirkja, vélvirkja og rútubílstjóra. Þá vantar bæði
bókara og fjármálastjóra. Enn sem fyrr er mikil eftirspurn eftir bæði verkfræðingum og hjúkrunarfræðingum.
Eftirtalin fyrirtæki kynna laus störf og taka á móti umsóknum:
Frá Noregi koma fulltrúar frá Match Bemanning AS, AM Direct AS, Bodö kommune, Dresser-Rand AS, Aure Kommune, Rett Bemanning AS og
CBA Fagformidling.
Eures ráðgjafar frá eftirtöldum löndum kynna atvinnutækifæri í sínum löndum:
Noregi, Þýskalandi, Belgíu, Svíþjóð Danmörku og Bretlandi.
Á kynningunni verða kynnt laus störf og veittar upplýsingar um starfs- og búsetuskilyrði víða í Evrópu. Einnig gefst fólki færi á að ræða milliliðalaust
við atvinnurekendur. Sjá má hluta þeirra starfa sem í boði eru á síðunni www.eures.is með því að smella á „Laus störf“.
A lliance française í Reykjavík var stofn-að árið 1911, hinn
16. október. Fyrst í stað
fólst starfsemi þess í því að
standa að kvöldum þar sem
bókmenntir og listir voru
skeggræddar.
Kennsla frá 1924
Alliance française hóf
frönskukennslu árið 1924
og fór hún fyrst í stað fram
í húsnæði KFUM. Fyrsti
kennarinn var Páll Sveins-
son, forseti félagsins frá 1915-1930.
Hann tók árið 1930 saman fyrstu
frönskukennslubókina sem gefin var
út á íslensku, en Alliance française gaf
hana út með stuðningi íslenskra yfir-
valda menntamála.
Árið 1932 varð mikil uppsveifla í
frönskukennslunni. Meira en sjötíu nem-
endur sóttu frönskutíma. Þessi mikli
áhugi kann að vera því að þakka að þá
kom kennari, að nafni frú Jolivet, sér-
staklega til Íslands til að sinna frönsku-
kennslunni.
Frönskukennslan fyrir börn
Árið 1935 hóf Thora Fridriksson, sem
var forseti Alliance française frá 1932
til 1938, frönskukennslu fyrir börn og
samdi sérstaka kennslubók í því skyni,
en kennt var í Landakotsskóla. Á þess-
um tíma var afar sjaldgæft að börnum
væru kennd erlend tungumál, en þetta
sýnir þann metnað og framfarahyggju
sem Alliance française í Reykjavík hef-
ur ævinlega haft að leiðarljósi í frönsku-
kennslunni.
Alla tíð síðan hefur Alliance française
leitast við að bjóða nemendum upp á
vandaða og nútímalega
frönskukennslu. Allir
kennarar sem starfa hjá
Alliance française eru
með kennslurétt indi
og mikla reynslu. Nem-
endur eru nú um 300 á
öllum aldri, allt frá börn-
um til „heldri borgara“.
Nú er nýjustu aðferðum
sem uppfylla alla Evrópu-
staðla beitt í kennslunni
og kennarar nota nýjustu
kennslutækni, s.s. raf-
rænar töflur.
Menningarsamstarf
Öflugt menningarstarf hefur, ásamt
frönskukennslunni, verið annar meg-
inþátta í starfsemi Alliance française
allt frá upphafi, enda félagið stofnað af
„þeim mönnum, er áhuga hafa á frakk-
neskri tungu, og bókmenntum“. Á
fyrstu árum félagsins var áhersla lögð á
að byggja upp franskt bókasafn og efna
til umræðukvölda um bókmenntir og
listir undir nafninu „le cercle français“.
Menningarstarfið varð öflugra og
fjölbreyttara eftir því sem félaginu óx
ásmegin og það hefur í gegnum tíðina
staðið að komu fjölmargra franskra lista-
manna og menningarfrömuða hingað
til lands. Enn fremur hafa fjölmargir af
helstu lista- og fræðimönnum okkar lagt
félaginu lið í gegnum árin. Alliance fran-
çaise hefur þannig efnt til bókmennta-
kvölda, tónleikahalds, leiksýninga,
danssýninga, tískusýninga, málverka-
sýninga, ljósmyndasýninga, sýninga
um byggingarlist, kvikmyndasýninga
og -hátíða, og þá er ekki allt upp talið,
ýmist eitt eða í samstarfi við íslenskar
menningarstofnanir, skóla og fyrirtæki.
Lífsnautnir
Frakkar eru, sem kunnugt er, mikið lífs-
nautnafólk og snar þáttur í menningu
þeirra er að koma saman, njóta þess að
vera í góðum félagsskap, borða góðan
mat og dreypa á ljúfu víni. Þessi þátt-
ur í starfseminni hefur ævinlega notið
mikilla vinsælda. Framan af öldinni
voru þetta „skemmtisamkomur“ eða
„dansveislur“ sem einkum voru sóttar
af broddborgurum bæjarins sem gjarna
töluðu frönsku á þeim samkomum. Með
þeim þjóðfélagsbreytingum sem áttu sér
stað á sjöunda áratug síðustu aldar og
auknum ferðalögum Íslendinga breytt-
ist þetta. Undanfarna áratugi hafa tvær
veislur verið haldnar árlega á vegum
félagsins, jólahlaðborð í desember og
árshátíð í lok maí. Auk þess hefur Alli-
ance française staðið fyrir fjölmörgum
námskeiðum um franska matar- og
vínmenningu, svo sem vínsmökkunar-
námskeið, súkkulaðinámskeið og mat-
reiðslunámskeið.
Blómlegt starf á aldarafmælinu
Nú á aldarafmæli Alliance française í
Reykjavík er menningar- og félags-
starfið öflugra en nokkru sinni fyrr og á
árinu stendur það fyrir á þriðja tug við-
burða í samstarfi við sendiráð Frakk-
lands á Íslandi, auk ýmissa hérlendra
menningarstofnana og -hátíða.
Allt frá upphafi og til dagsins í dag
hefur félagið notið dyggs stuðnings og
einstaks velvilja franska sendiráðsins
á Íslandi, franskra yfirvalda hérlendis,
og ber að þakka það sérstaklega. Ald-
arafmæli félagsins er því merkur áfangi
í sögu menningarsamstarfs og vináttu
milli þjóðanna tveggja, Frakka og Ís-
lendinga.
Tímamót
Alliance française í Reykjavík 100 ára
Friðrik Rafnsson
forseti Alliance
française í Reykjavík
36 viðhorf Helgin 14.-16. október 2011