Fréttatíminn - 14.10.2011, Side 70
Fjórföld sala
á Nýju lífi
Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi
blaðamaður á Fréttatímanum, fær heldur
betur fljúgandi byrjun á ritstjóraferli sínum
hjá Nýju lífi. Fyrsta blaðið undir hennar
ritstjórn kom út í september og skartaði
Lilju Pálmadóttur, systur Ingibjargar
og eiginkonu Baltasars Kormáks,
í forsíðuviðtali. Að því er Frétta-
tíminn kemst næst hefur blaðið
rokið út og er salan fjórfalt
meiri en á síðasta blaði Kol-
brúnar Pálínu Helgadóttur,
fráfarandi ritstjóra.
Svartur í uppnámi
Borgríki, nýjasta íslenska glæpamyndin,
fær feiknagóðar viðtökur hjá almenn-
ingi og gagnrýnendum. Myndin, sem er
í leikstjórn Ólafs Jóhannessonar og
skartar meðal annars Ingvari Sigurðs-
syni, Sigurði Sigurjónssyni og Ágústu
Evu Erlendsdóttur, var frumsýnd á
miðvikudag og fær meðal annars fjórar
stjörnur hér í Fréttatímanum. Brátt lítur
önnur íslensk glæpamynd dagsins ljós en
það er Svartur á leik eftir samnefndri bók
Stefáns Mána. Mikið hefur verið rætt og
ritað um þá mynd, sem er meðal annars
með þeim Jóhannesi Hauki og Maríu
Birtu í aðalhlutverkum. Ljóst er að sú
mynd þarf að vera ansi góð til að standast
samanburð við Borgríki Ólafs.
Þ rjátíu einstökum eintökum af væntanlegri bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Málverkinu, var dreift í þessari viku. Opinber útgáfu-
dagur á bók Ólafs er í byrjun nóvember en eintökin
þrjátíu, sem hafa borist frá útgefanda hans, Vöku-
Helgafelli, til þeirra sem fjalla um bækur, eru
sérstaklega sérprentuð kynningareintök. Það
sem gerir þessi eintök einstök er að eftir að
þau voru prentuð ákvað Ólafur að breyta
um nafn á annarri aðalpersónu verksins.
Fyrir vikið urðu til eintök af Málverkinu
sem eru frábrugðin öllum þeim þúsundum
sem koma í bókabúðir í næsta mánuði.
Ástæðan fyrir nafnabreytingunni er, samkvæmt
heimildum Fréttatímans, sú að sögupersóna Ólafs
á sér fyrirmynd í veruleikanum. Vildi hann forðast
oftúlkun á þeim tengslum og skilja eins vel og kostur
er á milli veruleika og skáldskapar. Fyrirmyndin er
sögð ensk yfirstéttarkona sem bjó í Toskana og hélt
dagbók meðan stríðið geisaði þar. Ólafur Jóhann
mun hafa breytt nafninu úr Íris Orsini í Alice Orsini
í endanlegri útgáfu Málverks-
ins.
Útgefandi Ólafs hafði reynd-
ar vaðið fyrir neðan sig þegar
kynningareintökin voru send
út og lét fylgja með orðsend-
ingu um að þau hefðu verið
prentuð áður en lokapróförk
var lesin. Því mætti ekki vitna
í textann á prenti nema bera
hann fyrst saman við endan-
lega gerð bókarinnar.
Má hiklaust gera ráð fyrir
að safnarar muni sýna þessum
þrjátíu eintökum af Málverk-
inu sérstakan áhuga.
Bókaútgáfa Breytingar á Bók ólafs Jóhanns
Þrjátíu einstök eintök
Forseti hvítnaði
í Frankfurt
Guido Westerwelle, utanríkisráðherra
Þýskalands, hélt ræðu við opnun Bóka-
messunnar í Frankfurt á þriðjudaginn
þar sem Ísland er í öndvegi. Westerwelle
fór mikinn og talaði meðal annars um
mikilvægi þess að Íslendingar kæmu inn í
Evrópusambandið þar sem það væri ekki
gott að einangrast. Mæltist ræðan vel fyrir
hjá flestum en eftir því var þó tekið að einn
maður á fremsta bekk hvítnaði í framan
undir ræðu þýska utanríkisráðherrans.
Það var forsetinn, Ólafur Ragnar Gríms-
son, sem er eins og flestir vita hatrammur
andstæðingur þess að Ísland gangi í
Evrópusambandið.
Ólafur Jóhann breytti nafni á annarri aðalpersónu Málverksins til að skerpa á milli skáldskapar og veruleika. Ljósmynd JPV
Líklegt er að safnarar muni sýna sérprentuðum kynningareintökum af nýrri bók Ólafs Jóhanns
Ólafssonar mikinn áhuga. Kynningareintökin eru örlítið frábrugðin en þó á veigamikinn hátt
lokaútgáfu bókarinnar sem kemur út í byrjun næsta mánaðar.
Frá söguslóðum Málverksins, búgarðinum La Foce í Toskana á Ítalíu.
Þar bjó Iris Ogio sem er fyrirmynd einnar aðalpersónu bókarinnar.
Sleppum öllum málalengingum og komum
okkur beint að kjarna málsins: Borgríki
Ólafs Jóhannessonar er ferlega flott og
grjóthörð glæpamynd sem hlýtur að setja
ný viðmið þegar íslenskir krimmar eru
annars vegar.
Hún er fantavel leikin, skemmtilega tekin og
eitursvöl í útliti og áferð. Ekki spillir heldur
fyrir að sagan stendur nærri raunveru-
leika íslenskra undirheima þótt vitaskuld
sé stundum skellt aðeins á skeið í sögunni
til þess að ná upp meiri krafti og spennu.
Ofbeldið í myndinni er gróft en sett fram af
smekkvísi þannig að fáum ætti að ofbjóða
og slagsmálaatriðin eru frábærlega útfærð
af Mjölnismönnum.
Ólafur er góð og ljúf sál, eins og fyrri myndir
hans bera glöggt vitni, og hann býður því
vitaskuld ekki upp á innantóman hasar og
djöfulgang. Segja má að myndin hverfist um
þrjá kjarna; Serbann Sergej, lögreglukonuna
Andreu og glæpaforingjann Gunnar. Ekkert
þeirra er beinlínis fyrirmyndafólk en samt er
óhjákvæmilegt að finna til með þeim, sem
og flestum sem í kringum þau eru.
Hópum í kringum þremenningana lýstur
saman af fullri hörku þegar eiginkona
Sergejs missir fóstur í árás íslenskra hand-
rukkara á vegum Gunnars. Sergej smalar
saman harðsnúnum löndum sínum og ræðst
til atlögu við óvininn og Andrea og félagar
hennar í lögreglunni lenda á milli steins og
sleggju í glæpastríðinu.
Það er ekki heiglum hent að segja sögur af
jafn mörgum persónum í bíómynd og flétta
þær saman svo vel sé en Ólafi tekst þetta
býsna vel. Hann er að vísu ekkert að finna
upp hjólið og notar frásagnarmáta sem
Tarantino beitti í Reservoir Dogs. Klárlega
sniðugasta lausnin á þessu skemmtilega
vandamáli.
Hér er ekki pláss til að ausa alla leikara
myndarinnar lofi en hópurinn er ótrúlega
góður. Ingvar E. Sigurðsson klikkar ekki
frekar en fyrri daginn í hlutverki Gunnars,
Ágústa Eva er dásamleg sem Andrea og
sveiflast sannfærandi frá því að vera ást-
fangið krútt yfir í hefndaróða konu. Þáttur
Sigurðar Sigurjónssonar er sérkapítuli út af
fyrir sig en hann er frábær í hlutverki spillts
yfirmanns fíknó. Stjarna myndarinnar er þó
að öllum ólöstuðum Zlatko Krickic sem fer
hamförum í hlutverki Sergejs. Maður á vart
til orð til að lýsa því snilldarjafnvægi sem
hann finnur á milli mýktar og hörkunnar
sex. Magnaður gaur! Og alveg hreint
mögnuð mynd!
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Bíódómur Borgríki
Harðsoðið undirheimadrama
Verð 32.750 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Withings WiFi vogin
• Fyrir allt að 8 notendur
• Skynjar hver notandinn er
• Skráir þyngd, fituhlutfall og vöðvamassa
• Þráðlaus samskipti við tölvu og snjallsíma
• Fæst í hvítum lit eða svörtum
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
66 dægurmál Helgin 14.-16. október 2011