Fréttatíminn - 14.10.2011, Síða 60
Helgin 14.-16. október 201156 tíska
Tökum vetrinum
opnum örmum
Tíminn er fljótur að líða. Miður október,
haustið komið og veturinn ekki langt undan.
Það er eins og það hafi verið í gær sem ég
hlakkaði til sumarsins og mikil og stór plön
biðu mín. Núna, eins og á hverju ári, finnst
mér eins og sumarið hafi svikið mig. Mér
finnst of snemmt að anda að mér haustlyktinni
sem liggur í loftinu. Of snemmt að pakka mér
inn í þykka úlpuna á morgnana sem eru orðnir
kaldir og dimmir. En það er samt kominn
október.
Ég er ein af þeim Íslendingum sem reyna
að halda sem lengst í sumarið. Við
höfum alltaf verið svoleiðis. Sum-
arið í ár byrjaði um miðjan júní.
Óvenju seint. Og sólin skein aðeins
í nokkrar vikur. Það er kominn október og
enn reyni ég að komast upp með að klæða mig
samkvæmt sumrinu. Þarf kannski að fara að
kyngja því að sumarið kemur ekki aftur fyrr
en eftir nokkra mánuði. Það er þó aðra sögu
að segja af frændum okkar í Skandinavíu
sem enn klæðast sumarflíkum og sandölum
í venjulegu sumarveðri í október. Það þýðir
kannski ekki fyrir okkur hin að hugsa um
það. Við þurfum bara fljótlega að taka niður
allt vetrardraslið og taka vetrinum opnum
örmum. Fagna komu hans og njóta augna-
bliksins. Dúða okkur á morgnana og upplifa
veturinn eins og krakkar á jólunum.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Gaman að fara í
verslunarleiðangur
Föstudagur
Skór: Sautján
Buxur: Billabong
Bolur: Retro
Peysa: Hugo Boss
Griffla: Tekin ófrjálsri
hendi af pallbíl í Fellabæ
Sveinbjörn Jónasson er 25 ára knatt-
spyrnukappi. Hann vinnur sem fyrirtækja-
fulltrúi í Landsbankanum ásamt því að
stunda meistaranám í markaðsfræði og
alþjóðaviðskiptum í Háskóla Íslands.
„Þær stundir sem ég er ekki tilneyddur í
plebbaklæðnaði vegna vinnu er ég iðulega
í alls konar þægilegum kósí-buxum,
litríkum hettupeysum, flegnum bolum og
skrautlegum skóm. Ég les aldrei tísku-
tímarit og reyni helst að forðast
flíkur sem margir eru í. Mér finnst
mjög gaman að fara í verslunar-
leiðangur með honum Theódóri vini
mínum og máta alls kyns díteila sem
við erum báðir miklir áhugamenn
um. Uppáhaldsflíkurnar mínar eru
Spliff-jakkarnir sem við doktorinn
keyptum í Noland og það sem gerir
þá skemmtilega er að hægt er að taka
þá í sundur og raða upp á nýtt. Það er þó
nokkuð nett.“
Þriðjudagur
Skór: Zara
Buxur: Zara
Bolur: Retro
Peysa: H&M
Jakki: Sautján
Miðvikudagur
Skór: All Saints
Buxur: Kron
Skyrta: Zara
Axlabönd:
Walmart Fimmtudagur
Skór: Debenhams
Buxur: Sautján
Skyrta: Selected
Peysa: Sautján
Mánudagur
Skór: Footlocker
Buxur: Mótor
Bolur: Orginal
Peysa: Smash
Sloppur: Í eigu forfeðra Hafliða Bjarka sem þykir sjálfum
afar vænt um hann líkt og um eigið afkvæmi væri að
ræða.
Hátíðarlína frá Mac
Snyrtivörufyrirtækið Mac hefur verið gríðarlega iðið við að
koma á framfæri nýjum línum síðustu mánuðina. Sú nýjasta
var frumsýnd nú í vikunni og kallast Ice Parade Holiday. Hún
mun koma á markaðinn í Bandaríkjunum í lok nóvember og
nokkrum vikum seinna hérna heima. Línan, sem sögð er vera
vetrarleg og köld, samanstendur af augnskuggum, varalit,
kinnalit og fleiri nauðsynlegum snyrtivörum. Þrátt fyrir
heldur litlaust yfirbragð vantar ekki í hana glamúrinn því ein-
kennisliturinn er skínandi silfraður.
Alltof venjulegt
naglalakk frá Chanel
Tískuhúsið Chanel kynnti á dögunum nýjustu
naglalakkslínu sína, vor/sumar 2012, og var hún
óvenjulegri en við mátti búast. Naglalakkið frá
fyrirtækinu hefur slegið í gegn síðstu mánuði og
hefur oftast verið málmkennda áferð. Þessi nýja
lína er þó óvenjulega mild, falleg, rómantísk og
þar vottar ekki fyrir
hinu málmkennda
yfirbragði. Tísku-
áhugafólk hefur látið
í sér heyra og lýst
áhyggjum sínum
af því að þetta nýja
naglalakk muni ekki
njóta vinsæla. „Það
er alltof venjulegt.“
Nýr ilmur slær í gegn
Þýska tískuhúsið Escada hefur látið frá
sér fara nýja ilminn Especially Escada sem
er glæsilegur og kvenlegur í anda hinnar
glaðværu og djörfu nútímakonu. Ilmurinn
frá Escada hefur verið margs konar í
gegnum tíðina, alltaf slegið rækilega í gegn
hér á landi og þetta nýja afbrigði er þar
engin undantekning. Það er byggt á mildum
rósatóni og er fágað, með kven-
legum blæ. Rósbleiki ilmurinn er
geymdur í traustbyggðri ferkant-
aðri flösku sem er innsigluð með
gylltum tappa. Ísraelska ofurmód-
elið Bar Rafael er andlit ilmsins
og hefur gegnt því hlutverki vel
því hún nær fullkomnu jafnvægi
milli fágunar og frjálslegs glæsileika.
Við erum á Facebook
VANDAÐIR, ÞÆGILEGIR
OG FLOTTIR!
Verð: 29.990.
KRINGLUNNI • 568 8777