Fréttatíminn - 14.10.2011, Page 54
W
orld Class í Laugum
hefur mikla sérstöðu
meðal heilsuræktar-
stöðva í Evrópu því
þar geta allir aldurs-
hópar sótt sér heildræna þjónustu og
tenging stöðvarinnar við stærstu sund-
laug landsins spillir ekki fyrir. Boðið er
upp á barnagæslu, fyrsta flokks líkams-
ræktaraðstöðu með heimsklassa líkams-
ræktartækjum, fagfólk í einkaþjálfun,
fjölbreytta hóptímakennslu og þjálfun,
margs konar snyrtimeðferð og nudd, nær-
ingarráðgjöf, sjúkraþjálfun, girnilegan
safabar (Laugabar) og heilsusamlegan
mat á Laugar Café. Ekki má gleyma hinni
ómótstæðilegu Baðstofu með mismun-
andi gufuböðum, heitum og köldum potti
og hvíldarherbergi.
Aðhald og hvatning á námskeiðum
Í World Class er boðið upp á mikið úrval
af námskeiðum allan ársins hring. Gígja
Þórðardóttir, deildarstjóri kennara, nám-
skeiða og þjálfara hjá World Class, segir
markmiðið að bjóða upp á sem breiðast
úrval námskeiða. „Við reynum að hafa sitt
lítið af hverju, frá mjúkum námskeiðum
eins og fit pilates, core pilates og mömmu-
leikfimi, upp í súperform, ketilbjöllur og
cross fit og allt þar á milli. Við bjóðum líka
upp á námskeið fyrir bæði unglinga og
eldri borgara og reynum að spanna allan
skalann.
Það eru svo ofsalega margir sem þurfa
virkilega á því að halda að fá aðhald og
stuðning við heilsurækt og það er ekk-
ert skrýtið því allar breytingar á venju
krefjast oft mikils aga og festu og það
verður bæði auðveldara og skemmtilegra
að takast á við venjubreytingar í góðum
hópi með flottum kennara. Aðalmálið við
námskeið er að þar er fólk komið inn í hóp
með öðrum sem líklegt er að séu að vinna
að svipuðum markmiðum. Þar fær fólk
aðhald, fræðslu og mælingar og hvatn-
ingu frá kennara og fólkinu í hópnum. Þá
eru líka miklu meiri líkur á að fólk fái rétt
æfingaálag því kennarinn þekkir hópinn
og veit hvað má bjóða honum.“
Gígja segir vinsælustu námskeiðin
hafa verið súperform, cross fit og zumba
ásamt pilates-námskeiðum. En eru þetta
ekki erfið námskeið, eitthvað sem fólk
mætir í einu sinni og síðan ekki söguna
meir? „Nei, alls ekki. Það er einmitt einn
af kostum námskeiða að hægt er að byrja
á grunninum og byggja hægt og rólega
ofan á. Í cross fit er til dæmis farið mjög
vel í allar grunnæfingar og tæknina í æf-
ingunum til að byrja með og það til hvers
er ætlast. Eftir fjögurra vikna grunnnám-
skeið getur fólk svo farið að spýta í lófana
og gera æfingarnar á sínum hraða. Það
sama má segja um önnur námskeið; það
er góður stígandi og allir ættu að geta
gert æfingarnar.
World Class í laugum
Allt í einni ferð
Í formi til framtíðar eru grunnnám-
skeið fyrir konur sem eru að taka
fyrstu skref í átt að bættri heilsu. Þar er
lögð áhersla á að þau séu ekki of erfið
svo að fólk komist hægt en örugglega
af stað. Súperformið er svo erfiðara og
í raun næsta skref. Það er fyrir karla
og konur sem eru í ágætu formi og eru
komin á það stig að fara í ræktina af því
að þeim finnst það gaman og það er val
en ekki kvöð.
Svo bjóðum við upp á námskeið
fyrir konur sem þurfa að missa meira
en 20 kíló af heilsufarsástæðum. Þau
kallast lífsstíll 20+ og hafa vakið mikla
athygli enda stækkandi hópur sem er
of þungur og taka verður sérstakt tillit
til þess í æfingavali. Það er sérstaklega
ánægjulegt þegar góður árangur næst
hjá þátttakendum í lífsstíl 20+ enda til
mikils að vinna og konurnar eru ótrú-
lega stoltar af sjálfum sér.“
En núna eru allir að tala um zumba,
hvað er það?
„Zumba eru mjög einföld og
skemmtileg dansspor við suðræna
tónlist. Þau eru ekki það flókin að fólk
nái þeim ekki, það þarf ekki að vera
samkvæmisdansasnillingur til að fá
eitthvað út úr þessu. Þetta er rosa-
lega skemmtilegt og fólk kemur út úr
þessu í gleði-endorfínvímu. Það finnst
ekki öllum gaman að lyfta lóðum og
sumir vilja gera eitthvað svona. Svo eru
margir sem blanda þessu saman; eru
kannski í æfingasalnum eða í öðrum
tímum en fara í zumba til að fá útrás
fyrir dans og gleði. Það er einmitt það
sem við þurfum hér yfir vetrartímann.
Margir tengja svona suðræna tónlist
við hita og sól en okkur veitir ekki af
að fá smá hita í hjartað og hrista okkur
aðeins. Allir zumba-kennarar í World
Class eru með zumba-kennararétt-
indi og þátttakendur geta farið í tíma
fjórum sinnum í viku því frá og með 17.
október bjóðum við upp á framhalds-
Í formi til fram-
tíðar eru grunn-
námskeið fyrir
konur sem eru
að taka fyrstu
skref í átt að
bættri heilsu. Þar
er lögð áhersla á
að þau séu ekki
of erfið svo að
fólk komist hægt
en örugglega af
stað.
Kynning
Brian Culkin jógakennari.
50 heilsa Helgin 14.-16. október 2011