Fréttatíminn - 22.06.2012, Blaðsíða 52
44 bækur Helgin 22.-24. júní 2012
RitdómuR Ást í meinum
Önnur bókin í Hungurleika-
flokknum, Eldar kvikna,
hefur slegið í gegn hér á
landi. Bókin situr í toppsæti
metsölulista bókaútgefenda
á tímabilinu 3. - 16. júní. Þá
er bókin á toppi kiljulistans.
sívinsæliR HunguRleikaR
RitdómuR FóRnaRdauði/dauðadjúp
F jórða bókin um heljarmennið Jack Reacher er komin út á forlagi JPV í nákvæmri þýðingu Jóns St.
Kristjánssonar, heitir Fórnardauði og nú
er huldumaðurinn á ferð um Nebraska
og lendir óvart inn í heimiliserjum í sveit
þar sem feðgar ráða lögum og lofum.
Hugmyndin er ekki ný, sagan er nánast
tekin í heilu lagi úr Lífverðinum eftir
Kurusawa: Fyrrum hermaður sem kann
vel öll drápsbrögð lendir milli tveggja
andstæðra fylkinga.
Upphaflega hug-
myndin var
sótt í Red Har-
vest eftir Das-
hiell Hammett.
Hér heima er
Hrafninn flýgur
sprottinn af
sama meiði.
Lee Child er
um margt flinkur
spennusagna-
höfundur þótt
hann gernýti
gömul stef í
skemmtisög-
um sínum.
Snúningarnir
í fléttunni eru
nógu margir
til að halda
uppi fjör-
inu drjúga
kvöld-
stund.
Heftin
um
þennan
krafta-
karl
sem
hik-
laust limlestir menn til lífstíðar hafa líka
selst vel og nú bíða aðdáendur þessa
skemmtiefnis spenntir að sjá Tom Cruise
klifra upp á stall og leika 195 sentimetra
hátt heljarmennið. Child ratar til sinna og
líklega eru þeir flestir karlkyns.
Åsa Larson er í þriðja sinn komin á ís-
lenskan bókamarkað með Dauðadjúpi
en Eyrún Edda Hjörleifsdóttir þýðir sem
fyrr. Sagan heitir á sænsku Till dess din
vrede upphör en heitið er sótt í Jobs-
bók: Uns reiði þinni slotar. Væri betra að
útgefandi sýndi lesendum þá virðingu að
halda sig við rétt heiti á bókverkum þótt
djúp og dauði koma hér við sögu.
Hér segir af velmetnum lögfræðingi
sem flýr norður í Botna og reynir á forn-
um slóðum að koma reiðu á líf sitt í starfi
saksóknar. Annar meginás sögunnar er
þverlynd kona í lögreglunni og saman
takast þær á við herraríki sem þrífst
í einangrun. Sagan teygir sig í þessu
tilviki aftur til samstarfsára Þjóð-
verja og Svía á fyrri árum stríðsins.
Larson er áhugasamari um mannleg
einstaklingsbundin örlög fólks en
Child, tuttugu sentimetrum dýpri í
skoðun sinni á mannfólkinu. Hér er
aragrúi af trúverðugum aukapers-
ónum, slitið og einangrað mannlíf í
erfiðri byggð undir smásjánni. Henni
fer stöðugt fram þótt hún hneigist
enn til að ljúka sögum sínum með
háreistum og hvelli. Fínt stöff.
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Reacher og Rebekka
Bókaútgáfan Sögur hefur sent frá
sér tvær nýjar bækur helgaðar fót-
boltamönnunum Ronaldo og Messi.
Höfundur textans er Illugi Jökuls-
son en um brot bókanna sér Ólafur
Gunnar Gunnlaugsson. Þessar
harðspjaldabækur eru ríkulega mynd-
skreyttar af ljósmyndum úr erlendum
myndabönkum sem sýna þessar hetjur
boltans á ýmsum skeiðum ferils síns. Þær eru ekki samdar með
samþykki umboðsmanna þeirra en gefa ungum lesendum í skýru
og markvissu lesefni innsýn í þann heim sem Messi og Ronaldo
eru sprottnir úr og ættu því að vera kjörið lesefni ungum áhuga-
mönnum um knattspyrnu. Þá hefur bókaútgáfan Draumsýn auglýst
að væntanleg sé á markað sjálfsævisaga Zlatans Ibrahimovic sem
kom út í Svíþjóð á liðnu ári og sló þar öll sölumet. -pbb
Lesefni fyrir fótboltafrík
Þakka ber menningarstjóra Fréttatímans glöggar
og vekjandi greiningar gegnum tíðina. En hér koma
tvö betrumbótakorn.
Í Fréttatímanum 15.-17. júní 2012,
á bls. 46, í rítdómi um bók Ernis
Snorrasonar „Sýslumaðurinn sem sá
álfa“, segir að eina heftið af tímaritinu
Núkynslóð sem út kom 1968 hafi verið
„fagurlega umbrotið af Jóhannesi
heitnum Ólafssyni“. Umbrotsmaðurinn
var reyndar ekki Jóhannes, mikill
hæfileikamaður sem féll of snemma
frá, heldur undirritaður. Má til
gamans rifja upp að kringum árið 1968 gerjaðist
pólitísk hugmyndafræði (frelsiskröfur, endurmat,
ögrun, öfgar ofl.) ásamt tæknibreytingum (offset,
silkiþrykk ofl.) í prentun bóka og tímarita, plakata
og plötualbúma. Þetta örvaði margt ungt fólk til
að sniðganga í prenti hefðir, reglur og
fastmótaða fagurfræði og beita heldur
öfgum og andstæðum í vali og meðferð
texta, mynda og skrauts svo allt rann
saman, eins og sjá má í Núkynslóð.
Ritdómarinn skrifar enn fremur í
pistli sínum í Fréttatímanum um Nú-
kynslóð: „Ég minnist þess ekki að Ernir
[Snorrason] hafi átt efni í heftinu“.
Hið rétta er að Ernir birti í Núkynslóð
minninga- og skilgreiningabrot undir
heitinu „Þrjár borgir“ og er þar um að ræða Tours
í Frakklandi, Istanbúl í Tyrklandi og Reykjavík.
Ólafur H. Torfason
Leiðréttingar varðandi Núkynslóð
Sambúðin er undirliggjandi þema í
sagnasveig Rúnars Helga Vignisson-
ar sem kominn er út á forlagi Upp-
heima. Kallast smásagnasafnið Ást
í meinum og geymir fimmtán nýjar
smásögur sem allar gerast á okkar
tímum og fjalla með einum og öðrum
þætti um samlíf fólks, oftast af gagn-
stæðu kyni sem býr saman en hér
hljóma líka raddir af sjúkrastofu,
lýst er samveru kvenna í sturtuklefa
sundlaugar og víða skýst Rúnar inn
og þreifar eftir glufum í lífi fólks.
Frásagnarhátturinn er ýkjulaus,
hljóðlátur og vindur sögunum fram
með samtölum og ytri lýsingum
rétt eins og innra lífi persóna, oftast
bundið við eina miðju aðalpersónu.
Hér er allt vel gert, höfundurinn talar
ekki hástöfum heldur leiðir okkur af
öryggi sögumeistara um þaulunninn sagnaheim af
mikilli smekkvísi. Millistéttin er undir og hennar
veiku vonir og djúpu þrár um erindi á jörðina og
hamingju í sambúð. Á þessari fimmtán skrefa
göngu yrkir skáldið upp margar eftirminnilegar
smámyndir, sumar nokkuð bersöglislegar eins og
söguefnið heimtar, alltaf með björtum augum um-
burðarlyndis og mildu brosi fyrir skoplegum hlið-
um. Fyrir bragðið glyttir víða í miklar tragedíur
sem skáldið lætur sér duga að gefa í skyn.
Þetta er dæileg lesning, ekkert uppistand hér.
Margt er litað lifnaðarháttum okkar, rétt eins og
í sjónvarpssögum eru samskiptatæki nútímafrá-
sagnar bíll og farsími nærri, heimurinn teygir sig
til annarra meginlanda en þungamiðja, ytri lýsing-
ar á híbýlum bara það allra nauðsynlegasta enda
er þungamiðjan samskiptamáti okkar í kulnuðum
glóðum ástar, ösku liðinna vona. Viðkvæmt efni en
afar vel með það farið.
Nú má fagna því að höfundar á borð við Guð-
mund Andra, Kristínu Eiríksdóttur og Rúnar
leggi fyrir sig hið merkilega form smásögunnar.
Eini óttinn er sá að þessar bækur fái ekki vigt í
innkaupi lestrarhestanna, en því má bæta úr. Nú
er einmitt sá tími að gott er að hafa við höndina
vel unna texta sem heimta ekki lotulestur; þetta
sögsafn er ekki svikinn héri, heldur afbragðs bók-
menntaverk. -pbb
Látið ykkur falla
Fórnardauði
Lee Child
JPV, 411 síður, 2012.
Ást í meinum
Rúnar Helgi Vignisson
Uppheimar, 194 síður, 2012.
Rúnar Helgi
Vignisson
Mynd/Jón Páll
Vignisson.
Ernir Snorrason.
dauðadjúp
Åsa Larson
JPV , 326 síður, 2012.
Åsa Larsson.
Lee ChildKaffi á könnunni og næg bílastæði
b ó k a b ú ð
f o r l a g s i n s
Opið alla virKa daga
kl. 10–18
Og laugardaga
kl. 10–14
Fiskislóð 39