Fréttatíminn - 02.03.2012, Qupperneq 52
Helgin 2.-4. mars 201250 tíska
Gestapistla-
höfundur
vikunnar er
Magna Rún
Rúnarsdóttir
5
dagar
dress
Gleðikonufatnaður frá
Brasilíu fyllti fataskápinn
Þorbjörg Marinós-
dóttir, eða Tobba
Marinós eins og lands-
menn þekkjum hana
best, segist vera mikill
útivistafíkill og matar-
unnandi. Hún er orðin
27 ára gömul og vinnur
sem kynningarfulltrúi
Skás eins um þessar
mundir.
„Hann er mjög litríkur og
fjölbreyttur og ég er alltaf
frekar „overdressed“ en
„underdressed“,“ svarar
Tobba þegar hún er spurð
út í stílinn sinn. „Hælaskór
er algjört lykilatriði hjá
mér en þar sem ég var að
flytja í 101 þarf ég að fara
sætta mig við flatbotna
skó til þess að komast á
milli staða. Ég reyni helst
að versla í fjölbreyttum
búðum og blanda saman
allskonar stílum. Ég reyni
að sleppa við að kaupa
föt í H&M og kýs frekar
verslanir eins og
Kolaportið og Rokk
og rósir. Þrisvar á
ári verðlauna ég mig
þó og kaupi mér dýra
flík úr Boss-búðinni í
Kringlunni eða einhvers-
staðar annarsstaðar.
Ása María, vinkona mín úr
Versló, er sú manneskja sem
hefur haft mestu áhrifin
á klæðaval mitt. Þegar
ég kom heim eftir dvöl í
Brasilíu á unglingsárunum
var fataskápurinn minn
fullur af litríkum plastfötum
sem minnti helst á
gleðikonufatnað.
Þá benti Ása María
mér á að það
væri líka allt í
lagi að klæðast
svörtu og
hvítu. En
núna í
seinni tíð
er það
fólkið í
kringum
mig sem
gefur mér
innblástur í
tísku.“
Fimmtudagur
Skór: Bata
Sokkabuxur:
Levante – modeltop
Kjóll: H&M í Dúbæ
Eyrnalokkar: Pilgrim
Hringur: Lindex
Úr: Casio
Miðvikudagur
Húfa: 66 gráður norður
Jakki: 66 gráður norður
Skór: McKinly frá Ellingsen
Pollabuxur: Frá mömmu
Ísexi: 66 gráður norður
Föstudagur
Skór: Bata
Sokkabuxur: Forever21
Kjóll: Mango
Hálsmen: H&M
Hringur:
Eign systur minnar
Börn í hlutverki
fullorðinna
Í skólanum er ég að læra um konur
endurreisnarinnar, list þeirra, líf og
fjölskyldu. Þær fengu engu að ráða og
mennirnir þeirra stjórnuðu öllu. Börnin
voru álitin fullorðin um leið og þau hættu
með bleiuna. Þá voru þau klædd í full-
orðinsföt og talað við þau sem fullorðna.
Reyndar fengu börnin að eiga leikföng
og leika leiki til sjö eða átta ára aldurs en
eftir það voru þau send út að vinna. CDFA
vill banna notkun módela undir 16 ára
aldri á sýningarpöllum. Marc Jacobs, vel
þekktur fatahönnuður, segist ætla að nota
yngri módel bara alveg eins og honum
hentar, og það gerir hann. Fyrir nokkru
kom upp mál þar sem 10 ára stelpa sat
fyrir hjá franska Vogue. Myndirnar þóttu
ekki hæfa, voru taldar of kynferðislegar.
Móðir stúlkunnar sem sat fyrir hjá þessu
þekkta blaði fannst þó mest sjokkerandi
að hálsmenið sem dóttir hennar var látin
bera á myndinni var virði þriggja milljóna
evra.
Sagan virðist vera að endurtaka sig. Aftur
erum við farin að klæða börn í fullorðins-
föt og láta þau vinna fullorðinsvinnu. Er
það þangað sem við viljum fara, er það
þannig sem við viljum koma fram við
börnin okkar?
Snyrtivörufyrirtækið MAC er
duglegt við að finna upp á nýjum
og fjölbreytilegum snyrtivöru-
línum sem ekki fylgja árstíðunum
sérstaklega. Í vikunni tilkynnti
fyrirtækið að ný lína sé væntanleg
næsta haust sem sækir innblástur
sinn til gyðjunnar Marilyn Monroe.
Kvikmyndastjarnan er ein af
dáðustu stjörnum frá upphafi og er
löngu tímabært að tileinka henni
snyrtivörulínu, að sögn talsmanna
fyrirtækisins. Línan mun saman-
standa af dökkum augnskuggum,
augnblýöntum, nokkrum rauðum
varalitum og naglalakki. Línan mun
vera framleidd í takmörkuðu magni.
Mad Men-förðunarlína frá Estée Lauder
Tíska frá fimmta og sjötta áratugnum hefur komið inn af miklum krafti í vetur og
má líklega rekja það til vinsælla sjónvarpsþátta á borð við Pan Am og Mad Men.
Tísku- og snyrtivörufyrirtæki eru sér fullkomlega meðvituð um þessa tískustrauma
og er snyrtivöruhúsið Estée Launder eitt þeirra fyrirtækja sem vilja líta til þessa
og hefur nú hannað nýja snyrtivörulínu undir nafninu Mad Men.
Förðun þeirra Betty, Joan og Peggy, sem eru helstu kvenpersónur
þáttanna, eru fyrirmyndir línunnar sem byggja á skærum
kinnalitum, varalitum og
augnskuggum. Aðal-
hönnuður línunnar, Jane
Hertzmark, segist sjá
talsverða samsvörun
milli Mad Men-þáttanna
og stofnanda Estée La-
under, sem var einmitt
þekkt fyrir flottan og
fágaðan stíl á fimmta og
sjötta áratugnum.
Snyrtivörulína í anda Marilyn Monroe
Nýr ilmur frá leikaranum Bruce Willis kom á Banda-
ríkjamarkað fyrr í vikunni sem kallast Lovingly by
Bruce Willis. Leikarinn hannaði ilminn í samstarfi við
LR Health & Beauty Systems sem framleiðir ilminn
líkt og hans fyrsta ilm sem kom á markað árið 2010.
Lovingly by Bruce Willis er hans fyrsti kvenmanns-
ilmur og lyktar eins og grænn sítrusávöxtur og hvítar
liljur. Eiginkona kappans, Emma Heming-Willis, var
fengin til þess að vera andlit ilmvatnsins og situr hún
fyrir í auglýsingaherferðinni og gerir það vel.
Willis hannar
sinn fyrsta ilm
fyrir konur
Þriðjudagur
Skór: Bata
Kjóll: Rokk og Rósir
Eyrnalokkar: Pilgrim
Hringur: Six
Mánudagur
Buxur: Miss Selfridge
Bolur: Warehouse
Skór: Steve Madden
Armbond: Markaður