Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.06.2012, Side 33

Fréttatíminn - 22.06.2012, Side 33
Þ að er okkur Hvergerðingum sérstök ánægja að bjóða gesti velkomna á Garðyrkju- og blóma- sýninguna „Blóm í bæ“ sem nú er haldin í fjórða sinn í Hveragerði. Tugþúsundir gesta hafa sótt hátíðina og notið fjölbreyttrar sýningar á öllu því sem tilheyrir græna geiranum auk þess sem skreytingar blómaskreyta í bæjarfélaginu hafa vakið mikla athygli fyrir frumleika og fegurð. Þema sýningarinnar í ár er „sirkus“ og munu skreytingar á sýningunni taka mið af því. Alls konar kynjaverur sirkusins lifna við í blómum og myndum og litagleðin tekur öll völd. Í beðum og kerjum má sjá marglit blóm af ýmsum gerðum sem öll minna okkur á fjöl- breytileika náttúrunnar og gæði íslenskrar framleiðslu. Aldrei hefur jafn mikið magn af afurðum græna geirans verið til sýnis á einum stað. Í íþróttahúsi bæjarins hefur glæsileg sýning afskorinna blóma og potta- blóma verið sett upp og þar gefst gestum tækifæri til að sjá hið besta frá íslenskum blómaframleiðendum. Á útisvæði er vegleg sýning á garðplöntum þar sem virða má fyrir sér sumarblóm, berjarunna, matjurtir og fjölæringa. Allar skreytingar í bæjarfélaginu eru í höndum atvinnu- og áhugamanna um blómaskreytingar sem leggja nótt við dag fyrir sýninguna svo skreytingarnar verði sem bestar. Hvergi gefst betra tækifæri til að kynna sér það helsta sem í boði er í garðyrkju en á Blóm í bæ í Hveragerði. Ýmislegt verður síðan til afþreyingar, blóma-bingó verður með reglu- legu millibili hátíðardagana, örfyrirlestrar, fræðslugöngur, garðaskoðun, ljóðablóma- staurar, plöntupúl og garðasúpa í görðum bæjarbúa er meðal þess fjölmarga sem á dag- skrá verður þessa helgi. Á laugardeginum fagnar Norræna félagið í Hveragerði Jóns- messu og reisir miðsumarstöng með tilheyr- andi gleðskap í Lystigarðinum. Auk þessa alls verða leiktæki og uppákomur fyrir yngstu kynslóðina og sýningar og markaðir út um allan bæ þannig að engum ætti að leiðast. Sýningin hefst næstkomandi föstudag klukkan 12 en henni lýkur á sunnudeginum klukkan 18. Setningarathöfn verður á föstu- dag klukkan 14 og mun ráðherra landbún- aðar og sjávarútvegs setja sýninguna. Um leið og Hvergerðingar og fagfélög græna geirans bjóða alla landsmenn vel- komna til að njóta þess besta sem íslensk garðyrkja býður uppá bendum við á að nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.blomibae.is Aldís Hafsteinsdóttir Bæjarstjóri Hveragerðis. Garðar Unnið í samvinnu við Garðyrkjufélag Íslands Helgin 22.-24. júní 2012 Hjartnæm Garðablóm Hjartablóm hafa verið í ræktun hér- lendis um áratuga skeið og aldrei hefur neinn heyrst hallmæla þessum plöntum enda forkunnarfagrar.  bls. 2  bls. 2 Vökvið mikið í kjölfar vorhrets og þurrka Ýmsar reynitegundir og rósayrki fóru illa í vor.  HveraGerði SýninG Um HelGina Hluti af svæði sem félagar í GÍ skreyttu árið 2010. Hlíðasmára 1 | 201 Kópavogur | Sími: 554-6969 | www.lur.is Betri gæði á góðu verði Rúm, dýnur, hægindasófar, svefnsófar, gjafavörur og fleira Velkomin á Blóm í bæ!  bls. 6 Garðagöng- urnar eru sívinsælar Ýmist gengið á millli einka- garða eða opinberir garðar skoðaðir.  bls. 5 Viltu skipta á plöntu? Það má býtta á plöntum ekki síður en frímerkjum og servéttum.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.