Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Page 1

Fréttatíminn - 22.06.2012, Page 1
22.-24. júní 2012 25. tölublað 3. árgangur 28 Ísland á kort hinna frægu á ný. Tom og Katie Shania Twain  VIÐTAL Barði Jóhanns Veður í verk- efnum í Frakk- landi. EM 2012 Loksins blómstrar Steven Gerrard. 18 FóTBolTi úTTEKT síða 14 Kántrídrottningin sækir Ísland heim. 62 Lærðu að grilla besta kjöt í heimi. lambalæri á grillið 40MaTur og Vín Fólkið á bak við fram bjóðendur og hernaðar - áætlanir þeirra. úTTEKT 20 Lj ós m yn d/ H ar i ViðTal 24 Eiga von á fimmburum Hjón á þrítugsaldri, búsett í reykjavík, standa nú frammi fyrir þeirri erfiðu ákvörðun hvort þau eigi að fara að ráðleggingum lækna, og fækka fóstrum sem konan gengur með, um þrjú! Konan er gengin tæpa þrjá mánuði með fimmbura. Hjónin fengu þessa sláandi frétt fyrir rúmri viku og hafa í kjölfarið sveiflast fram og til baka; hvort þau eigi að láta fram- kvæma flókna fóstureyðingu á þremur fóstrum til að auka lífslíkur hinna tveggja sem eftir yrðu – eða hvort þau eigi að feta braut áhættusamrar meðgöngu og treysta á að öll fimm lifi. Þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem kona verður barnshafandi af fimm burum enda er slíkt afar fátítt á heimsvísu. Hún sagði mér að fóstrin væru fimm og ég fékk algjört áfall. Forsetakosningar DægurMál Þ að er okkur Hvergerðingum sérstök ánægja að bjóða gesti velkomna á Garðyrkju- og blóma-sýninguna „Blóm í bæ“ sem nú er haldin í fjórða sinn í Hveragerði. Tugþúsundir gesta hafa sótt hátíðina og notið fjölbreyttrar sýningar á öllu því sem tilheyrir græna geiranum auk þess sem skreytingar blómaskreyta í bæjarfélaginu hafa vakið mikla athygli fyrir frumleika og fegurð. Þema sýningarinnar í ár er „sirkus“ og munu skreytingar á sýningunni taka mið af því. Alls konar kynjaverur sirkusins lifna við í blómum og myndum og litagleðin tekur öll völd. Í beðum og kerjum má sjá marglit blóm af ýmsum gerðum sem öll minna okkur á fjöl-breytileika náttúrunnar og gæði íslenskrar framleiðslu. Aldrei hefur jafn mikið magn af afurðum græna geirans verið til sýnis á einum stað. Í íþróttahúsi bæjarins hefur glæsileg sýning afskorinna blóma og potta-blóma verið sett upp og þar gefst gestum tækifæri til að sjá hið besta frá íslenskum blómaframleiðendum. Á útisvæði er vegleg sýning á garðplöntum þar sem virða má fyrir sér sumarblóm, berjarunna, matjurtir og fjölæringa. Allar skreytingar í bæjarfélaginu eru í höndum atvinnu- og áhugamanna um blómaskreytingar sem leggja nótt við dag fyrir sýninguna svo skreytingarnar verði sem bestar. Hvergi gefst betra tækifæri til að kynna sér það helsta sem í boði er í garðyrkju en á Blóm í bæ í Hveragerði. Ýmislegt verður síðan til afþreyingar, blóma-bingó verður með reglu-legu millibili hátíðardagana, örfyrirlestrar, fræðslugöngur, garðaskoðun, ljóðablóma-staurar, plöntupúl og garðasúpa í görðum bæjarbúa er meðal þess fjölmarga sem á dag-skrá verður þessa helgi. Á laugardeginum fagnar Norræna félagið í Hveragerði Jóns-messu og reisir miðsumarstöng með tilheyr-andi gleðskap í Lystigarðinum. Auk þessa alls verða leiktæki og uppákomur fyrir yngstu kynslóðina og sýningar og markaðir út um allan bæ þannig að engum ætti að leiðast. Sýningin hefst næstkomandi föstudag klukkan 12 en henni lýkur á sunnudeginum klukkan 18. Setningarathöfn verður á föstu-dag klukkan 14 og mun ráðherra landbún-aðar og sjávarútvegs setja sýninguna. Um leið og Hvergerðingar og fagfélög græna geirans bjóða alla landsmenn vel-komna til að njóta þess besta sem íslensk garðyrkja býður uppá bendum við á að nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.blomibae.is Aldís Hafsteinsdóttir Bæjarstjóri Hveragerðis. GarðarUnnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands Helgin 22.-24. júní 2012 Hjartnæm GarðablómHjartablóm hafa verið í ræktun hér-lendis um áratuga skeið og aldrei hefur neinn heyrst hallmæla þessum plöntum enda forkunnarfagrar.  bls. 2  bls. 2 Vökvið mikið í kjölfar vorhrets og þurrka Ýmsar reynitegundir og rósayrki fóru illa í vor.  HveraGerði SýninG Um HelGina Hluti af svæði sem félagar í GÍ skreyttu árið 2010. Hlíðasmára 1 | 201 Kópavogur | Sími: 554-6969 | www.lur.is Betri gæði á góðu verðiRúm, dýnur, hægindasófar, svefnsófar, gjafavörur og fleira Velkomin á Blóm í bæ!  bls. 6 Garðagöng- urnar eru sívinsælar Ýmist gengið á millli einka-garða eða opinberir garðar skoðaðir.  bls. 5 Viltu skipta á plöntu? Það má býtta á plöntum ekki síður en frímerkjum og servéttum. Garðar í miðju FrÉttatímans PI PA R \ TB W A • S ÍA • 1 21 7 71 Gamla, góða sumarið Veljum íslensktFylgstu með okkur á Facebook / www.gamlaapotekid.is Njóttu þess að vera úti í sólinni með Gamla apótekinu

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.